Fréttablaðið - 22.05.2010, Blaðsíða 74
42 22. maí 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
Ný 4. vikna krakkajóganámskeið hefst 26. maí hjá
Jóga Stúdíó Stórhöfða 17.
2–5 ára » mánudagar klukkan 16:30–17:00
6–10 ára » miðvikudagar klukkan 16:30–17:00
Skráning í síma 772 1025 og 695 8464
Verð aðeins 5.000 kr.
Krakkajóga
Nánari upplýsingar á
jogastudio.orgStórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þið megið EKKI borða
heimaverkefnin fyrr en ég
er BÚINN að fara yfir þau!
Þetta eru flott
föt sem þú
ert í, Sara.
Er það
ekki? Júbb.
Þú minnir mig á
líkamsræktar-Barbie
í þeim.
Þetta átti
nú að vera
hrós.
Kannski er
hún ekki
mikið fyrir
líkamsrækt.
Þegar þú
fæddist,
varstu þá
kölluð Jóna?
A-ha. Þegar þú varðst
svo ung kona
þá varstu kölluð
Jóna, og þegar
þú giftir þig þá
varstu enn þá
kölluð Jóna.
Já... En þegar ég
fæddist, þá
breyttistu í
MÖMMU!
Solla
- breytir
mannkyns-
sögunni!
Óboj!
Meira að
segja á
tilboði!
Ég get ekki annað
en furðað mig á
mönnum sem
taka svona litum
með brosi á vör!
Þetta
venst,
maður!
CLYMAX
Kinna
litur
TILBOÐ!
Mér finnst ótrúlega leiðinlegt að vera ekki með skráð lögheimili í Reykjavík.
Ekki vegna þess að mig langar til að borga
hærri tryggingagjöld af bílnum mínum
heldur langar mig til að greiða atkvæði í
borgarstjórnarkosningunum í enda maí.
ÉG er með ofnæmi fyrir pólitíkusum, sem
er leiðinlegt vegna þess að þeir stjórna
lífi mínu á ákveðinn hátt. Þetta er eins og
að vera með ofnæmi fyrir bílnum sem ég
keyri á hverjum degi. Nei, þetta er reyndar
ekkert eins og það, en mér verður illt þegar
ég heyri pólitíkusa tala og ég hef stundum
fengið á tilfinninguna að þeir telji sig vera
betri en við hin. Sem er fjarri lagi, því í
pólitík, eins og alls staðar annars staðar,
er rosalega mikið af ógeðslegu fólki.
AÐ fylgjast með framgöngu Besta flokks-
ins hefur verið hrein unun. Jóni Gnarr og
félögum hefur tekist að umbylta heims-
mynd fólks sem bjóst við að geta karp-
að, malað, rifist og skammast út í hvað
annað án þess að rauðhærður sprelli-
gosi myndi þvælast fyrir. Og hvernig
hefur þetta fólk tekið því? Ótrú-
lega furðulega. Kosningabaráttan
hefur hreinlega snúist um Jón
Gnarr og ringlaðir flokkspólit-
íkusar geta ekki lofað neinu
án þess að segja eitthvað á
borð við: „Tja, ég er ekki eins
fyndinn og Jón Gnarr, en við viljum útsvar,
börn, leikskóla, velferð, bla bla bla …“
FURÐULEGIR hlutir gerðust eftir að Besti
flokkurinn fór að skora hátt í skoðanakönn-
unum. Flokksbundnir bloggarar vinstri- og
miðjuflokkanna réðust á Jón, grófu undan
honum og bendluðu hann við hægri öflin.
Einn taldi meira að segja að Vaktarseríurn-
ar væru ekkert annað en hægri áróður í
dulargervi (!). Ég get ekki og hef ekki hug-
mynd um hvort ég myndi kjósa Besta flokk-
inn og hef aldrei verið í flokki (nema þegar
Samfylkingin skráði mig án minnar vitund-
ar) en þessi viðbrögð eru ógeðslega fyndin.
Og sorgleg. Samt meira fyndin.
FURÐULEGAST var að Sjálfstæðisflokkur-
inn kaus að stinga höfðinu í sandinn. Flokk-
urinn sem virðist hafa menn í vinnu við að
grafa undan andstæðingum sínum hafði
skyndilega ekkert slæmt að segja um mann
sem gæti hrifsað af þeim borgina í lok maí.
Hvað er að gerast?
ENGINN hefur bent á að Jón sagði í upphafi
að tilgangur flokksins væri að koma honum
og vinum hans í þægileg störf og að spill-
ingin yrði uppi á borðum. Annað takmarkið
er komið langleiðina, en hinum flokkunum
virðist vera sama um þetta spillingarmjálm
í grínistanum. Hver svo sem ástæðan fyrir
því er.
Útsvar, velferð og kjaftæði