Fréttablaðið - 22.05.2010, Side 12
22. maí 2010 LAUGARDAGUR
SVEITARFÉLÖG Samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið hefur ekki stað-
fest umdeilt álit reikningsskila- og
upplýsinganefndar sveitarfélaga
um að auka megi bókfært eigið fé
sveitarfélaga um milljarða með
því að verðmeta lönd og leigulóðir
í efnahagsreikningi út frá áætluðu
söluverði eða framtíðartekjum af
lóðaleigu.
Reikningsskilanefndin samþykkti
þetta með fjórum atkvæðum á fundi
sínum 29. apríl. Einn nefndarmanna,
Gunnlaugur Júlíusson, sat hjá og
hefur gagnrýnt meðferð málsins
harkalega.
Hafnarfjörður beitti þessari
reglu við gerð ársreiknings bæj-
arins 2009 og leiddi hún til þess að
eigið fé bæjarins hækkaði um 6,6
milljarða og eiginfjárstaða bæjar-
ins varð jákvæð um fjóra milljarða.
Mosfellsbær beitir reglunni einnig
í ársreikningum, sem lagðir voru
fyrir bæjarstjórn 21. apríl.
Gert er ráð fyrir að álit reiknings-
skila- og upplýsinganefndar séu birt
í Stjórnartíðindum, að fenginni stað-
festingu ráðuneytisins. Því ferli er
ekki lokið, samkvæmt upplýsingum
úr ráðuneytinu, og er málið enn til
skoðunar. - pg
Sveitarfélög beita umdeildri reglu til að hækka eigið fé um milljarða:
Ráðuneyti hefur ekki staðfest
KRISTJÁN L. MÖLLER Sveitarstjórnarráð-
herra þarf að staðfesta að sveitarfélög
megi reikna sér til eignar leigutekjur.
LANDSMÓT Stefnt er að því að halda
Landsmót 2010 á Vindheimamel-
um í Skagafirði í lok júní. Þetta er
niðurstaða fundar hagsmunaaðila
í hestamennsku sem haldinn var í
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytinu í gær. Staðan verður end-
urmetin um næstu mánaðamót.
Hrossapestin skæða, sem sett
hefur mark sitt á hestamennsku
í landinu á undanförnum vikum,
hefur valdið vangaveltum um
hvort rétt væri að fresta eða blása
landsmótið af.
„Fundarmenn voru sammála um
að endurskoða fyrirkomulag og
dagsetningar á úrtökum og dómum
hrossa fyrir landsmótið með það
að leiðarljósi að gera sem flest-
um hrossum mögulegt að vinna
sér þátttökurétt,“ sagði Haraldur
Þórarinsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga.
„Velferð hestsins og viðburð-
urinn landsmót verða í fyrirrúmi
og engar ákvarðanir teknar sem
kynnu að varpa skugga á þetta
tvennt. Hins vegar liggja gífurlega
miklir hagsmunir ferðaþjónustunn-
ar, sem tengjast hestamennskunni,
undir. Menn gera sér grein fyrir
því núna hve mikilvægt landsmót-
ið er fyrir land og þjóð.“ - jss
Dagsetningar og fyrirkomulag á úrtökum og dómum hrossa endurskoðuð:
Stefnt að því að halda landsmót
FRÁ LANDSMÓTINU 2008 Gífurlegir hagsmunir eru undir. Staðan verður endurmetin
um næstu mánaðamót. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
Hvítasunnan hét upphaflega
fimmtugasti dagurinn
enda markaði hún
endalok páskatímans
sem stóð í fimmtíu daga.
Hvítasunnan er í dag vinsæl til
ferminga og markar einnig fyrstu
stóru ferðahelgi sumarsins enda er um
að ræða langa helgi því annar í hvítasunnu er
frídagur. Um Hvítasunnuhelgina eru fyrstu
menningarviðburðir og hátíðir sumarsins
gjarnan haldnar.
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Classic
Kaffi á brúsa, nestiskarfa og þjóðvegur 1. Njóttu
langrar helgar með frísklöguðu BKI kaffi.
Gríptu tækifærið, fáðu þér BKI kaffi.
Hvítasunnudagur
er á morgun!
Fagnaðu
hvítasunnudegi
með BKI kaffi
Hvítasunnudagur er á morgun
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kauptu BKI fyrir
hvítasunnuna
Auður hefur frá upphafi lagt áherslu á ábyrga hegðun í allri sinni starfsemi.
Við trúum því að við getum öll lagt okkar af mörkum til að byggja upp heilbrigt samfélag.
Þess vegna vill Auður leggja þeim lið sem stuðla að jákvæðri uppbyggingu og framförum.
DAGSVERK AUÐAR
er samfélagsverkefni starfsmanna Auðar.
Dagsverkið felst í því að starfsmenn gefa and-
virði dagslauna á hverju ári í verðugt málefni.
Ennfremur vinna allir starfsmenn Auðar
sem nemur einum vinnudegi á ári í þágu góðs
málefnis. Starfsmenn Auðar velja verkefni
sem hljóta fjár- eða vinnuframlag.
ALHEIMSAUÐUR
er samfélagssjóður ætlaður til að hvetja konur
til frumkvæðis og athafna, einkum í þróunar-
löndum. Auður leggur 1% af hagnaði sínum
í sjóðinn og býður viðskiptavinum að gera slíkt
hið sama. Stjórn AlheimsAuðar tekur ákvörðun
um úthlutun styrkja.
Ábyrg arðsemi – Mannleg nálgun
ÞÚ GETUR
BREYTT HEIMINUM
VIÐ AUGLÝSUM EFTIR
STYRKUMSÓKNUM
Umsækjendur eru hvattir til að skilgreina
verkefnið vel, sýna fram á hvernig það
fellur að markmiði viðkomandi sjóðs
og tilgreina hversu háa fjárhæð sótt er
um og/eða hverskonar vinnuframlag.
Umsóknarfrestur er til
26. maí 2010.
Styrkjum verður úthlutað þann
19. júní 2010.
Umsóknum má skila á audur@audur.is
Nánari upplýsingar á www.audur.is
SAMAN BÆTUM VIÐ SAMFÉLAGIÐ
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
01
19
9
Starfsmenn Auðar við sjálfboða-
störf í verslun Rauða krossins
Fræðslumiðstöð Enza í S-Afríku
hlaut styrk árið 2009.
Auður getur lagt þér lið
Auður Capital | Borgartúni 29 | 105 Reykjavík | S. 585 6500