Fréttablaðið - 13.02.2010, Blaðsíða 39
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Hugbúnaðarþróun
Hjá Libra ehf. starfa 25 starfsmenn.
Við byggjum á yfir 13 ára grunni
og erum leiðandi hugbúnaðar-
fyrirtæki á innlendum fjármála-
markaði. Megin kerfi okkar eru
Libra Loan, lánaumsýslukerfi,
og Libra Securities,
verðbréfaumsýslukerfi.
Við leitum að efnilegum forriturum til að vinna við greiningu,
hönnun, forritun og prófanir á Libra hugbúnaðarkerfum
fyrir fjármálamarkaðinn.
Starfsumsókn og ferilskrá sendist á jonpall@librasoft.is fyrir 28. febrúar.
Nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 595-8715
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræða
eða sambærileg menntun
- Þekking og reynsla á SQL og .NET æskileg
- Öguð og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í hópi
Við bjóðum
- Krefjandi verkefni
- Þátttöku í samhentum hópi
- Starfsstöð í Kópavogi
eða á Akureyri
Framkvæmdastjóri
Ernst & Young hf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að stýra daglegri starfsemi
fyrirtækisins.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Dagleg framkvæmdastjórn með áherslu á stjórnun starfsmannamála, fjármála og markaðsmála
• Markmiðasetning og stefnumótun í samvinnu við stjórn
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Skipulags- og leiðtogahæfileikar
• Frumkvæði og samskiptahæfni
• Reynsla af stjórnun er kostur
Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Allar fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Ernst & Young er í fararbroddi um allan heim í verkefnum á sviði endurskoðunar, skattamála og
viðskiptaráðgjafar. Starfsfólk okkar, 144.000 manns um víða veröld, hefur sameiginlegt gildismat
og óbilandi áhuga á að veita gæðaþjónustu. Við skiptum máli með því að aðstoða starfsfólk okkar,
viðskiptavini og samfélögin sem við störfum í við að nýta möguleika sína.
Viltu skipta máli?