Bjarmi - 01.06.2005, Qupperneq 21
kynntur fyrir starfseminni 1938 af
Hans von Dohnayi, sem var mágur
hans. Um svipað leyti og
Bonhoeffer gerist meðlimur í
Abwehr voru aðgerðir enn hertar
gegn Gyðingum og starfsemi
Gestapo-manna fólst nú i því að
koma Gyðingum úr landi. Til þess
þurfti ýmiss konar lagni og yfir-
breiðslur. Rannsókn Gestapo á fjár-
málum hreyfingarinnar leiddi til
þess að upp komst um eina
aðgerðina og i kjölfarið voru
Bonhoeffer og Dohnayi handteknir í
apríl 1943. Andspyrnan skipulagði
tilræði við Hitler og var reynt að
myrða hann 20. júli 1944. Fang-
elsisvist Bonhoeffers var framan af
í Tegel-fangelsinu og hafði hann
framan af nokkuð athafnafrelsi
miðað við marga og er talið að
ætterni hans hafi hjálpað til. Hann
gat m.a. fengið heimsóknir og
frægt er að honum tókst að koma
bréfum sínum úr fangelsinu, stun-
dum með hjálp fangavarða.
Eberhard Bethge, bjó þau síðan til
útgáfu og líklega eru þessi bréf
hans þekktasta verk ásamt bókinni
um eftirfylgdina. Bókin olli umræð-
um næstu 40 árin en ekki verður
farið nánar út í það í þessari grein.
Eberhard Bethge átti síðar eftir að
skrifa ævisögu Bonhoeffers og gefa
út fleiri af hans verkum. Bethge var
einn af nemendum hans í Finken-
walde en fleiri af þeim hafa lagt sitt
af mörkum til að kynna öðrum verk
síns gamla kennara.
Það vakti athygli á meðal sam-
fanga hans hversu yfirvegaður
Bonhoeffer var, hann virtist geta
staðist álagið sem fylgdi fangels-
uninni og haldið sér í góðu jafn-
vægi. Það er nú hugsanlega
oftúlkun, þvi að i Ijóði sem hann
samdi í fangelsinu og ber heitið
„Werbinlch?" eða „Hvererég"
veltir hann þessu fyrir sér. Þar
dregur hann fram andstæður og
undrar sig á orðum samfanga
sinna. Er ég sá sem aðrir segja mig
vera? Eða er ég eingöngu sá sem
ég þekki sjálfan mig fyrir að vera?
Á meðan samföngum fannst hann
vera glaðlyndur og stoltur upplifði
hann sjálfur innilokun, reiði og
andlegan þurrk. Þetta kemur vel
heim og saman við lýsingu
Gerhards Jacobi á Bonhoeffer.
Jacobi tilheyrði hópi játningartrúrra
presta og lýsti Bonhoeffer þannig
að hann hafi haft yfirbragð jafnað-
argeðs og þrautseigju í fjölmenni
en væri oft afar órólegur innra með
sér og I minni hópum. Jacobi
fannst Bonhoeffer á einhvern hátt
laðast að þjáningum og hefur
hugsanlega reynst sannspár með
það. Bonhoeffer veitti mörgum
prestsþjónustu þegar hann sat inni
og var í raun leiddur út úr guðs-
þjónustu af tveimur fangavörðum til
hengingar 9. april 1945. Fjórum
dögum áður hafði Heinrich
Himmler gefið út tilskipum þess
efnis að taka ætti af llfi Canaris-
hóþinn. Canaris þessi hafði veitt
Abwehr-hópnum forstöðu og hann
og fjórir aðrir úr hópnum voru líf-
látnir ásamt Bonhoeffer. Hans von
Dohnayi var einnig tekinn af lifi í
Sachsenhausen-útrýmingar-
búðunum. Viku siðar leystu banda-
menn Flossenbúrg úr haldi. Adolf
Hitler féll fyrir eigin hendi í Berlin
30 april.
Grafskrift Bonhoeffers var: „Hér
hvilir Dietrich Bonhoeffer, vitnis-
burður um Krist á meðal bræðra
Um svipað leyti og Bonhoeffer gerist
meölimur í Abwehr voru aðgerðir enn
hertar gegn Gyðingum og starfsemi
Gestapo-manna fólst nú í því að koma
Gyðingum úr landi.
sinna." Það var viðnámið sem
hann veitti sem leiddi hann til
dauða, sú ákvörðun að flýja ekki,
að tala gegn ranglætinu og veita
raunverulega mótspyrnu.
Heimildir:
Bethge, E., 1970: Dietrich Bonhoeffer:
Theologian, Christian,
Contemporary. London, Collins.
Ericksen, R.B. og Heschel, S. (Ritstj.),
1999: German Churches and the
Holocaust: Betrayal. Minneapolis,
Fortress Press.
Kelly, G.B. og Nelson, F.B. (Ritstj.),
1995: A Testament to Freedom. San
Francisco, Harper Collins.
Zimmermann, W.D. og Smith, R.G.
(Ritstj.), 1973: / knew Dietrich
Bonhoeffer.London, Fontana.
Höfundur er guðfræðinemi og starfar
sem leiðbeinandi við skóla i Keílavík
henningemil@gmail.com
21