Fréttablaðið - 22.05.2010, Page 23
LAUGARDAGUR 22. maí 2010 23
Sendu, Drottinn, anda þinn! og endurnýja ásjónu jarðar!
Svo segir í sálminum forna.
Heilagur andi er áhrif hins
ósýnilega Guðs. Vindinn sjáum
við ekki, en við vitum af honum.
Við sjáum laufin bærast í blæ-
num, heyrum gnauðið við glugg-
ann, finnum svalan gustinn um
andlitið. Eins er það með anda
Guðs. Hann er ósýnilegur, nema
af áhrifum sínum. Hann verður
aldrei gripinn, settur í ílát, fang-
aður í formúlur. Enginn getur
keypt hann eða selt né fengið
einkaleyfi á. Hann blæs þar sem
hann vill. En við sjáum og skynj-
um það sem hann gefur, eða ef
til vill umfram allt þegar hann
er horfinn og áhrifa hans gætir
ekki lengur. Þá kólnar í heimi og
kelur allt.
Sendu, Drottinn, anda þinn!
og endurnýja ásjónu jarðar!
Yndisleg er ásjóna jarðar
þegar birta vorsins, fegurð og
yndi blasir við, endurnýjun,
endursköpun hvert sem augað
lítur. Við gleðjumst yfir sér-
hverjum vorboða, vængjataki
og vorljóði. En ásjóna jarð-
ar birtir líka aðra hlið. Það er
líka annars konar andi að verki
í heiminum. Átök lífs og dauða
blasa við hvarvetna, átök eyð-
ingar og uppbyggingar. Það
verður seint umflúið. Náttúru-
öflin eru óblíð og hörð. En ekk-
ert jafnast í ofstopa sínum á við
manninn, þegar hann knúinn
anda sjálfselsku og hroka veður
yfir og þegar andi haturs, heift-
ar og hefnigirni ræður för. Ætli
við könnumst við það?
Sendu, Drottinn, anda þinn
og endurnýja ásjónu jarðar!
Hvítasunna er sagan um hina
nýju sköpun hins krossfesta og
upprisna frelsara, sem vill end-
urnýja ásjónu jarðar og mann-
lífsins. Það er andi Guðs, andi
kærleika, gleði, friðar, lang-
lyndis, gæsku, góðvildar, trú-
mennsku, hógværðar og sjálf-
saga sem skapar, mótar og
nærir hið góða líf og samfélag.
Andinn kemur eins og vorþeyr
sem opnar eyru og hjörtu að
við greinum gegnum ys og dyn
ótal radda tóninn tæra, hreina,
orð sannleikans og lífsins, Jesú
Krists. Andi og áhrifavald hans
er að kalla á þig, allt frá móður-
skauti til þessa dags að fylgja
sér. Vorþeyr heilags anda vill
ná til okkar og vekja og lífga
samfélag þar sem umhyggj-
an er styrkur og sál trúarinn-
ar, fyrirgefning og sáttargjörð
er annað en orðin tóm. Þar sem
fólk lýtur undri lífsins og náð-
arinnar með lotningu og leitast
við að biðja og syngja birtu og
yl í veröldina, og laða fram sam-
hljóminn helga. Og ásjóna jarð-
ar og mannlegt samfélag endur-
nýjast, ljómar af gleði og undir
tekur í lofsöng. Um þetta erum
við að biðja þegar við biðjum
með kirkju alda og kynslóða:
Sendu, Drottinn, anda þinn og
endurnýja ásjónu jarðar!
Sendu, Drottinn,
anda þinn
Hvítasunna
Karl
Sigurbjörnsson
biskup
Það er*Einungis er greitt upphafsgjald, 6 kr. af hverju símtali. Mán.verð 1.765 kr.
0 kr. mínútan úr
heimasíma í heimasíma*
Nú geturðu blaðrað eins og þú vilt.
Hringdu í
800 7000
til að panta
heimasíma
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…