Melkorka - 01.06.1949, Page 27

Melkorka - 01.06.1949, Page 27
aldrinum, en alltaf er gaman að vaka á vor- in. Ég geng öðru hvoru og leiði hjólið. Nokkru fyrir fótaferðartíma kemst ég þó á áfangastaðinn, ber utan þann glugga, sem ég ætlaði að berja, og vek þær, sem vakna áttu. Heimasæturnar bregða blundi. Um hádegið löbbum við upp í brekkuna. Þær eru að sýna mér hestana sína. Elzta systirin, 19 ára gömul, hefur tamið fjölda hesta. Hún sezt á jrúfu og hesturinn hennar kernur til að fagna eiganda sínum. Hann leggur höfuðið að vanga stúlkunnar og sleikir handleggi hennar ástúðlega. Það er sunnudagur. Ég kem við á bæjun- um og heilsa upp á kunningjana, þá sem ekki eru í útreiðum, eins og mjög tíðkast hér í sveit. Við ána kemur hópur ferðafólks á móti mér, sólbrenndir krakkar og unglingar. Þeir hleypa gæðingunum á sprett yfir ána og vatnið freyðir um brjóst hestanna. Svona er vorið, ef menn kunna að njóta j>ess. Nokkrar vísur eftir Látra-Björgu Eftir Sigriði Einars frá Munaðarnesi Látra-Björg var fædd í Stærra-Árskógi, líklega seint í nóvember 1716 (skírð 1. des. þ. á.), dóttir Einars stúdents Sæmundssonar prests í Stærra-Árskógi (d. 1738) Hrólfsson- ar sýslumanns á Víðimýri, Sigurðssonar, Hrólfssonar sterka. En móðir Bjargar var Margrét Bjarnadóttir yngra Bjarnasonar prests gamla á Hvanneyri í Siglufirði. Björg andaðist í móðuharðindunum 26. sept. 1784 og var grafin á Upsum. Um Látra-Björgu var sagt að hún væri vel viti borin og skáld, er hún tók að Jrrosk- ast, en kvenna ferlegust, að sögn þeirra er hana sáu, hálslöng mjög og liávaxin, og sagt lienni væri afarhátt til knés. Svo var sagt að Björg kæmi eitt sinn á bæ nokkurn og fór barn, er þar var, að gráta, er það sá hana, því það hræddist liana, en hún var stórskorin og tröllsleg ásýndum, en gáfuð í tali. Þá kvað hún: Get ég að ég sé grýlan barna af guðunum sköpt í mannalíki. Á mig starir unginn jrarna eins og tröll á himnaríki. Þessi vísa er eignuð Björgu: Mörgum manni bjargar Björg björgin hressir alla, en að sækja björg í björg björgulegt er valla. Er Björg missti skjóhi, kvað hún: Eykur mér það eymd og pín, angur, sorg og trega, farin er nú fatan mín til fjandans algerlega. Trúði fólk því um Björgu að liún væri kraftaskáld eða ákvæðin og kvæði að fisk, þótt fátt væri um liann. Eitt sinn er hún var róin frá Látrum á hún að hafa kveðið Jressa vísu, þá lítið aflaðist: MELKORKA 25

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.