Fréttablaðið - 28.05.2010, Qupperneq 2
2 28. maí 2010 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Steinunn Valdís Óskars-
dóttir hefur ákveðið að segja af sér
þingmennsku. Hún telur sig ekki
geta rækt skyldur sínar sem þing-
maður vegna umræðu um styrkja-
mál hennar. Forsætisráðherra telur
að afsögn hennar muni auka tiltrú
almennings á Samfylkingunni og
stjórnmálum almennt.
Steinunn segir í yfirlýsingu, sem
hún sendi frá sér í gær, að litlu
breyti hvort ásakanir um mútur
eða spillingu eigi við rök að styðj-
ast. Hún segist hafa hreinan skjöld
og geti því ekki „beðist afsökunar
á að hafa gerst sek um siðspillingu
með því að sækjast eftir og fá fjár-
styrk frá þessum aðilum á þessum
tíma“.
Steinunn þáði um þrettán millj-
ónir króna í styrki til að fjármagna
kosningabaráttu sína í tveimur próf-
kjörum árið 2006. Annað prófkjörið
var fyrir borgarstjórnarkosningar í
Reykjavík þar sem Steinunn hafn-
aði í öðru sæti. Sama ár ákvað
hún að skipta um vettvang og tók
þátt í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar til Alþingis. Í apríl síðastliðn-
um skýrði hún frá því að hún hefði
orðið að leita eftir styrkjum til að
fjármagna prófkjörsbaráttu sína
þar sem hún væri ekki af efnafólki
komin. Þá taldi hún ekki ástæðu til
að segja af sér.
Steinunn segist hafa mátt vita
að ákvörðun hennar um að þiggja
styrki árið 2006 gæti teflt trausti
hennar gagnvart umbjóðendum
hennar í tvísýnu. „Gildir þá einu
hversu góður hugur lá þar að baki
eða hversu vel ég treysti dómgreind
minni og heiðarleika í framhald-
inu[…].“
Steinunn segir að persónulegt
stolt hafi ráðið miklu um að hún hafi
ekki tilkynnt um afsögn sína fyrr.
Hún vildi ekki stíga fram „undir
hrópum um óheiðarleika, siðspill-
ingu og mútuþægni“.
Hún segir jafnframt að afsögn sín
sé viðleitni til að sátt skapist í sam-
félaginu og uppbygging megi hefjast
á réttlátara samfélagi.
Steinunn Valdís mun afhenda
þingforseta afsagnarbréf sitt á
mánudag þegar þing kemur saman
á ný. Hún baðst undan viðtali í gær-
kvöldi þegar eftir því var leitað og
vísaði til yfirlýsingar sinnar.
Næstur á eftir Steinunni Valdísi á
lista Samfylkingarinnar í Reykjavík
norður er Mörður Árnason. - shá
Þorbjörg, er þetta kynjaður
skáldskapur?
„Já, ábyggilega en hann er að
minnsta kosti líka kynþokkafullur.“
Fyrsta bók Þorbjargar Marinósdóttur,
Makalaus, kom út í gær. Bókin fellur í
flokk svokallaðra skutluskáldsagna og
byggir meðal annars á reynslu höfundar-
ins og samskiptum hennar við hitt kynið.
FJÖLMIÐLAR Breytingar verða gerðar á frídreifingu
og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót.
Blaðinu verður áfram dreift ókeypis í lúgur og svo-
kallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæðinu,
höfuðborginni og nærliggjandi bæjum. Annars stað-
ar verður blaðið selt á 150 krónur. Lausasölustöðum
verður fjölgað til muna og fjöldi Fréttablaðskassa í
íbúðahverfum verður þrefaldaður, úr um 60 í 170.
Á kjarnasvæðinu verður blaðinu hér eftir sem
hingað til ýmist dreift frítt í lúgur eða í Fréttablaðs-
kassa sem staðsettir eru á völdum stöðum inni í
íbúðahverfum. Nýbreytnin í dreifingu á kjarnasvæð-
inu felst í að hætt verður frídreifingu í verslunum og
á bensínstöðvum en blaðið í staðinn selt í lausasölu á
sömu stöðum.
Þessar breytingar á dreifingu Fréttablaðsins koma
í kjölfar breytinga sem voru innleiddar síðastliðinn
vetur. Þetta fyrirkomulag dreifingar hefur gefist
vel og til marks um það hefur lestur blaðsins aukist
um 4,2 prósentustig frá því að lausasala blaðsins var
tekin upp á landsbyggðinni.
