Bjarmi - 01.06.2005, Side 45
Hrönn Svansdóttir
a
Glenn Kaiser Band
Glenn Kaiser stofnaöi Glenn
Kaiser Band og hefur hljómsveitin
starfað í röskan aldarfjóröung.
Nýjasti diskur þeirra er GKB Live
og er hann tilefni þessarar
umfjöllunar. Hljómsveitin var hér
á landi i byrjun júnímánaöar á
þessu ári, ferðaðist um og hélt
tónleika í Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu, á Akranesi,
Eyrarbakka, í Vestmannaeyjum og
kom fram í Popplandi á Rás 2.
Glenn Kaiser ólst upp í
Wisconsin og var snemma byrjað-
ur að eiga við tónlist. Fyrstu áhrifa-
valdarnir voru Bítlarnir, svo voru
það Rolling Stones og Jimi
Hendrix. Hann byrjaði í fyrstu
hljómsveitinni sem gítarleikari
aðeins 12 ára gamall. Foreldrar
hans skildu þegar hann var aðeins
9 ára og hafði það mikil áhrif á
hann og á unglingsárunum leiddist
hann út í óreglu. Hann flutti
snemma til Chicago en tónlistarlífið
þar höfðaði til hans. Óreglulífið lék
Glenn illa eins oft vill verða og á 18
ára afmælinu var hann búinn að
reyna sjálfsvíg og var kominn á
botninn. Það var á þá sem hann
bað Guð að grípa inn í kringum-
stæður sínar og Guð gerði það,
læknaði hann á líkama og sál. Frá
þeirri stundu sneri Glenn við blað-
inu, hætti öllu sem hafði tilheyrt
gamla lífinu, þ.m.t. tónlistinni og
gekk hann jafnvel svo langt að gefa
hljóðfærin sín. Það tók hann eitt ár
að koma góðu jafnvægi á líf sitt og
þann tíma hafði hann hægt um sig.
Á þeim timapunkti var hann beðinn
um að spila og syngja í kirkjunni
sem hann sótti og hann varð við
því. Tónlistin var aftur kominn inn i
líf hans.
k Glenn kynntist konu sinni,
Wendi, á biblíuskóla árið 1971 og
hafa þau verið gift í yfir 30 ár og
hafa alla tíð búið í Chicago. Þau
hafa lagt sig fram við að hjálpa
þeim sem minna mega sín. Það
byrjaði smátt, heimilislausar ein-
stæðar mæður fengu kvöldmat og
gistingu hjá þeim í stofunni. En
v\ í^H' "
lalftdR'':
þörfin var mikil og ekki leið á löngu
þar til þau voru farin að leita að
stærra húsi. Það Oþnaðist leið fyrir
þau til að kaupa gamalt verk-
smiðjuhús og þetta hús hýsir nú þá
sem áður voru heimilislausir, þar er
skóladagheimili og gæsla fyrir ung-
börn, auk sérstakrar aðstöðu fyrir
eldri borgara. Nú eru húsin orðin 3
og þar er pláss fyrir 500 manns.
Samtökin sem halda utan um allt
þetta heita Jesus Peoþle USA og er
Glenn í stjórn samtakanna. Nokkur
hundruð manns tilheyra sam-
tökunum og búa allir i sama húsi
og eiga allt saman. Samtökin hafa
tekjur af þakefnafyrirtæki, hljóðveri
og trésmíðaverkstæði og þar eru
líka atvinnumöguleikar fyrir fólkið
sem býr hjá þeim.
Glenn Kaiser Band er blús/rokk-
hljómsveit og samanstendur af
þeim Glenn Kaiser sem syngur og
spilar á gítar, Roy Montroy á bassa
og Ed Bialach á trommur. Nýjasti
diskur þeirra GKB Live er tekinn
upp á 5 tónleikum sem haldnir voru
í apríl, maí og júni 2004 og tekst
að fanga þá stemmningu sem
myndast á tónleikum hjá þeim.
Gestur á tónleikunum er gítarsnill-
ingurinn Dave Beegle.
Lagalisti:
1 Torch
2 Crossroads
3 If I Leave This World Tomorrow
4 NickofTime
5 Whisper
6 RunawayTrain
7 Winter Sun
8 The Day Love Died
9 Do Lord
10 Full Time Love
11 In the Spul of Man
12 Queen of My Heart
Heimildir:
Mbl.is „Viö viljum bara hjálpa" eftir Árna
Matthíasson
www.glennkaiser.com
Efni frá Glenn og Wendi Kaiser
Höfundur rekur netverslunina hljomar.is
45