Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 34
 3. MARS 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● starfsmenntun Símenntunarmiðstöð Eyja- fjarðar hefur verið starfandi frá árinu 2000. Samstarfsað- ilar eru allir þeir sem vinna að eða bjóða upp á fræðslu, innan eða utan hefðbundinna menntastofnana, hvort sem um er að ræða starfsmenntun, tómstundanám, bóklega eða verklega fræðslu. Í námskrá SÍMEY er meðal ann- ars að finna starfsmenntunar- námskeið í ferðaþjónustu og verkefnastjórnun en alls eru tólf starfsmenntunarnámskeið í boði á þessari önn. „Námskeiðin hjá okkur eru mjög fjölbreytt, almenn stjórnun, verkefnastjórnun og einnig bjóð- um við upp á námskeið sem heita félagsliðabrú, leikskólabrú og kennslufræði fullorðinna. Þá eru í námskránni námskeið í samtals- og viðtalstækni og skrifstofuskól- inn svo eitthvað sé nefnt,“ segir Erla Björg Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri SÍMEY. Hún segir stærsta hópinn sem sækir námskeiðin vera á aldrin- um 30 til 55 ára. Flestir koma frá Akureyri en miðstöðin er auk þess með verkefnastjóra í fullu starfi í námsveri á Dalvík. Eins eru haldin námskeið á Grenivík og Ólafsfirði og reynt er að ná til sem flestra og svara eftirspurn. „Við erum í miklu samstarfi við atvinnulífið og fyrirtæki sem starfa á Eyjafjarðarsvæð- inu. Fulltrúar þeirra hafa sam- band við okkur svo við höfum að- eins innsýn í hvað þau eru að fást við hverju sinni og það auðveldar okkur að vera með það í boði sem vantar hverju sinni. Starfsmennt- unarnámskeiðin eru flest miðuð að þörfum fólks sem er í vinnu. Þau eru flest kennd seinnipartinn, á kvöldin eða um helgar og eru mis- löng, allt frá tveimur kvöldum og upp í námskeið sem spanna nokkr- ar annir. Það hefur orðið breyting hjá okkur milli anna. Starfsmenntunin var alltaf stærsti námskeiðsflokk- urinn hjá okkur en nú hefur ásókn í vottaðar námsleiðir Fræðslumið- stöðvar atvinnulífsins aukist svo mikið að flokkurinn almenn hæfni hefur sigið fram úr. Vottuðu náms- leiðirnar eru mjög fjölbreyttar en þær má meta til eininga á fram- haldsskólastigi og þar er meðal annars verið að kenna íslensku, ensku og stærðfræði og fullorð- ið fólk sem ekki kláraði fram- haldsskólann kemur nú mikið til okkar.“ Upplýsingar um þau námskeið sem Símenntunarmiðstöð Eyja- fjarðar býður upp á er m.a. að finna á heimasíðunni: www.simey. is. - rat Eigum gott samstarf við atvinnulífið Erla Björg Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar. MYND/ERLA BJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR Starfsmenntunarnámskeið SÍMEY eru sótt af stórum hópi fólks af Eyjafjarðarsvæðinu. MYND/SÍMEY ● ÍSLANDSMÓT IÐN- OG STARFSGREINA fer fram í Smára- lindinni fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. mars. Á Íslandsmótinu verður keppt í samtals fimmtán starfsgreinum og sýning verður í öðrum fimmtán greinum. Vegna mikils áhuga á þátt- töku hefur þurft að halda forkeppni í nokkrum greinum, til að mynda í matreiðslu og framreiðslu. Sigurvegarar í nemakeppninni í Smáralindinni munu taka þátt í Nor- rænu nemakeppninni sem verður haldin í Noregi í apríl næstkomandi. ● RÉTTUR EINYRKJA TIL ATVINNULEYS- ISBÓTA Í lögum um atvinnuleysistryggingar er gert ráð fyrir því að sjálfstætt starfandi einstakling- ur teljist án atvinnu hafi hann stöðvað rekstur sinn og kunni því að eiga rétt á atvinnuleysisbótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Rétt er að taka fram að Atvinnuleysistryggingasjóður gerir ekki kröfu um að viðkomandi hafi lokað virðisaukaskattsnúmeri sínu til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum, heldur nægir að hann tilkynni til launagreið- endaskrá ríkisskattstjóra að reksturinn hafi verið stöðvaður. ● ÍSLENSKAN ÆFÐ Íslenskunámskeið verða nú á útmánuðum og fram á vor á vegum Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Kennt verður í Garði, Grindavík, Reykjanesbæ og Sandgerði. Boðið er upp á tvo flokka með mismunandi þungu náms- efni á öllum stöðunum, ef næg þátttaka fæst og fjóra flokka í Reykjanesbæ. Lögð verður áhersla á talað mál til daglegrar notkunar með umræðum í tímum. Einnig verða allir þættir tungumálsins þjálfaðir: skilningur, hlustun, tal, lestur og ritun. Jafnframt verður tilsögn í ís- lenskri málfræði. Námskeiðin verða á tímabil- inu frá 15. mars til 19. maí og byrja þegar næg þátttaka næst. Heimild/www.mss.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.