Fréttablaðið - 09.01.2010, Page 4
4 9. janúar 2010 LAUGARDAGUR
GENGIÐ 01.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,3709
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,91 126,51
201,65 202,63
180,03 181,03
24,190 24,332
22,019 22,149
17,620 17,724
1,3500 1,3578
196,35 197,53
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
STJÓRNMÁL Vextir þeir sem íslenska ríkinu
standa til boða í samningum við Breta og
Hollendinga vegna Icesave-skuldbindinga
ríkisins byggja að mestu á fjármagnskostn-
aði landanna. Þetta kom fram í símaviðtali
sem Íslensk-ameríska viðskiptaráðið skipu-
lagði við Gylfa Magnússon viðskiptaráð-
herra á fimmtudag.
Í umræðu um Icesave-samninga ríkis-
ins hefur því stundum verið haldið fram að
vextir þeir sem Íslendingar þurfi að greiða
séu fram úr hófi háir miðað við þá vexti
sem almennt sé miðað við í alþjóðaviðskipt-
um um þessar mundir. Gert er ráð fyrir að
íslenska ríkið greiði 5,55 prósenta vexti af
lánum Breta og Hollendinga, sem þegar hafa
greitt innstæðueigendum í löndum sínum
inneignir tengdar Icesave. Vaxtakjörin eru
þau sömu í báðum samningum sem gerðir
hafa verið við löndin, en lög þau sem Alþingi
samþykkti í ágúst taka til fyrri samnings-
ins, og þau lög sem nú bíða þjóðaratkvæða-
greiðslu taka til seinni samningsins.
Vaxtakjörin sagði Gylfi að byggðu á
útreikningi vaxtakjara á skuldabréfum
Breta og Hollendinga til tíu ára, eða lang-
tímavaxtakjörum þeim sem ríkjunum standa
til boða, að viðbættu lágu álagi. „Þá ætti
að hafa í huga að þetta eru hámarksvextir
sem ríkið kann að þurfa að borga, því land-
ið hefur á hverjum tíma rétt til að greiða
upp lánið að fullu ef hagstæðari fjármögnun
fengist annars staðar.“
Gylfi var á símafundinum líka spurður
út í væntar heimtur af eignum Landsbank-
ans, kostnað ríkisins og vaxtakjör í samn-
ingum vegna Icesave. „Grunnupphæðir eru
vel þekktar,“ sagði hann og rakti hvernig
Bretar hefðu á annan veginn lagt út um 2,3
milljarða breskra punda og Hollendingar 1,3
milljarða evra hins vegar. Heildarupphæðin
nemi um fjórum milljörðum evra. Síðan ráð-
ist af heimtum verðmæta úr Landsbankan-
um hversu stór hluti falli á íslenska ríkið, en
við þá upphæð bætast svo vextirnir vegna
lána Breta og Hollendinga.
Verstu spár segir hann gera ráð fyrir 75
prósenta heimtum verðmæta, en þá myndu
alls um tveir milljarðar evra falla á ríkið,
helmingurinn vextir. „En það er byggt á
mjög varlegu fyrsta mati skilanefndar bank-
ans. Raunhæfara er að endurheimtur eigna
nemi 90 prósentum hið minnsta.“
olikr@frettabladid.is
Vextir vegna Icesave byggja
á kostnaði viðsemjendanna
Vaxtakjör ríkisins í samningum við Breta og Hollendinga vegna Icesave byggja á langtímavöxtum sem
þessum löndum standa til boða að viðbættu lágu álagi. Þetta kom fram á símafundi viðskiptaráðherra.
ÖRYGGISMÁL Slysavarnafélag-
ið Landsbjörg varar við þeirri
hættu sem hlýnandi veður hefur
í för með sér eftir langvarandi
vetrarríki. Félagið hvetur húseig-
endur og verslunareigendur að
hreinsa burtu grýlukerti og snjó-
þekjur.
Víða um land hefur snjó kyngt
niður og safnast fyrir á húsþök-
um í miklu magni, síðan hafa
grýlukerti myndast og hanga
niður af húsþökunum. Með hækk-
andi hitastigi gefur snjórinn eftir
og stórar snjóhengjur með grýlu-
kertum geta fallið úr þó nokkurri
hæð á þá sem undir eru. Mesta
hættan er fyrir gangandi fólk þar
sem gangstéttir eða bílastæði eru
undir þakbrúninni. - shá
Slysavarnafélagið Landsbjörg:
Vara við hættu
af grýlukertum
FRÁ ÍSAFIRÐI Víða um land skapast
hætta í hlákunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BLAÐAMANNA-
FUNDUR Í DESEM-
BER Steingrímur
J. Sigfússon
fjármálaráðherra,
Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætis-
ráðherra og Gylfi
Magnússon við-
skiptaráðherra á
blaðamannafundi
sem haldinn var í
desemberbyrjun
og fjallaði um
skilmála vegna
Icesave.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í umfjöllun Gauta B. Eggerts-
sonar um lán vegna Icesave á
vef hans er bent á að vextir sem
ríkjum Evrópu og Bandaríkjun-
um standi til boða á lánum til
10 ára séu í sögulegu lágmarki
og hlaupi á 3,5 til 4,0 prósenta.