Þessu til viðbótar verða á ýmsum stöðum, til
dæmis á flugvöllum og í öðrum samgöngumiðstöðv-
um, settir upp sjálfsalar.
Fréttablaðið er gefið út daglega í um 90 þúsund
eintökum og stendur ekki til að minnka það upplag.
Auk þess er Fréttablaðið aðgengilegt ókeypis á raf-
rænu formi á visir.is. Þá geta lesendur fengið blaðið
sent í tölvupósti alla útgáfudaga, án endurgjalds. - shá
Lausasölustöðum utan kjarnasvæðis fjölgað stórlega og aðgengi bætt:
Bætt frídreifing Fréttablaðsins
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA Fréttablaðið verður prentað í 90 þús-
und eintökum sem fyrr. Blaðið er aðgengilegt á rafrænu formi
á visir.is. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SVÍÞJÓÐ Þrír menn rændu skart-
gripum fyrir tólf milljónir
sænskra króna í Stokkhólmi í gær.
Mennirnir komu inn í Bukow-
ski-uppboðshúsið um hádegi í
gær vopnaðir byssum. Í húsinu
var sýning á þeim munum sem
verða á uppboði í byrjun júní. Um
tuttugu manns voru á staðnum
þegar mennirnir ruddust inn en
enginn særðist. Mennirnir kom-
ust undan á bíl, sem fannst stuttu
síðar. Verið var að leita vitna til að
komast að því hvernig mennirnir
héldu áfram flóttanum. - þeb
Stálu dýrum skartgripum:
Vopnaðir menn
rændu uppboð
FÓLK Dr. Unnur Anna Valdimars-
dóttir hlaut í gær hvatningar-
verðlaun Vísinda- og tækniráðs.
Verðlaunin voru afhent á Rann-
sóknaþingi í gærmorgun.
Unnur er dósent við læknadeild
Háskóla Íslands og er forstöðu-
maður miðstöðvar í lýðheilsuvís-
indum við skólann. Hún dvelur nú
sem gestavísindamaður við far-
aldsfræðideild Harvard-háskóla.
Hvatningarverðlaunin eru á
hverju ári veitt vísindamanni
sem þykir hafa skarað fram úr
snemma á ferlinum og skapi
væntingar um framlag í vísinda-
starfi er treysti stoðir mannlífs
á Íslandi. Verðlaunin eru tvær
milljónir króna. - þeb
Vísinda- og tækniráð:
Hvatningar-
verðlaun veitt
Steinunn segir af sér
Steinunn Valdís Óskarsdóttir mun afhenda þingforseta afsagnarbréf sitt á
mánudag. Ástæða afsagnar hennar er umræða um styrki sem hún þáði árið
2006. Forsætisráðherra telur ákvörðun hennar sýna auðmýkt og kjark.
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Steinunn hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna
frá árinu 2007. Hún sat í borgarstjórn í þrettán ár fyrir R-listann og Samfylkinguna.
Hún var borgarstjóri frá 2004 til 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég er þakklát Steinunni Valdísi fyrir þessa ákvörðun og
með henni sýnir hún í senn mikla auðmýkt og kjark.
Mér finnst mikil reisn yfir ákvörðun Steinunnar Valdísar
og ég trúi að með henni sé stigið mikilvægt skref í að
auka tiltrú almennings á Samfylkingunni og stjórnmál-
um almennt,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra. - kóp
Sýnir auðmýkt og kjark
Steinunn þáði
um þrettán millj-
ónir króna í styrki
til að fjármagna
kosningabaráttu
sína í tveimur prófkjörum árið
2006.
13
milljónir
NÝJA SJÁLAND, AP Jarðskjálfti sem
mældist 7,2 að styrkleika varð
undir Kyrrahafi um 500 kíló-
metra norður af höfuðborg Van-
úatú-eyjaklasans í gær. Varað
var við hættu á flóðbylgju, en
viðvörunin var dregin til baka
um klukkustund eftir skjálftann.
Jarðskjálftans varð vart á
nyrstu eyjum Vanúatú, en ekki
hafði verið tilkynnt um skaða af
hans völdum í gær. Alls eru 83
eyjur í eyjaklasanum, og sagði
talsmaður veðurstofu Vanúatú að
nyrstu eyjarnar séu svo nálægt
upptökum skjálftans að varla
hefði verið nægur tími til að vara
fólk við mögulegri flóðbylgju. - bj
Jarðskjálfti undir Kyrrahafi:
Varað við hættu
á flóðbylgju
VÍSINDI Breskur verkfræðipróf-
essor hefur prófað að smita sjálf-
an sig af tölvuvírus til að sýna
fram á áhættu tengda háþróuðum
ígræðslum í mannslíkamann.
Mark Gasson, verkfræði-
prófessor við Reading-háskóla í
Bretlandi, lét græða í sig einfalt
örmerki, svipað því sem notað er
í þjófavörn í verslunum. Örmerk-
ið smitaði hann svo af vírus.
Eftir því sem læknavísindunum
fleygir fram verða tæki sem
grædd eru í mannslíkamann full-
komnari. Þau fullkomnustu eru í
raun litlar tölvur, og aðeins tíma-
spursmál hvenær tölvuvírusar
verða vandamál fyrir lækna. - bj
Smitaði sig af tölvuvírus:
Óttast vírusa
í ígræðslum
MEXÍKÓ, AP Olíuslysið í Mexíkóflóa
er það stærsta í sögu Bandaríkj-
anna. Samkvæmt varlegu mati vís-
indamanna hafa næstum 72 millj-
ónir lítra af olíu lekið í sjóinn frá
því að borpallur brann og sökk í
apríl. Útreikningar vísindamanna
gefa til kynna að á bilinu 1,9 og 3,8
milljónir lítra af olíu hafa lekið í
sjóinn á hverjum degi frá því að
slysið varð.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti svaraði spurningum frétta-
manna um málið í gær. Hann hefur
verið gagnrýndur fyrir aðgerða-
leysi og seinagang, en sagði gagn-
rýnendur ekki þekkja allar hlið-
ar málsins. Hann greindi frá því
að skipuð yrði nefnd til að skoða
öryggi olíuborana, og að engin ný
leyfi yrðu veitt til borana næstu
sex mánuðina.
Obama sagði jafnframt að þeirri
ríkisstofnun sem fer með olíumál
hafi yfirsést og hafi ekki verið
nægilega vel undirbúin fyrir leka
af þessu tagi. Yfirmaður stofnun-
arinnar, Elizabeth Birnbaum, hætti
störfum í gær.
Olíufyrirtækið BP hefur und-
anfarna daga reynt að stöðva lek-
ann og bárust fréttir af því í gær
að það hefði tekist. Talsmenn fyr-
irtækisins vildu þó ekki staðfesta
það í gærdag en sögðu tilraunir til
að stöðva lekann halda áfram. - þeb
Olíuslysið í Mexíkóflóa orðið það stærsta í sögu Bandaríkjanna:
72 milljónir lítra lekið í flóann
BLAÐAMANNAFUNDUR Bandaríkjafor-
seti svaraði spurningum á blaðamanna-
fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Tæplega sextugur karl-
maður hefur verið ákærður fyrir
líkamsárás. Manninum er gefið
að sök að hafa ráðist á annan
mann í Reykjavík í júlí 2008.
Árásarmaðurinn sló og sparkaði
í andlit og líkama hins með þeim
afleiðingum að hann rifbeins-
brotnaði, auk þess sem hann
hlaut skurð ofan við augabrún,
mar og eymsli vinstra megin á
brjóstkassa. - jss
Ákærður fyrir líkamsárás:
Rifbeinsbraut
fórnarlambið
Fékk á sig brotsjó
Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru
kallaðar út á tólfta tímanum í gær
þegar tilkynning barst um að bátur
hefði fengið á sig brotsjó og væri að
sökkva. Björgunarskip og þyrla voru
send til móts við bátinn. Skömmu
síðar bárust þær fregnir að báturinn
væri að sigla inn í Sandgerðishöfn og
var bátsverjinn heill á húfi en blautur
og kaldur.
BJÖRGUN
Júní skárri en maí
Júnímánuður verður heldur hlýrri en
maí ef marka má spá Veðurklúbbsins
á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dal-
vík. Tungl verður fullt fimmtudaginn
27. júní og samkvæmt spánni mun þá
hlýna ofurlítið, þó enginn almenni-
legur hiti verði. Þetta kemur fram á
vefsíðu Dalvíkurbæjar.
VEÐUR
SPURNING DAGSINS
Samþykkjum
aldrei fátækt
Vi
ns
tri
hr
ey
fin
gi
n
- g
ræ
nt
fr
am
bo
ð
vil
l b
ei
ta
sé
r f
yr
ir
ró
ttæ
ku
m
þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um
allt land. // sjá m
eira á w
w
w
.vg.is/stefna/
Kynntu þé
r
málið á vg
.is
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
VG Árborg