Fréttablaðið - 22.05.2010, Qupperneq 52
22. maí 2010 LAUGARDAGUR8
Innkaupaskrifstofa
Reykjavíkurborg
Átaksverkefni 2010 – Verkstjórar, umsókn 12441
F.h. Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar
(FER) í samvinnu við Vinnumálastofnun auglýsir eftir
áhugasömum húsasmíða- og múrarameisturum til að
taka þátt í átaksverkefnum vegna endurbóta á fasteignum
Reykjavíkurborgar. Meistararnir verða ráðnir til verkefna
ásamt hluta af starfsmönnum þeirra. Þeir skulu m.a. hafa
umsjón með iðnaðar- og iðnverkamönnum í atvinnuleit
sem FER ræður inn á verkin. Þeir hafi einnig almenna
umsjón með efnisöfl un og annað sem að verkefninu snýr.
Meðal verkefna sem á að framkvæma er endurgerð þaka
og glugga og almennar múrviðgerðir. Verktími er áætlaður
frá júní til september 2010. Þátttakendur skulu hafa rétt
til að skrifa sig sem húsasmíða- og múrarameistarar á
verk til byggingarnefndar Reykjavíkur. Gerð er krafa um
að húsasmíða- og múrarameistararnir sem ráðnir verða til
verksins hafi víðtæka reynslu af verkstjórn og staðfesti það
í umsókn sinni.
Gögn vegna gerðar umsókna verða afhent frá og með
25. maí 2010 í síma- og upplýsingaþjónustu Ráðhúss
Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila eigi síðar en:
kl. 15:00, fi mmtudaginn 3. júní 2010, til síma- og
upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur merktum:
Umsókn nr. 12441 – Átaksverkefni 2010 – Framkvæmda
og eignasvið Reykjavíkurborgar.
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur:
Úlfarsárdalur, hverfi 1.
Bílastæði, gönguleiðir og ræktun.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 2.000 frá og
með miðvikudeginum 26. maí 2010 í upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða:
9. júní 2010 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12437
Innkaupaskrifstofa
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Boltagerði við Háteigsskóla og
Úlfarsbraut - gervigras.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 2.000 frá og með
25. maí 2010 í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða:
11. júní 2010 kl 10:00, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12438
Bandalag kvenna í Reykjavík
HALLVEIGARSTÖÐUM • TÚNGÖTU 14 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 552 6740
Námsstyrkir
Bandalag kvenna í Reykjavík auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna fyrir skólaárið
2010-2011.
Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið á
ungum konum í Reykjavík, sem ekki eiga kost á
námslánum, til að afl a sér aukinnar menntunar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum, sem
hægt er að fá á Thorvaldsensbasar, Austurstræti 4, alla
virka daga milli kl. 14:00 og 18:00.
Einnig er hægt að fá umsóknir í gegnum tölvupóst á:
bandalag@simnet.is
Fyrirspurnir má senda á netfang bandalagsins:
bandalag@simnet.is
Umsóknir þurfa að berast fyrir 9. júní til Bandalags kvenna
í Reykjavík Túngötu 14, 101 Reykjavík,
merktar „Námsstyrkir”
Undirbúningur útboðs vegna
sérleyfi saksturs.
Vegagerðin og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hafa
á undanförnum misserum unnið að undirbúningi endur-
skipulagningar almenningssamgangna innanlands.
Fyrirkomulag á þjónustu með sérleyfi sakstri er þar til
sérstakrar skoðunar. Stefnt er að því að tryggja lágmarks-
þjónustu innan og á milli stærstu byggðakjarna svæða eins
og þau eru kynnt í stefnu ríkisstjórnarinnar í sóknaráætlun
20/20. Jafnframt verður leitast við að fella framboð að eftir-
spurn til að tryggja hagkvæmni í þjónustu og sem
besta nýtingu fjármuna hins opinbera.
Áður en endanleg ákvörðun verður tekin um leiðir,
þjónustu, skipulag og aðkomu hins opinbera að þessum
rekstri þarf að gæta að samkeppnis- og ríkisstyrkjareglum á
EES-svæðinu. Því er hér með kallað eftir upplýsingum um
áform þeirra aðila sem veita eða hyggjast veita þjónustu á
þessu sviði á grundvelli almennra samkeppnissjónarmiða,
án aðkomu hins opinbera.
