Fréttablaðið - 28.05.2010, Blaðsíða 4
4 28. maí 2010 FÖSTUDAGUR
KÖ N N U N S t uð n i ng u r v ið
Sjálfstæðis-flokkinn í Reykja-
vík hefur aukist síðustu vikuna,
á meðan dregur úr fylgi Sam-
fylkingarinnar og Besta flokks-
ins, samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem
gerð var í gærkvöldi.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir
við sig manni frá sambærilegri
könnun sem gerð var fyrir viku,
á kostnað Besta flokksins.
Besti flokkurinn er enn lang-
stærsti flokkurinn í borginni. Af
þeim sem afstöðu tóku í könnun-
inni sögðust 40,9 prósent myndu
að kjósa Besta flokkinn ef gengið
yrði til kosninga nú. Það er þrem-
ur prósentustigum minna fylgi en
í sambærilegri könnun sem gerð
var fyrir viku, þegar flokkur-
inn naut stuðnings 43,9 prósenta
borgarbúa.
Verði þetta niðurstöður kosn-
inga fær Besti flokkurinn sjö
borgarfulltrúa af fimmtán, einum
frá hreinum meirihluta. Í könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem
gerð var fyrir viku náði flokk-
urinn áttunda manninum, og þar
með meirihluta í borgarstjórn.
Fleiri styðja Sjálfstæðisflokk
Umta lsver t f lei r i styðja
Sjálfstæðisflokkinn nú en í könn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2
fyrir viku, en flokkurinn er samt
langt frá kjörfylgi. Stuðningur við
flokkinn mælist nú 26,7 prósent,
5,6 prósentustigum meiri en fyrir
viku. Þetta er þó 15,4 prósentu-
stigum undir 42,1 prósents fylgi
flokksins í síðustu sveitastjórnar-
kosningum, árið 2006.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
miðað við þessa niðurstöðu fjóra
borgarfulltrúa, en er með sjö í
dag. Þetta er þó einum meira en
í könnuninni fyrir viku, þegar
könnun benti til þess að flokkur-
inn fengi þrjá borgarfulltrúa.
Samfylkingin tapar fylgi milli
kannana, og mælist nú með stuðn-
ing 18,3 prósenta borgarbúa. Það
er 9,3 prósentustigum frá 27,6
prósenta kjörfylgi flokksins, og
2,8 prósentustigum minna en
flokkurinn fékk í könnun fyrir
viku síðan. Verði þetta niðurstaða
kosninganna á morgun fær Sam-
fylkingin þrjá borgarfulltrúa, en
er með fjóra í dag.
Stuðningur við Vinstri græn er
svipaður og í síðustu könnun, og
enn talsvert minni en kjörfylgi
flokksins. Í könnuninni sem gerð
var í gærkvöldi sögðust 8,9 prósent
myndu kjósa flokkinn. Stuðningur-
inn mældist 9,8 prósent fyrir viku,
og var 14 prósent í síðustu kosn-
ingum. Vinstri græn fengju miðað
við þetta einn borgarfulltrúa, en
eru með tvo í dag.
Framsókn nær ekki inn manni
Framsóknarflokkurinn mælist
með svipað fylgi og í síðustu viku,
2,6 prósent. Flokkurinn fékk 5,9
prósent atkvæða í síðustu kosn-
ingum og einn borgarfulltrúa, en
kæmi ekki að manni miðað við
niðurstöður könnunarinnar.
Önnur framboð í borginni fá
minna fylgi, og eru langt frá því að
ná manni inn í borgarstjórn verði
niðurstöður kosninga á morgun í
takt við skoðanakönnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2.
H-listi óháðra mælist með stuðn-
ing 1,5 prósenta Reykvíkinga.
Reykjavíkurframboðið og Frjáls-
lyndi flokkurinn mælast með
stuðning 0,6 prósenta borgarbúa
hvor flokkur.
Fjórðungur ekki gert upp hug sinn
Af þeim 800 Reykvíkingum sem
hringt var í sögðust 26,1 prósent
enn óákveðin, tveimur dögum fyrir
kosningar. Þá sögðust 12,8 prósent
þeirra sem þátt tóku í könnuninni
ætla að skila auðu eða sleppa því
að kjósa.
Hringt var í 800 manns fimmtu-
daginn 27. maí. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni, og hlutfallslega eftir aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til sveitar-
stjórnarkosninga í dag? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Hvaða flokk
er líklegast að þú myndir kjósa?
Ef ekki fékkst svar var að lokum
spurt: Er líklegra að þú myndir
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern annan flokk?
Alls tóku 66,4 prósent afstöðu
til spurningarinnar.
brjann@frettabladid.is
SVEITARSTJÓRNIR Neysluvatns-
staðan í Árborg er á uppleið.
Bæjaryfirvöld höfðu hvatt íbúa
til að fara sparlega með vatn
þar sem það var orðið af skorn-
um skammti. Guðmundur Elías-
son, framkvæmdastjóri Fram-
kvæmda- og veitusviðs Árborgar,
mætti á fund bæjarráðs og upp-
lýsti um stöðu vatnsöflunar.
„Fram kom að verið er að
tengja dælur í nýjum holum
þannig að útlit vatnsbirgða stend-
ur til bóta og búið er að gera við
stóran vatnsleka, upp á um 10
sekúndulítra. Þá kom fram að
fyrsti ársfjórðungur ársins er
sá þurrasti í sautján ár,“ segir í
fundargerð bæjarráðs. - gar
Vatnsskortur í Árborg:
Sett fyrir leka
og útlitið betra
MENNTUN Framboðin í Reykjavík
virðast ekki vilja skera meira
niður til leikskóla, segir formaður
Félags leikskólakennara.
Þetta hafi komið fram á fjöl-
mennum framboðsfundi kennara
og fulltrúa flokkanna á miðviku-
dag.
„Frambjóðendur virtust slegnir
yfir hljóðinu í kennurum um áhrif
niðurskurðarins,“ segir formaður-
inn, Marta Dögg Sigurðardóttir.
Hún vill ekki lýsa yfir stuðningi
við neinn flokk, en hvetur fólk til
að kynna sér stefnumálin og „kjósa
svo menntun og leikskóla“. - kóþ
Félag leikskólakennara:
Enginn vill
skera niður
Tók lögreglumann hálstaki
Tæplega tvítugur piltur hefur verið
ákærður fyrir að hafa veist með
ofbeldi að lögreglumanni í Hafnarfirði
í fyrra og tekið hann hálstaki. Lög-
reglumaðurinn hafði haft afskipti af
piltinum vegna skyldustarfa sinna.
DÓMSTÓLAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
20°
18°
12°
21°
18°
14°
14°
24°
20°
25°
21°
33°
15°
19°
18°
15°
Á MORGUN
Hægviðri.
SUNNUDAGUR
Hæg suðvestanátt.
8
9
10
10
10
8
12
6
4
5
4
6
4
6
4
5
3
4
5
7
3
2
12
10
10
9 10
14
12
10
10
8
GOTT VEÐUR UM
HELGINA Veður
verður almennt
gott um helgina en
það verður hæg-
viðri og milt um
allt land. Á morg-
un lítur út fyrir að
bjartast verði um
austanvert landið
en það dregur fyrir
vestan til og má
búast stöku skúr-
um einkum sunn-
an- og vestanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Kosningar
27. maí 2006
Könnun
25. mars
Könnun
29. apríl
Könnun
20. maí
Könnun
27. maí
50
40
30
20
10
0%
Fylgi flokka í Reykjavík
■ Framsóknarflokkurinn ■ Sjálfstæðisflokkurinn ■ Frjálslyndi flokkurinn
■ Óháð framboð um heiðarleika ■ Reykjavíkurframboð ■ Samfylkingin
■ Vinstri græn ■ Besti flokkurinn
Heimild: Kannanir Fréttablaðsins og Stöðvar 2
D-listinn vinnur mann af
Besta flokknum í borginni
Besti flokkurinn fær sjö borgarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum á morgun samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2. Fleiri styðja Sjálfstæðisflokkinn en fyrir viku, en færri Samfylkingu og Besta flokkinn.
STJÓRNMÁL „Þetta eru nú ákveðin
vonbrigði. Ég stóð í þeirri trú að
við myndum bæta við okkur jafnt
og þétt. Ég hef stefnt að því allan
tímann að ná hreinum meirihluta
til að við getum staðið fyrir ein-
hverjum alvöru breytingum í
borginni,“ segir Jón Gnarr, efsti
maður á lista Besta flokksins.
„Ég hef fulla trú á því og vona
það svo innilega að við náum
hreinum meirihluta svo það verði
alveg gleði í gegn og Reykvíking-
ar geti átt bjarta og skemmtilega
framtíð með Besta flokknum.“
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingar-
innar vill gera
betur í kosn-
ingunum en í
könnuninni.
„Við teljum
atvinnumálin
vera stærsta
málið og erum
eini flokkur-
inn sem er að
kynna raun-
hæfa aðgerða-
áætlun í þeim málaflokki. Ég
vona því að eftir að hefur verið
talið upp úr kössunum þá verði
staða okkar enn sterkari en þetta
gefur til kynna,“ segir Dagur B.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
oddviti Sjálfstæðisflokksins, von-
ast eftir betri niðurstöðu í kosn-
ingunum.
„Við erum að sækja á miðað
við síðustu könnun Fréttablaðs-
ins þótt aðrar nýlegar skoðana-
kannanir hafi sýnt okkur eitthvað
hærri. Ég vonast auðvitað til þess
að niðurstaðan úr kosningunum
færi okkur fleiri borgarfulltrúa
og að íbúar í Reykjavík kjósi með
áframhaldandi árangri án skatta-
hækkana og nýjum vinnubrögð-
um í stjórnmálum,“ segir Hanna
Birna.
Sóley Tómasdóttir, oddviti
Vinstri grænna, hafði fátt um
könnunina að segja.
„Ég hef fátt um þetta að segja.
Ég ætla bara að nota daginn á
morgun til að halda áfram að
tala við fólk. Við erum á baráttu-
fundi í Iðnó þar sem er brjálæð-
isleg stemning og brjálæðislega
margir. Við ætlum bara að fara
út og sannfæra fólk og það mun
alveg örugglega takast,“ segir
Sóley Tómasdóttir.
- shá
Jón Gnarr oddviti Besta flokksins segir niðurstöðu könnunarinnar vera ákveðin vonbrigði:
Vonast eftir betri niðurstöðu í kosningunum
JÓN GNARR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 27.05.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,7195
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
130,02 130,64
189,11 190,03
159,73 160,63
21,467 21,593
19,993 20,111
16,518 16,614
1,4359 1,4443
191,09 192,23
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
www. tengi.is
Gæði,þjónusta og ábyrgð
- það er TENGI
IFÖ
INNRÉTTING
EINFALDAR Í UPPSETNINGU - KOMA SAMSETTAR!
29.900.-
Tilboðsverð