Fréttablaðið - 22.05.2010, Síða 6
6 22. maí 2010 LAUGARDAGUR
IÐNAÐUR Ástralska jarðefnarann-
sóknafyrirtækið Platina Resour-
ces Ltd. hefur sótt um rannsókn-
arleyfi til að kanna hvort gull og
aðrir góðmálmar séu í vinnanlegu
magni á Austurlandi. Orkustofnun
barst umsókn fyrirtækisins í apríl.
Umhverfisráðuneytið og undir-
stofnanir þess, auk 1.260 jarðeig-
enda í átta sveitarfélögum eystra,
hafa málið til umsagnar.
Lárus Ólafsson, staðgeng-
ill orkumálastjóra, segir að for-
svarsmenn fyrirtækisins hafi
kynnt sér aðstæður hér afar vel
og þekkja til þeirra jarðfræði-
rannsókna sem tengjast leit að
dýrum málmum. „Leyfið sem sótt
er um nær til einfaldra yfirborðs-
rannsókna sem fylgir lítið rask.
Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa
verið í góðu sambandi við okkur og
eru vel upplýstir um nýtingar- og
umhverfislöggjöf hér.“
Lárus segir að ef af verði gildi
rannsóknarleyfið í tvö ár. Platina
ætlar sér fimmtíu daga til rann-
sókna með því að gera út tvo hópa
vísindamanna og ekki loku fyrir
það skotið að rannsóknir hefjist
síðsumars.
Í gildi er eitt leyfi til rann-
sókna á jarðefnum sem nær til
rannsókna á málmum á fjórtán
tilgreindum stöðum á landinu,
öll utan Austurlands. Þetta skýr-
ir áhuga Platina á Austurlandi,
segir Lárus.
Hjalti Franzson, jarðfræð-
ingur hjá ÍSOR, segir að íslensk
jarðhitasvæði búi til gull. Hingað
til hafi þó ekki fundist nægilega
stór svæði til að réttlæta námu-
rekstur. Ýmislegt ræður því hvort
gullnám sé arðbært, segir Hjalti.
Gerð námunnar, hvort hún er yfir-
Gullleit undirbúin
um allt Austurland
Ástralskt fyrirtæki vill kanna hvort góðmálmar séu í vinnanlegu magni á Aust-
urlandi. Rúmlega 1.200 jarðeigendur í átta sveitarfélögum skoða málið.
Heimsmarkaðsverð
á gulli getur ráðið því
hvort fýsilegt þykir
að ráðast í gullnám.
Nefnt hefur verið að
eitt gramm verði að
nást úr hverju tonni
bergs til að námu-
rekstur borgi sig.
Rauðvíns- og hvítvínsglös
Verð kr. 2900
Bjórglös
Verð kr. 2900
Bjórglös/staup
Verð kr. 2900/kr. 1900
Skeifunni 8 og Kringlunni. Sími 588 0640.
ÚTSKRIFTARGJAFIR
www.casa.is
CASA
LÖGREGLUMÁL Yngstu einstakling-
arnir sem lögregla hafði afskipti
af vegna hnupls á síðustu þremur
árum voru átta ára, en hinir elstu
88 ára. Þetta kemur fram í afbrota-
tölfræði Ríkislögreglustjóra, sem
embættið hefur tekið saman fyrir
árin 2007 til 2009.
Flestir brotamenn voru á aldr-
inum 16 til 20 ára. 74 prósent voru
með íslenskt ríkisfang. Útlending-
ar sem hlut áttu að máli voru í ell-
efu prósent tilvika með litháískt
ríkisfang og í tíu prósent tilvika
með pólskt.
Sé litið til fjölda brota fyrir
nýliðinn aprílmánuð þá eru hegn-
ingarlagabrot ríflega þúsund tals-
ins, sem er svipað og verið hefur
í þessum mánuði undanfarin ár.
Hraðakstursbrot voru að meðal-
tali 131 á dag, þjófnaðarbrotin að
meðaltali tólf á dag og eignaspjöll
átta. Hraðakstursbrotum og eigna-
Óvanalega mörg fíkniefnamál í umdæmi lögreglunnar á Eskifirði í apríl:
Yngstu þjófarnir voru átta ára
spjöllum hefur fækkað milli ára en
þjófnaðarbrotum fjölgað.