Kallað er eftir upplýsingum um áform þeirra rekstraraðila
sem tilbúnir eru til að veita þjónustu á sviði reglubund-
inna fólksfl utninga á þeim áætlanaleiðum sem bundnar
eru sérleyfum og einkaleyfum skv. lögum nr. 73/2001 um
fólks- og farmfl utninga á landi, eða á öðrum áætlanaleiðum
á landinu, án ríkisstyrkja. Gildandi samningar um sérleyfi
til reglubundinna fólksfl utninga renna að jafnaði út frá
og með 1. janúar 2011 og skal gera ráð fyrir því að akstur
hefjist eigi síðar en frá þeim tíma.
Koma þarf fram um hvaða leiðir er að ræða, tímabil, tíðni
og framboð þjónustu. Einnig er óskað eftir upplýsingum
um leiðir sem viðkomandi rekstraraðili er tilbúinn að
þjónusta með einhverjum takmörkunum eða skilyrðum,
t.d. sérleyfi á viðkomandi leið eða öðrum skilyrðum til
aksturs sem máli skipta.
Á grundvelli upplýsinga sem hér er kallað eftir verða
teknar ákvarðanir um hvort, með hvaða skilyrðum og á
hvaða leiðum úthlutað verði sérleyfum og einkaleyfum til
reglubundinna fólksfl utninga þegar núgildandi leyfi renna
út. Jafnframt verða teknar ákvarðanir um hvort og á hvaða
leiðum verði ríkisstyrkt þjónusta og um gerð þjónustu-
samninga vegna hennar.
Nánari upplýsingar um hvaða leiðir eru háðar sérleyfi
og einkaleyfi skv. lögum nr. 73/2001 er að fi nna á
heimasíður Vegagerðarinnar:
http://www.vegagerdin.is/umsoknir-og-leyfi /leyfi -i-gildi.
Sérleyfi til fólksfl utninga fylgja að jafnaði ýmis skilyrði og
kvaðir um lágmarksþjónustu, s.s. um tíðni ferða, bifreiða-
kost og hámarksgjaldskrá, og vísast um það nánar til 12. gr.
reglugerðar um fólksfl utninga á landi
nr. 528/2002.
Upplýsingum skal skilað til Hagdeildar Vegagerðarinnar
Borgartúni 5-7 eða á netfangið: hagdeild@vegagerdin.is
eigi síðar en 8. júní nk.
www.vinnueftirlit.is
ADR-RÉTTINDI
Gilda m.a. á Evrópska efnahagssvæðinu
Fyrirhugað er að halda eftirtalin námskeið í Reykjavík ef næg
þátttaka fæst fyrir stjórnendur ökutækja sem öðlast vilja
réttindi (ADR-skírteini) til að fl ytja tiltekinn hættulegan farm
á vegum á Íslandi og annars staðar á Evrópska efnahags-
svæðinu:
Grunnnámskeið (fl utningur á stykkjavöru) (fyrir utan
sprengifi m- og geislavirk efni): 31. maí–2. júní 2010.
Flutningur í tönkum: 3 .–4. júní 2010.
Flutningur á sprengifi mum farmi 5. júní 2010.
Flutningur á geislavirkum farmi 7. júní 2010.
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiði fyrir fl utningi í tönkum
og/eða fl utningi á sprengifi mum farmi og/eða fl utningi á
geislavirkum farmi er að viðkomandi hafi setið grunnnám-
skeið (stykkjavörufl utningar) og staðist próf í lok þess.
Námskeiðin verða haldin í húsnæði Ökukennarafélags
Íslands í Mjódd og hefjast kl. 09:00.
Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðs- og skírteinisgjald í
síðasta lagi miðvikudaginn 26. maí 2010.
Skráning og nánari upplýsingar hjá skrifstofu Vinnueftirlitsins í
Reykjavík, Bíldshöfða 16, sími 5504600, netfang vala@ver.is.
Námskeið Útboð
Styrkir
sími: 511 1144
Allt sem þú þarft…
Auglýsingasími