Bjarmi - 01.06.2005, Qupperneq 10
Komust öll dýrin fyrir
í örkinni hans Nóa?
Sífellt fleiri vísindamenn telja að
jarðfræðilegar vísbendingar gefi
tilefni til að ætla að gríðarlegt
flóð hafi orðið á jörðinni og velta
menn því fyrir sér hvort frásögn
Biblíunnar af Nóaflóðinu geti
verið sönn. Margir lesa lýsingu
Biblíunnar á örkinni í Ijósi nútíma-
þekkingar og hvort það geti verið
að hún hafi í raun og veru getað
rúmað öll þessi dýr.
Hversu stór var örkin?
Gjör þú þér örk af góferviöi.
Smáhýsi skalt þú gjöra i örkinni og
bræða hana biki utan og innan. Og
gjör hana svo: Lengd arkarinnar sé
þrjú hundruö álnir, breidd hennar
fimmtlu álnir og hæö hennar þrjátíu
álnir. Glugga skalt þú gjöra á
örkinni og búa hann til á henni
ofanveröri, allt að alin á hæð, og
dyr arkarinnar skalt þú setja á hliö
hennar og búa til þrjú loft í henni:
neðst, í miðju og efst.
(I.Mós.6.14-16)
Flestir hebreskufræðingar telja
að ein alin samsvari a.m.k. 45.72
sentimetrum. Örkin hefur þá verið
a.m.k. 137.16 metrar að lengd,
22.86 metra breið og 13.72 metra
há. Hún hefur verið talin stærsta
fley sem smíðað hefur verið fram til
síðari hluta nítjándu aldar þegar
farið var að smíða stór skip úr
málmum. Lengd arkarinnar var sex
sinnum meiri en breiddin og það
hefur gert hana mjög stöðuga úti á
reginhafi. Skipasmiðir fullyrða að
samkvæmt lýsingu Biblíunnar á
örkinni hafi hún verið mjög stöðug
og að fræðilega hafi hún ekki getað
lagst á hliðina. Hún hefur því hent-
að afar vel til siglinga í vályndum
veðrum á tímum flóðsins mikla.
Var pláss fyrir öll dýrin?
Gólfflötur arkarinnar hefur verið
stærri en 9300 fermetrar eða á
stærð við 20 körfuboltavelli.
Rúmmál arkarinnar hefur verið
462.686,4 rúmmetrar. En það er
álíka 569 lestarvögnum sem
ætlaðir eru til vöruflutninga.
Og þá er það stóra spurningin:
Hversu mörg dýr þurftu að vera í
örkinni til að lifa af flóðið?
Ernest Mayr, einn fremsti flokk-
unarfræðingur Bandaríkjanna í dag,
telur að í heiminum séu nú fleiri en
milljón dýrategundir.
Flestar þessar tegundir geta
hins vegar lifað í vatni og þurftu því
ekki að vera um borð í örkinni. Nói
þurfti því ekki að gera neinar
ráðstafanir fyrir þær 21.000
fiskategundir og 1.700 tegundir
möttuldýra sem lifa í sjónum. Það
sama má segja um 600 tegundir
skrápdýra (s.s. krossfiska og igul-
kera), 107.000 tegundir lindýra
(s.s. kræklinga og ostra), 10.000
tegundir holdýra (s.s. hvelja, sæ-
fífla og kóraldýra), 5.000 tegundir
svampa og 30.000 tegundir ein-
frumunga.
Sum spendýr geta lifað í vatni,
t.d. hvalir, selir og höfrungar. Nói
þurfti heldur ekki að taka allar
froskategundir með og ekki heldur
öll skriðdýr s.s. skjaldbökur og
krókódíla. Þá lifir stór hluti af
83.000 tegundum lindýra s.s.
humar, rækja, krabbi, halafló og
hrúðurkarl í sjó. Þá eru skordýr í
hópi liðdýra flest mjög lítil.
Sömuleiðis hafa margar af þeim
35.000 tegundum orma og sko-
rdýra getað komist af án þess að
vera um borð í örkinni.
Hversu mörg dýr þurfti Nói að
hafa um borð?
í bókinni The Genesis Flood
segja doktorarnir Morris og
Whitcomb að hámark 35.000 dýr
hafi þurft að vera í örkinni. John
Woodmorappe heldur því hins
vegar fram, og rökstyður á sann-
færandi hátt í bók sinni Noah’s Ark:
A Feasibility Study, að mun færri
dýr hafi verið i örkinni. Hann segir
að orðið „tegund“ sé ekki sömu
merkingar og hebreska orðið sem
10