Fréttablaðið - 28.05.2010, Page 16
16 28. maí 2010 FÖSTUDAGUR
Sveitarstjórnarmenn í
stærstu sveitarfélögum
landsins geta haft nokkur
hundruð þúsund krónur
á mánuði fyrir störf sín.
Misjafnt er hvernig sveitar-
félög haga greiðslum til
kjörinna fulltrúa. Bæjar-
stjórar geta haft ýmsar
aukagreiðslur ofan á hefð-
bundin laun.
Mörg dæmi eru um að sveitar-
stjórnarmenn hafi nokkur hundr-
uð þúsund krónur í laun fyrir störf
í þágu sveitarfélaga. Slík laun fást
með greiðslum fyrir formennsku
og setu í veigamestu ráðum og
nefndum bæjarfélaganna sem
leggjast ofan á hefðbundin bæjar-
fulltrúalaun.
Launagreiðslum til sveitar-
stjórnarmanna er háttað með
margvíslegum hætti. Sums staðar
eru föst laun bæjarfulltrúa tiltölu-
lega lág en á móti koma greiðslur
fyrir hvern setinn fund. Annars
staðar eru launin hærri og ekki
er greitt sérstaklega fyrir fundi.
Að sama skapi er misjafnt hvort
greidd eru tiltölulega há laun
fyrir setu í nefndum og ekkert
fyrir hvern fund eða tiltölulega lág
nefndarlaun og þeim mun hærra
fyrir fundi.
Almennt má segja að launa-
greiðslur til sveitarstjórnarmanna
séu í nokkru samræmi við umsvif
sveitarfélaganna. Þar sem íbúarn-
ir eru flestir eru launin hæst.
Fréttablaðið óskaði upplýsinga
um kjör frá tíu sveitarfélögum. Í
flestum tilvikum veittu upplýs-
ingafulltrúar eða embættismenn
þær. Hér að neðan eru helstu upp-
lýsingar samandregnar. Í sumum
tilvikum eru launakerfin flókin.
Borgarfulltrúar í Reykjavík eru
sér á parti hvað varðar föst laun.
Þeir fá rúmlega fjögur hundruð
þúsund krónur á mánuði. Hafn-
firskir bæjarfulltrúar koma næstir
með tæplega 150 þúsund á mánuði
í föst laun. Til marks um hve ólíkt
fyrirkomulagið er milli sveitarfé-
laga má benda á að í Hafnarfirði fá
bæjarráðsmenn 81 þúsund krónur
á mánuði en í Kópavogi þar sem
bæjarfulltrúarnir hafa 143 þús-
und eru greiddar tæpar 150 þús-
und krónur fyrir setu í bæjarráði.
Í Reykjavík hafa flestir borgar-
fulltrúar lifibrauð sitt af stjórn-
málastörfum. Í öðrum sveitarfélög-
um sinna fulltrúar bæjarmálunum
samhliða öðrum störfum.
Framkvæmdastjórar flestra
sveitarfélaganna sem athugunin
náði til eru jafnframt kjörnir full-
trúar. Misjafnt er hvort þeir þiggja
laun sem slíkir ofan á bæjarstjóra-
launin. Einnig er misjafnt, eftir því
sem athugunin leiddi í ljós, hvort
þeir fá aðrar aukagreiðslur.
Ekki hefur borið mikið á því
að fólk bjóði sig fram til sveitar-
stjórna launanna vegna. Ljóst er
þó að það getur verið ágætt upp úr
því að hafa. Starfsöryggið er hins
vegar lítið.
FRÉTTASKÝRING: Kjör kjörinna fulltrúa
Ágætt upp úr því að hafa
Betur borgað í Reykjanesbæ heldur en í Reykjavík
Björn Þór
Sigbjörnsson
bjorn@frettabladid.is
Reykjavík 118 þúsund íbúar
■ Föst mánaðarlaun borgarfulltrúa eru rúmlega 404
þúsund krónur. Forseti borgarstjórnar fær rúmlega
505 þúsund krónur á mánuði. Fyrir setu í borgarráði
greiðast hundrað þúsund krónur á mánuði. Formaður
borgarráðs fær 162 þúsund krónur. Formenn fagráða
og borgarstjórnarflokka fá hundrað þúsund krónur á
mánuði.
■ Heildarlaun Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra
í Reykjavík, eru 1.001.400 krónur á mánuði. Til við-
bótar fær hún 106 þúsund krónur fyrir formennsku í
stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Kópavogur 30 þúsund íbúar
■ Föst mánaðarlaun bæjarfulltrúa eru 134 þúsund
krónur. Forseti bæjarstjórnar fær 208 þúsund. Fyrir
setu í bæjarráði eru greiddar tæplega 150 þúsund
krónur á mánuði. Formaður bæjarráðs fær 218 þús-
und. Fyrir aukafundi í bæjarstjórn eða bæjarráði eru
greiddar 35 þúsund krónur.
■ Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi,
er með samtals 1.122.398 krónur á mánuði. Föst
mánaðarlaun hans eru rúmar 700 þúsund og föst
yfirvinna er 114 þúsund. Gunnsteinn fær 133 þúsund
krónur fyrir setu í bæjarstjórn, 17 þúsund fyrir setu í
hafnarstjórn og 26 þúsund krónur fyrir að vera í stjórn
Tónlistarhúss Kópavogs. Þá fær hann mánaðarlegan
bifreiðastyrk upp á 123 þúsund krónur.
Hafnarfjörður 26 þúsund íbúar
■ Föst laun bæjarfulltrúa eru tæpar 148 þúsund krónur
á mánuði. Bæjarráðsmenn fá aukalega 81 þúsund á
mánuði og formaður bæjarráðs 121 þúsund. Fyrir setu
í öðrum ráðum eru greiddar 67 þúsund krónur. Ráðs-
formenn fá rúmlega 100 þúsund krónur á mánuði.
Sitji bæjarfulltrúar í starfsnefndum fá þeir rúmlega 13
þúsund krónur á fund. Formenn starfsnefnda fá 20
þúsund krónur á fund.
■ Föst laun Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra eru
1.009.167 krónur.
Seltjarnarnes 4.400 íbúar
■ Bæjarfulltrúar fá tæplega 138 þúsund krónur á mán-
uði. Í sparnaðarskyni fá bæjarfulltrúar ekki greitt fyrir
nefndasetu á árinu eftir sérstaka ákvörðun þar um.
■ Ásgerður Halldórsdóttir er með 1.050.000 á mánuði
fyrir bæjarstjórastarfið. Til viðbótar fær hún greidd-
ar 138 þúsund krónur sem bæjarfulltrúi; samtals
1.187.904 krónur.
Reykjanesbær 14 þúsund íbúar
■ Föst laun bæjarfulltrúa eru 50 þúsund krónur
en þeir fá greiddar 30 þúsund krónur fyrir hvern
bæjarstjórnarfund. Slíkir fundir eru haldnir aðra hverja
viku. Forseti bæjarstjórnar fær 75 þúsund á mánuði
og 50 þúsund á fund. Fyrir setu í bæjarráði eru
greiddar rúmlega 100 þúsund krónur auk 20 þúsund
króna fyrir hvern fund. Formaður bæjarráðs fær 151
þúsund í fasta mánaðargreiðslu. Tíu þúsund krónur
eru greiddar fyrir nefndasetu auk fjórtán þúsunda
fyrir hvern fund. Formenn nefnda fá tuttugu þúsund á
mánuði.
■ Árni Sigfússon fær samtals 1.292.810 í laun á mánuði.
Föst laun eru 1.044.626 krónur, bifreiðastyrkur nemur
169.916 krónur, önnur hlunnindi 58.035 krónur og
fyrir formennsku í eftirlaunasjóði Reykjanesbæjar fær
hann 20.233 krónur.
Akranes 6.500 íbúar
■ Föst laun bæjarfulltrúa eru 90 þúsund krónur. Forseti
bæjarstjórnar fær 264 þúsund. Fyrir setu í ráði eru
greiddar 147 þúsund og formennsku 181 þúsund.
Fyrir setu í tveimur ráðum fá bæjarfulltrúar rúmar 200
þúsund krónur. Greiddar eru níu þúsund krónur fyrir
hvern fund í nefndum bæjarins.
■ Gísli Einarsson bæjarstjóri er með 700 þúsund krónur
á mánuði. Hann fær akstursgreiðslur samkvæmt
akstursdagbók. Gísli á ekki sæti í bæjarstjórn.
Ísafjörður 3.900 íbúar
■ Föst laun bæjarfulltrúa eru 37.500 krónur og greiddar
eru rúmar 20 þúsund krónur á hvern fund. Forseti
bæjarstjórnar fær 41.600 á fund. Fyrir bæjarráðsfundi
eru greiddar 21 þúsund krónur og formaður bæjar-
ráðs fær 41.600. Fyrir fundi í öðrum nefndum eru
greiddar rúmar tíu þúsund krónur og nefndarformenn
fá rúmlega tuttugu þúsund.
■ Heildarlaun Halldórs Halldórssonar eru 968.050 á
mánuði. Föst laun og yfirvinna nema 805.750 krón-
um, sem bæjarfulltrúi fær hann 37.500 og samtals
rúmar fjörutíu þúsund fyrir bæjarstjórnarfundi. Hall-
dór fær greitt fyrir notkun eigin bifreiða í starfi.