73 fíkniefnabrot voru skráð á
höfuðborgarsvæðinu, nítján á Suð-
urnesjum og ellefu í umdæminu á
Eskifirði sem nær yfir bróðurpart
Austurlands. Eru það óvenjumörg
brot í því umdæmi. - jss
Aldur brotamanna
25
20
15
10
5
0%
71
á
rs
o
g
el
dr
i
61
-
7
0
ár
a
51
-
6
0
ár
a
46
-
5
0
ár
a
41
-
4
5
ár
a
36
-
4
0
ár
a
31
-
3
5
ár
a
26
-
3
0
ár
a
21
-
2
5
ár
a
16
-
2
0
ár
a
11
-
1
5
ár
a
10
o
g
yn
gr
i
Aldursdreifing
gerenda sem urðu
uppvísir að hnupli
á árunum 2007
- 2009
Heimild: Ríkislögreglustjórinn
FERÐAMÁL Sjö hundruð milljóna
króna markaðsátak ferðaþjónust-
unnar vegna gossins í Eyjafjalla-
jökli var kynnt í gær. Með átak-
inu, sem stendur í maí og júní,
er brugðist við fyrirséðri fækk-
un ferðamanna. Að óbreyttu gæti
þeim fækkað um 100 þúsund milli
ára, að því er fram kemur í til-
kynningu um átakið.
Að markaðsátakinu standa
iðnaðarráðuneytið, Icelandair,
Reykjavíkurborg, Iceland
Express, Útflutningsráð og Sam-
tök ferðaþjónustunnar, en þar að
baki eru um 70 fyrirtæki. Útflutn-
ingsráð hefur umsjón með fjár-
reiðum átaksins og skilar fjár-
hagslegu lokauppgjöri vegna þess
1. ágúst.
„Átakið skiptist í nokkra hluta.
Annars vegar er um að ræða
prentauglýsingar, útvarpsauglýs-
ingar, útimiðla og vefborða. Hins
vegar er mikil áhersla lögð á að
nýta samskiptaleiðir eins og Fac-
ebook, Twitter og fleiri leiðir sem
einstaklingar og fyrirtæki hafa
byggt upp,“ segir í tilkynningum,
en bakgrunnurinn í allri herferð-
inni er svo vefsíðan InspiredBy-
Iceland.com. Síðan verður opnuð
formlega 27. maí. Þar má meðal
annars finna frásögn danska leik-
arans Viggos Mortensen af upplif-
un hans af Íslandi. - óká
Vefsíða átaksins Inspired by Iceland fer formlega í loftið undir lok næstu viku:
Sporna við fækkun ferðafólks
ÁTAK KYNNT Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra kynnti átakið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HAGSTOFA Tæplega fjörutíu pró-
sent heimila landsins, eða 39 pró-
sent, áttu erfitt með að láta enda ná
saman á síðasta ári. Þetta kemur
fram í lífskjararannsókn Hagstof-
unnar. Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarinnar höfðu 7,1 prósent
heimila lent í vanskilum með hús-
næðislán eða greiðslu leigu á síð-
astliðnum tólf mánuðum. Á sama
tíma höfðu 10,3 prósent heimila
lent í vanskilum með önnur lán.
Einstæðir foreldrar voru í meiri-
hluta þeirra sem voru í greiðslu-
erfiðleikum. - jab
Lífskjararannsókn Hagstofu:
Margir ná ekki
endum saman
Ætlarðu í ferðalag um hvíta-
sunnuhelgina?
Já 22,3%
Nei 77,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Býstu við miklu af Besta flokkn-
um í borgarstjórn?
Segðu skoðun þína á visir.is
AUSTURLAND Ástralskt fyrirtæki vill leita að gulli og öðrum góðmálmum á Aust-
urlandi. Hátt í þrettán hundruð jarðir eru undir og átta sveitarfélög.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
Gullstangir
borðsnáma eða neðanjarðar skipt-
ir máli, en ekki síður heimsmark-
aðsverð á gulli.
Hjalti segir að íslensk jarðhita-
kerfi séu miklu hreinni en víðast
hvar, til dæmis við Kyrrahafið.
Þetta sé mikilvægt út frá umhverf-
issjónarmiðum. „Aðrir óæskilegir
málmar eru í þessum jarðhitakerf-
um; kvikasilfur, blý og sink. Hér
gegnir öðru máli. Með tilliti til
umhverfisins er gullvinnsla mjög
óæskileg vegna þessara málma en
hér er það bara gull sem verið er
að leita að svo efnamengun er ekki
áhyggjuefni hér.“
Samkvæmt lögum felur leyfi til
leitar og rannsókna í sér heimild
til þess að leita að málmum á til-
teknu svæði en felur hvorki í sér
heimild til nýtingar á málmum né
fyrirheit um forgang leyfishafa að
nýtingarleyfi á málmum síðar.
svavar@frettabladid.is
KJÖRKASSINN