Búnaðarrit - 01.06.1977, Page 134
674
BÚNAÐARRIT
ár. Ein meginástæða þessarar fækkunar er, að nú
eru skoðaðar sérstaklega kvigur undan ungu naut-
unum, sem eru í afkvæmarannsókn, og eru þær ekki
laldar með sýndum kúm. Skoðaðar voru um 600
kvígur á Norðurlandi samhliða sýningum, en þeirra
verður ekki getið hér. Einnig eru kýrnar valdar til
sýningar á öðrum forsendum en áður, og er úrvalið
nokkuð strangara en verið hefur. Þá hefur sýnendum
fækkað nokkuð eða um 42 frá næstu sýningu áður.
Þó er þetta nokkuð misjafnt eftir svæðum. Á vestan-
verðu svæðinu fjölgar bæði sýndum kúm og sýnend-
um, en um nokkra fækkun er að ræða austanmegin,
þar sem meginliluti kúnna er.
í Vestur-Húnavatnssýslu var farið á nokkra bæi og
kýr skoðaðar án þess að viðurkenning væri veitt, þar
sem lítil sem engin reynsla var komin á kýrnar, enda
liafði skýrsluhald hafist að nýju eftir nokkurra ára
hlé. í Austur-Húnavalnssýslu var sýnd 101 kýr hjá
36 eigendum í stað 103 frá 28 búum á næstu sýningu
áður. í Skagafirði voru sýndar 149 kýr á 49 lnium i
stað 127 frá 36 eigendum árið 1972.
í Eyjafirði voru skoðaðar 683 kýr á 164 búum, en
árið 1972 voru skoðaðar mun fleiri kýr eða 1468 á
201 búi. Á starfssvæði Bsb. S-Þingeyinga voru skoð-
aðar 233 kýr hjá 97 eigendum í stað 458 á 123 búum
árið 1972. Flestar kýr voru sýndar i Öngulsstaða-
hreppi eins og oft áður eða 130. í Svarfaðardal voru
skoðaðar 118.
Af kúm lilutu 595 I. verðlaun eða 51,0%, II. verð-
laun hlutu 264 eða 22,6%, III. verðlaun 106 eða 9,1%
og engin verðlaun 201 eða 17,3%. Hlutfall I. verð-
launa kúnna er nú nokkuð lægra en á næstu sýningu
á undan. Sérstaklega var það áberandi, að lcýr næðu
ekki I. verðlauna viðurkenningu vegna þess, að þær