Akureyri 17.500 íbúar
■ Föst laun bæjarfulltrúa eru 110 þúsund krónur. Forseti
bæjarstjórnar hefur 186 þúsund. Fyrir setu í bæjarráði
eru greiddar 135 þúsund krónur og formaður bæj-
arráðs fær 212 þúsund. Fyrir setinn fund í nefndum
bæjarins eru greiddar rúmar þrettán þúsund krónur.
Formenn „stærri“ nefnda fá sextíu þúsund krónur á
mánuði.
■ Heildarlaun Hermanns Jóns Tómassonar eru
1.064.642 krónur. Hann er með 634.380 krónur
í mánaðalaun og fær auk þess greiddar 380.628
krónur í stjórnendaálag sem er greiðsla fyrir allt
vinnuframlag sem fellur til utan dagvinnumarka. Orlof
á stjórnendaálag er 49.634 þúsund.
Fjarðabyggð 4.600 íbúar
■ Föst mánaðarlaun bæjarfulltrúa eru rúmar 50 þúsund
krónur og greiddar eru 15 þúsund krónur fyrir hvern
bæjarstjórnarfund. Forseti bæjarstjórnar fær 95 þús-
und á mánuði og 31 þúsund á fund. Bæjarráðsmenn
fá 15 þúsund krónur fyrir fund en formaður bæjarráðs
fær tvöfalda greiðslu. Tíu þúsund krónur eru greiddar
fyrir hvern fund í ráðum bæjarins.
■ Heildalaun Helgu Jónsdóttur bæjarstýru í Fjarðabyggð
eru 1.004.482 krónur. Hún er ekki kjörinn fulltrúi.
Árborg 7.800 íbúar
■ Fastar mánaðargreiðslur bæjarfulltrúa eru 114 þúsund
krónur. Forseti bæjarstjórnar fær 191 þúsund. Fyrir
setu í bæjarráði eru greiddar 38 þúsund krónur og
fær formaður tvöfalda þá fjárhæð. Fyrir að sitja í
„stærri“ nefndum bæjarins eru greiddar rúmar tólf
þúsund krónur og 22 þúsund fyrir formennsku.
■ Heildarlaun Ragnheiðar Hergeirsdóttur eru 1.159.709
krónur. Bæjarstjóralaunin nema 969.765 krónum
á mánuði og bifreiðahlunnindi eru 75.292 krónur.
Ragnheiður fær að auki 114 þúsund fyrir setu í bæjar-
stjórn og 31 þúsund krónur fyrir hvern bæjarstjórnar-
fund.
Byggt á upplýsingum frá sveitarfélögunum.
LEIKJADAGUR
IGI OG HR
Háskólinn í Reykjavík og samtök fyrirtækja í leikjaiðnaði á
Íslandi (IGI) bjóða til Leikjadags í Háskólanum í Reykjavík,
Menntavegi 1, Bellatrix, laugardaginn 29. maí frá
kl. 14:00 – 17:00
14:00 – 14:10
Setning
Erla Bjarney Árnadóttir, Gogogic, stjórnarformaður IGI
14:10 – 14:40
Umhverfi sprotafyrirtækja á Íslandi
Staðan í dag – Ingi Bogi Bogason, Samtökum iðnaðarins
Horft til framtíðar – Ari Kristinn Jónsson, rektor HR
14:40 – 15.20
Samstarf HR og IGI
Leikjaþróunarlína HR – Björn Þór Jónsson, HR
Samstarfssamningur HR og IGI – Ólafur Andri Ragnarsson,
Betware og HR
Gervigreind í leikjum – Yngvi Björnsson, HR
Vitverur í sýndarheimum – Hannes Högni Vilhjálmsson, HR
15:20 – 15:40 Hlé
15:40 – 16:40
Skemmtisögur úr leikjaiðnaði
Alice og börnin í undralandi tölvuleikjanna – Rakel Sölvadóttir
og Laufey Dís Ragnarsdóttir sálfræðinemar við HR
Hvað er með þennan tölvuleikjaheim? – Örn Haraldsson,
Mindgames
Þegar piparkökur bakast – Jónas Björgvin Antonsson, Gogogic
Leikjaiðnaðurinn á Íslandi – Eyjólfur Guðmundsson, CCP
16:40 – 17:00
IGI Awards – Tölvuleikjasamkeppni IGI
Afhending verðlauna – Dómnefnd IGI Awards
Léttar veitingar og kynningar á leikjum og fyrirtækjum
Kynnir: Svana Gunnarsdóttir, Frumtaki
Allir velkomnir!
Aðgangur ókeypis
Kynntu þér dagskrána á:
www.hr.is/td
SAMAN OG SUNDUR Björn Ingi Hrafnsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafa báðir
setið í borgarstjórn Reykjavíkur. Björn stutt en Vilhjálmur lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI