Fréttablaðið - 03.03.2010, Side 54
26 3. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. ofsi, 6. ógrynni, 8. sjáðu, 9. storm-
ur, 11. í röð, 12. fæla, 14. slór, 16. í
röð, 17. skordýr, 18. angra, 20. til, 21.
vaða.
LÓÐRÉTT
1. harmur, 3. í röð, 4. smjaðra, 5.
endir, 7. útskúfa, 10. belja, 13. mærð,
15. mæla dýpt, 16. ris, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ærsl, 6. of, 8. sko, 9. rok,
11. jk, 12. grýla, 14. droll, 16. þæ, 17.
fló, 18. ama, 20. að, 21. kafa.
LÓÐRÉTT: 1. sorg, 3. rs, 4. skjalla, 5.
lok, 7. fordæma, 10. kýr, 13. lof, 15.
lóða, 16. þak, 19. af.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Erfðasjúkdómurinn CTD.
2 Tveir.
3 Sveitarfélögin eru 77.
„Ég ætla að vera einlægur og dreg
ekkert undan. Það er það sem
bókin gengur út á og það sem vant-
ar á Íslandi,“ segir handboltahetj-
an Logi Geirsson.
Logi sendir frá sér bók á afmæl-
isdaginn sinn, 10. október. Bókin
kemur því út 10.10.́ 10, en þá verða
einmitt tíu ár síðan Logi hélt til
Þýskalands og gerðist atvinnu-
maður í handbolta. „Almenning-
ur sér alltaf bara toppinn á ísjak-
anum, en við ætlum að sýna allan
ísjakann í bókinni,“ segir Logi.
Henry Birgir Gunnarsson, blaða-
maður á Fréttablaðinu, skrifar
bókina með honum. „Henry á eftir
að draga allt upp úr mér. Ég held
að við tveir saman eigum eftir að
gera þessa bók ógleymanlega. Það
er ekkert flóknara.“
Spurður hvort bókin eigi eftir að
koma óþægilega við einhverja seg-
ist Logi ekki ætla að tala illa um
neinn enda sé það ekki markmið-
ið með bókinni „Ég ætla að varpa
ljósi á hvað er að gerast bak við
tjöldin,“ segir hann. „Ég tala um
landsliðið og segi alls konar sögur
sem ég myndi aldrei skrifa undir
venjulegum kringumstæðum.“ Og
Logi heldur áfram: „Ég ætla að
segja frá öllu eins og það er. Til
dæmis launamálum og hvernig
allt fer fram – hvernig handbolta-
heimurinn getur líka verið svart-
ur. Bókin á að svipta hulunni af
því sem er að gerast. Það á eftir
að gera bókina eftirsóknarverða.
Ég ætla ekki að lofa miklu, en
það gerast hlutir sem eiga eftir
að hneyksla fólk og fá það til að
springa úr hlátri.“
Logi hefur verið meiddur und-
anfarna mánuði og lítið komið
við sögu í þýsku úrvalsdeildinni
í vetur. Hann spilaði einnig lítið
með landsliðinu á Evrópumótinu í
handbolta í janúar. „Ég nefni þetta
allt erfiðustu tímana,“ segir Logi.
„Hvernig fólk lætur við mann
þegar maður spilar vel. Þá eru
allir að taka í höndina á manni og
dingla heima og fá kaffi. En þegar
maður er meiddur og ekkert að
spila þá heilsar fólk manni ekki.“
Logi segir að bókin verði
skemmtilega upp sett, með nóg af
myndum og öðru aukaefni – meira
að segja tölvupósti frá hinum
og þessum. „Það er búið að vera
draumur minn að skrifa bók og
þetta er fullkomin tímasetning,“
segir Logi. „Það er ákveðnum
kafla í lífi mínu að ljúka nú þegar
ég er að yfirgefa Lemgo. Ég veit að
þetta á eftir að vera bók sem fólk
mun tala um, það er ekki spurn-
ing.“ atlifannar@frettabladid.is
LOGI GEIRSSON: ÉG ÆTLA AÐ SEGJA FRÁ ÖLLU EINS OG ÞAÐ ER
Dregur ekkert undan í
krassandi bók um líf sitt
SENDIR FRÁ SÉR BÓK Logi lofar að draga ekkert undan í bók sem hann gefur út á
afmælisdaginn sinn í október. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Það er Noodle Station á Skóla-
vörðustígnum, ég er eiginlega
orðinn háður þeim stað, fer
þangað oft í viku.“
Daníel Oliver tónlistarmaður.
„Það verður náttúrlega vopnaleit við hliðið. Það þarf
enginn að óttast stungur eða neitt,“ segir rapparinn
Móri.
Hann heldur styrktartónleika á Sódómu Reykja-
vík í kvöld til að borga væntanlegan lögfræðikostn-
að vegna átaka hans og Erps Eyvindarsonar þar
sem hnífur var dreginn á loft. „Ég er atvinnulaus
og get ekki borgað lögfræðingnum,“ segir hann og
hvetur rappáhugamenn til að mæta á tónleikana,
þar á meðal Erp. „Erpur og allir úr Rottweiler eru
velkomnir svo lengi sem þeir borga aðgangseyrinn
og styrkja gott málefni.“
Móri ætlar að syngja lög af fyrstu plötu sinni á
tónleikunum sem verður einmitt endurútgefin á
Gogoyoko.com í dag. Einnig verða nokkur ný lög
sett í sölu á síðunni, sem Móri mun einnig syngja í
kvöld. Hann segist hafa verið á fullu að semja tón-
list að undanförnu en átta ár eru liðin síðan frum-
burðurinn Móri kom út. „Ég á efni í svona þrjár
plötur en ég er búinn að vera vinnandi og í skóla og
erlendis. Maður hefur ekkert haft tíma fyrir tón-
list því maður hefur verið að reyna að lifa eðlilegu
lífi. Síðan kemur Erpur og fer að hrauna yfir mann
í fjölmiðlum.“ Hann viðurkennir að hlutirnir hafi
farið úr böndunum þegar þeir hittust en vill annars
ekkert tjá sig um málið.
Síðustu tónleikar Móra voru í nóvember í fyrra
á Jacobsen en hann stefnir á að vera duglegri við
tónleikahald á næstunni. Moppa með gylltri áletr-
un verður í boði fyrir fyrstu tíu gestina sem mæta á
Sódómu í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 21 og
er miðaverð 1.000 krónur. - fb
Vopnaleit á tónleikum Móra
ENGAR STUNGUR Móri segir að enginn þurfi að óttast stungur
á styrktartónleikum hans í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jóhann Ævar
Grímsson, einn af
handritshöfundum
Vaktarseríanna og
Bjarnfreðarsonar,
hefur tekið höndum
saman við Sigur-
jón Kjartans-
son. Saman
ætla þeir
að skrifa
handritið
að nýrri Pressu-þáttaröð en fyrsta
serían mæltist ákaflega vel fyrir.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst verður þráðurinn tekinn upp
þar sem skilið var við hann en með
einhverjum smá breytingum þó.
Það verður að öllum líkindum
Sigmar Guðmundsson sem fylgir
íslenskum áhorfendum í gegnum
Eurovision-keppnina í ár. Ritstjóri
Kastljóssins liggur þó hálfur undir
feldi enda verða sveitarstjórnar-
kosningar um svipað leyti og hann
hefur því í mörg horn
að líta. Úr Efstaleiti
berast þó þau skila-
boð að nær öruggt
sé að Sigmar haldi til
Noregs. Þetta verður
fimmta árið í röð sem
Sigmar er í Eurov-
ision; hann
fór fyrst
til Aþenu
2006.
Og annar maður mun að öllum
líkindum setjast fyrir framan
hljóðnemann og lýsa því sem fyrir
augu ber í Kodak-höllinni með
sinni alkunnu útvarpsrödd þegar
Óskarsverðlaunin verða afhent
á sunnudagskvöld. Maðurinn
sem um ræðir er auðvitað Ívar
Guðmundsson, sem hefur yfirleitt
lýst þessum viðburði
þegar sýnt hefur verið
frá honum. Honum til
halds og trausts verður
Skarphéðinn Guð-
mundsson af dagskrár-
deild Stöðvar 2. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það var bara haft samband við mig og ég
beðinn um að vera með. Þetta kom skemmti-
lega á óvart og það er auðvitað alltaf gaman
að geta hjálpað,“ segir Garðar Thor Cortes
óperusöngvari. Hann syngur á nýrri smáskífu
ásamt fremstu fulltrúum sígildrar tónlistar
á Bretlandseyjum sem gefa á út til styrktar
fórnarlömbum hamfaranna á Haíti. Alls tóku
23 söngvarar þátt en meðal þeirra sem syngja
með Garðari er Paul Potts sem sló eftirminni-
lega í gegn í sjónvarpsþáttunum Britain´s Got
Talent.
Garðar hafði því miður ekki tíma til að taka
þátt í aðalupptökunum sem fóru fram á laug-
ardaginn þannig að hann mætti í hljóðverið
ásamt Konunglegu fílharmóníusveitinni og
tók upp sitt framlag. Lagið sem á að gefa út
heitir The Prayer og varð geysivinsælt í flutn-
ingi Celine Dion og Andrea Bocelli. Í frétt á
BBC segir að hver söngvar syngi eina laglínu
þar til allir sameinast í ákaflega hljómmikl-
um kór.
Garðar hefur annars verið á flakki að und-
anförnu. Í London átti hann stefnumót við
nokkra aðila í tengslum við framtíðarverkefni
og hann var nýkominn heim frá Noregi þegar
Fréttablaðið hafði samband við hann. „Og svo
er ég að fara til Wales að syngja í einhverjum
sjónvarpsþætti, þannig að það eru alltaf ein-
hver verkefni í gangi,“ segir Garðar, hógvær
að venju. Áætlað er að smáskífan The Prayer
komi út þann 14. mars. - fgg
Garðar Cortes á smáskífu með Paul Potts
STYRKJA HAÍTÍ Garðar Thor og Paul Potts eru meðal
þeirra sem syngja á nýrri smáskífu sem gefa á út til
styrktar Haítí.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Auglýsingasími