Í því samhengi skipti máli að
lánin til Íslands séu til 15 ára.
Vextir til þessara ríkja hafi síðast
í fyrra verið um eða yfir fimm
prósent.
„Ef miðað er við tveggja til
þriggja prósenta verðbólgu á
þessum tíma eru raunvextir á
Icesave í kringum þrjú til fjögur
prósent. Mér sýnist það töluvert
lægra en raunvextir á verð-
tryggðum ríkisvíxlum á Íslandi,“
skrifar Gauti á vef sinn.
Fjárhæðin sem Ísland þarf að
endurgreiða nemur 1.329 millj-
ónum evra til Hollands og 2.350
milljónum punda til Bretlands.
Gert er ráð fyrir ársfjórðungs-
legum greiðslum sem hefjist í
september 2016 og ljúki í júní
2024.
Hvenær sem er á lánstíman-
um er hægt að fara fram á leng-
ingu endurgreiðslutíma um sex
ár, til ársins 2030, en ef lánið
hefur ekki verið endurgreitt að
fullu fyrir árið 2024 framlengist
það sjálfkrafa til ársins 2030.
Tryggingarsjóði er svo, hvenær
sem er á lánstímanum, heimilt
að greiða niður lán Hollendinga
og Breta í heild eða að hluta.
LÁNAKJÖR VEGNA ICESAVE-SAMNINGA
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin getur vel
við unað að halda meirihluta kjós-
enda að baki sér, eins og fram
kemur í skoðanakönnun Frétta-
blaðsins, segir Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær njóta stjórnarflokkarn-
ir stuðnings rúmlega 53 prósenta
kjósenda og myndu samanlagt
halda óbreyttum meirihluta þing-
manna yrðu niðurstöður kosninga
í takt við könnun blaðsins.
Gunnar Helgi segir að aðstand-
endur ríkisstjórnarinnar hljóti að
vera ánægðir með þessa niður-
stöðu. Þau mál sem stjórnin hafi
unnið í undanfarið, niðurskurður,
skattahækkanir og Icesave, séu
fráleitt fallin til vinsælda.
Á hinn bóginn hljóta niðurstöð-
urnar að vera stjórnarandstöðu-
flokkunum nokkurt áhyggjuefni,
segir Gunnar Helgi. Þeir komist
ekkert áleiðis þrátt fyrir óvinsæl
mál ríkisstjórnarinnar, og hljóti í
framhaldinu að reyna að átta sig á
hvað þeir séu að gera vitlaust.
Vinstri græn bæta við sig
umtalsverðu fylgi, og mælast með
stuðning tæplega fjórðungs kjós-
enda í könnun Fréttablaðsins.
Gunnar Helgi segir erfitt að ráða
í það hvað dragi fólk að flokknum.
Líklegt megi telja að úr því megi
lesa sterka stöðu Steingríms J. Sig-
fússonar, formanns flokksins.
Ólíklegt má telja að klofning-
ur í flokknum undanfarið trekki
að stuðning, enda er sundurlyndi
yfirleitt til þess að skaða flokka,
segir Gunnar Helgi. - bj
Könnun sýnir sterka stöðu formanns VG segir prófessor í stjórnmálafræði:
Stjórnin getur vel við unað
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
Telur niðurstöð-
ur könnunarinn-
ar hljóta að vera
stjórnarandstöð-
unni nokkurt
áhyggjuefni.
Stal fyrir tugi þúsunda
Þrítug kona hefur verið ákærð fyrir að
stela í tvígang úr Nóatúni á Selfossi. Í
fyrra skiptið stal hún vörum fyrir nær
22 þúsund og í síðara skiptið varningi
fyrir tæp 16 þúsund.
DÓMSTÓLAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
8°
-2°
-3°
-1°
0°
-3°
-5°
0°
0°
20°
0°
8°
0°
7°
-9°
-3°
15°
-4°
Á MORGUN
Fremur hægur vindur en
strekkingur vestast.
MÁNUDAGUR
Víðast 3-8 m/s.
7
6
6
5
4
6
3
6
4
2
8
11
13
15
16
10
9
8
10
7
18
15
6
5
4
-1
4
4
2 -2
3
-3
MILT UM HELGINA
Það verður víða
strekkingsvindur
og sums staðar
allhvasst fram yfi r
hádegi en lægir
þegar kemur fram
á kvöldið, vestan til
í fyrstu og dregur
einnig úr vætunni.
Á morgun verður
lítils háttar rigning
eða súld með
suður- og vestur-
ströndinni.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
BRUSSEL, AP Evrópusamband-
ið hefur sagst ætla að fylgjast
með fyrirætlunum Frakka um
að skattleggja auglýsingahagnað
Google og beina fénu til tónlist-
armanna.
Talsmaður ESB, Jonathan
Todd, segir að málið snúist um
hvort skattheimta ríkis fyrir
einkafyrirtæki geti skaðað sam-
keppni. Forseti Frakklands,
Nicolas Sarkozy, hefur ekki gefið
upp hvort hann styðji Google-
skattinn en er þess samþykk-
ur að yfirburðastaða Google á
markaði sé skoðuð í þessu augna-
miði.
- shá
Auglýsingagróði til skoðunar:
ESB fylgist með
skatti á Google