Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 12
12 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
RÚLLAÐU UPP
MILLJÖRÐUM
FERÐAÞJÓNUSTA Ljósmyndir frá
Íslandi prýða nú eina fjölförnustu
göngugötu Mílanóborgar, Corso
Vittorio Emanuele. Ljósmynda-
sýningin var opnuð á Íslandsdegi
í Mílanó síðastliðinn föstudag,
af þeim Kristjáni L. Möller sam-
gönguráðherra og Massimiliano
Orsatti, yfirmanni markaðs- og
ferðamála borgarinnar.
Alls tóku fulltrúar 23 íslenskra
fyrirtækja, stofnana og samtaka
þátt í Íslandsdeginum sem er sá
fyrsti í röð margra sem Mílanó-
borg hefur boðað til af því tilefni
að borginni hefur verið falið að
halda heimssýninguna 2015.
Sigurður Þorsteinsson hönnuður
hafði veg og vanda af vali Íslands-
myndanna en flestar þeirra eru
eftir ítölsku ljósmyndarana Marco
Stoppato og Amanda Ronzoni.
Um göngugötuna fer allt að ein
milljón manna þessar tæplega
tvær vikur sem sýningin stend-
ur uppi. Myndunum, þrjátíu stór-
um ásamt fjölda smærri, er komið
fyrir á fimmtán stórum stönd-
um sem útbúnir eru sólarsellum,
þannig að myndirnar eru upplýst-
ar að næturlagi.
Utanríkisráðuneytið stóð fyrir
fjölmennu málþingi á Íslandsdeg-
inum. Tíu ferðaþjónustufyrirtæki
kynntu þar starfsemi sína. - shá
Ein milljón manna á þess kost að skoða sýningu á frægri göngugötu á Ítalíu:
Ísland sett í öndvegi í Mílanó
FRÁ MÍLANÓ Ljósmyndasýningin er
upplýst að næturlagi og til þess er nýtt
orka sólarinnar. MYND/ÚTFLUTNINGSRÁÐ
VINNUMARKAÐUR Virkir og óvirkir atvinnuleitend-
ur eru leiddir saman í nýju verkefni Rauða krossins
sem ber heitið Félagsvinir atvinnuleitenda. Markmið
verkefnisins er að virkja þá sem hafa verið atvinnu-
lausir lengi.
Rauði krossinn hélt námskeið fyrir sjálfboðaliða í
janúar, þar sem þeim var meðal annars veitt fræðsla
og þjálfun til að leiðbeina öðrum atvinnuleitendum í
starfsleit sinni. Áhugasamir sjálfboðaliðar voru boð-
aðir í viðtöl og voru sautján valdir úr hópnum til að
sitja fyrsta námskeiðið. Þeir hafa allir verið virkir í
atvinnuleit og sjálfboðastarfi.
Að sögn Fjólu Einarsdóttur hjá Rauða krossinum
hrynur sjálfstraust atvinnulausra oft niður eftir sex
mánuði eða svo. „Það er mjög mikilvægt að byggja
það upp aftur. Margt er í boði fyrir atvinnulausa, til
dæmis í fullorðinsfræðslu, og félagsvinaverkefnið er
leið til að benda á það.“ Samstarfsmenn Rauða kross-
ins í verkefninu eru Efling, Iðan, Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins, Fræðsluskrifstofa Rafiðnar, Mímir
og Vinnumálastofnun.
Í dag klukkan hálf eitt er fundur fyrir atvinnu-
lausa í Rauðakrosshúsinu Borgartúni 25 og þar verða
umræður um líðan atvinnuleitenda eftir langa leit að
vinnu, þangað eru allir velkomnir. Sjálfboðaliðar úr
hópi Félagsvina stýra fundinum. - sbt
Félagsvinakerfi Rauða krossins til uppbyggingar atvinnulausum:
Sjálfstraust atvinnulausra byggt upp
FJÓLA EINARSDÓTTIR Margs konar námskeið og fræðsla er í
boði fyrir atvinnulausa sem mikilvægt er að þeir nýti sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VÉFRÉTT Í LEIÐSLU Ein af opinberum
spákonum tíbetsku útlagastjórnarinnar
á Indlandi var í transi þegar hún mætti
til hátíðarhalda í Dhamsala.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl-
maður hefur verið ákærður
fyrir að úða með úðabrúsum
á vegg í undirgöngum undir
Miklubraut við Lönguhlíð í
Reykjavík.
Maðurinn úðaði í ágúst á síð-
asta ári stóra mynd í ljósbláum
lit af andliti og hálsi manns og
textanum „OH ÉG ER STERK-
UR“ fyrir framan andlitið. Aðra
minni mynd úðaði maðurinn af
augum, nefi og munni manns
með svörtum og bláum útlínum
og gulum lit að innan, og text-
anum „Yo HOHies“ fyrir ofan
með rauðum lit. Loks úðaði hann
risastóra mynd af þremur fíg-
úrum og tveimur táknum fyrir
aftan þær í svörtum og bláum
litum. Reykjavíkurborg krefur
manninn um skaðabætur.
- jss
Úðamaður ákærður:
Þrjár úðamynd-
ir í undirgöng
LÖGREGLUMÁL Ein líkamsárás var
nýverið kærð til lögreglunnar í
Vestmannaeyjum. Hún átti sér
stað fyrir utan heimahús.
Þar hafði maður sem vildi kom-
ast inn til fyrrverandi sambýlis-
konu sinnar lent í útistöðum við
mann sem reyndi að koma í veg
fyrir það. Endaði þessi ágreining-
ur með handalögmálum án þess
þó að nokkur hafi hlotið alvarlega
áverka. Jafnframt braut maður-
inn allar rúður í útidyrahurð húss
sambýliskonunnar fyrrverandi.
- jss
Líkamsárás kærð í Eyjum:
Tveir tókust á
við útidyr konu
UTANRÍKISMÁL „Icesave-deilan
varðar lög og rétt,“ segir í til-
kynningu nýrra samtaka sem
nefnast Þjóðarheiður – samtök
gegn Icesave.
Í yfirlýsingu samtakanna segir
að mistök hafi verið hjá stjórn-
völdum að gera ágreining um
málefni einkabanka að pólitísku
og þjóðréttarlegu samningamáli.
„Um Icesave-útibú Landsbank-
ans gilda skýrar lagareglur og
þjóðin á heimtingu á, að stjórn-
völd gæti þeirra hagsmuna sem
þeim er falið að gæta, með heiður
og sæmd almennings að leiðar-
ljósi.“
Stjórn samtakanna skipa Elle
Ericsson, Guðni Karl Harðarson,
Jón Valur Jensson, Loftur Altice
Þorsteinsson, María Jónasdóttir
og Theódór Norðkvist.
- óká
Samtökin Þjóðarheiður:
Icesave varðar
við lög og rétt