Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.06.2005, Side 47

Bjarmi - 01.06.2005, Side 47
náttúrufræðingar, var sátt við þróunarkenninguna á árunum kringum 1870, hvers vegna er and- staðan svo mikil meðal kristins fólks í Bandaríkjunum í dag, rúmri öld síðar þar sem barist er um námsefni í líffræði? Hann bendirá að menn hafi bætt á þróunarkenninguna ýmiss konar hugmyndafræðilegum viðhengjum frá því hún kom fram. Herbert Sþencer (1820-1903) var vinsæll þróunarsinni í Banda- ríkjunum undir lok 19. aldar og hafði mikil áhrif innan félagsvísind- anna. Hann seldi fjölda bóka og reyndi að gera þróunarkenninguna að „kenningu um allt mögulegt" þar sem heimurinn átti að stefna að algjörri fullkomnun. Spencer, en ekki Darwin, kom fram með hugs- unina að „hinir hæfustu lifa af,“ hugsun sem oft hefur verið misnot- uð, t.d. í báðum heimsstyrjöldun- um. í dag nota ýmsir þróunarkenn- ingu Darwins til að styrkja sig i guðleysi sínu og tefla þróun fram sem andkristinni hugsun. En sú staðreynd að menn hafa réttlætt mjög ólíkar heimspekistefnur og hugmyndafræði eins og kommún- isma, kapítalisma, kynþáttafordóma og stríðsrekstur og fleira með þró- unarkenningunni, minnir okkur á þá hættu að misnota vísindakenningar á sviðum þar sem þær hafa ekkert um málið að segja. Getum við trúað á þróun? Alexander spyr: Er unnt að vera kristinn og trúa á þróun? Hann svarar: Að sjálfsögðu, ef þróunar- kenning er ekki notuð sem verald- leg skýring og grunnur mannlegrar heimspeki, heldur líffræðileg kenn- ing sem útskýrt geti hvernig Guð skapaði alla lifandi hluti. Þetta útskýrir hvers vegna flestir kristnir líffræðingar eiga ekki í neinum vandræðum með þróunarkenningu- na og að trúa á Guð sem skapara. Hlutverk vísindamannsins er að lýsa verki Guðs í sköpunarverkinu eins nákvæmlega og við getum. Guð kallar okkur til að segja sannleikann. Ef þróunarkenning útskýrir best fjölbreytileika náttúr- unnar er það gott mál - það er ekki okkar að ákveða hvernig Guð hefði átt að hafa gert þetta allt. Þróun tengir tvennt saman. í fyrsta lagi að fjölbreytnin liggi í genum og erfðaferlinu og í öðru lagi hvernig ferlið hefur verið í raun. Á heildina litið er þetta nokkuð ákveðið ferli og mjög fjarlægt allri hugsun um tilviljun. Þróunarfræð- ingurinn Simon Conway Morris bendir á að ef ferlið væri látið endurtaka sig myndum við sitja eftir mjög svipaða niðurstöðu og við höfum nú þegar. Sem dæmi má nefna augu. Þau hafa þróast mörgum sinnum, óháð mörgum öðrum tegundum. Það gerist varla nema að baki standi skapandi Guð sem hefur tilgang og markmið með sköpun sinni. Biblían og vísindatextar Alexander bendir á að kristið fólk eigi ekki að misnota Biblíuna með því að reyna að láta hana gegna hlutverki vísindatexta. Vísindastörf eins og við þekkjum þau komu ekki til fyrr en þúsundum ára eftir að fyrstu kaflar 1. Móse- bókar voru skrifaðir. Þess vegna er það tímaskekkja að setja biblíutexta til jafns við ritgerðir í visindaritum samtímans. Sköpunarsögur Biblíunnar segja okkur tímalausan sannleika um tilgang Guðs með sköpun sinni, einkum mann- eskjuna. Hlutverk visindamanna er að komast að þvi hvemig Guð vinnur sem skapari. Alexander segir áfram: „Sumt kristið fólk álítur að trú á þróun dragi úr sérstöðu mannkyns og raunveruleika hins illa og trú á fall mannsins. Svo er ekki. 1. Mósebók dregur upp mynd af Adam og Evu sem trúlega voru neolíthískir bænd- ur. Það er alls ekki ólíklegt að Guð hafi gefið fulltrúum Homo sapiens, sem þegar lifðu í Mið-Austurlönd- um sína mynd til að skapa það sem John Stott kallar Homo divinus, fyrstu manneskjurnar sem nutu persónulegs samfélags við Guð, en sem síðan féllu frá nánu samfélagi sínu við hann (1. Mós. 3:8). Allir sem óhlýðnast Guði og treysta á eigin visku í stað lögmáls Guðs endurtaka það fall í eigin lífi (Esekíel. 28:11-19). Kristnir líffræðingar í dag fyllast undrun og lotningu þegar þeir uppgötva sköpunarverk Guðs í daglegum rannsóknum sínum. Við leitum ekki að Guði í þeim götum sem eru á vísindalegri þekkingu okkar, en í staðinn lofum við Guð fyrir skikkan sköpunar hans, þar á meðal það ferli þróunar sem Guð hefur notað til að ná fram markmiði sínu með sköpunina." Vandinn sem kristallast í umræðum um þróun og sköpun er spurningin hvort vísindaleg kenning náttúruvísindanna geti nokkuð sagt til um hvort Guð sé til eða ekki. Slikri spurningu verður vart svarað nema í trú - eða vantrú. Vandinn verður heldur ekki leystur með því að sanna að heimurinn sé skap- aður af Guði. Slík kenning yrði alltaf undirorpin gagnrýni og myndi ekki standa neitt fastari fótum en hver önnur kenning vísindanna. Höfundur er ritstjóri Bjarma ragnar@sik.is Heimildir: http://www.christianitytoday.com/ct/200 5/006/16.30.html http://www.mbl.is/rn m/f retti r/f rett. ht m I ? nid=3419127;restrict=1 http://www.dr.dk/Videnskab/Emner/Sam fund+kultur+ og+fremtid/jsssvsdr- wn.htm Alexander, Denis R: Can a Christian believe in evolution? Idea. May/June 2005 og www.cis.org.uk.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.