Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.05.2010, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 28.05.2010, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 28. maí 2010 19 Ímyndum okkur að skyndilega kæmu á yfirborðið upplýsingar sem myndu draga í efa eitthvað af þeim röksemdarfærslum sem sér- stakur saksóknari beitti fyrir sig þegar hann handtók á dögunum nokkra háttsetta bankamenn og fékk staðfest gæsluvarðhald yfir þeim. Hvað svo sem það gæti verið – myndband, tölvupóstur, minnisblað eða eitthvað annað. Upplýsingarnar gæfu ekkert endilega til kynna að ástæður frelsissviptinganna væru algjörlega úr lausu lofti gripnar en sýndu fram á vankanta og misræmi í því ferli sem leiddi til þeirra. Ímyndum okkur fjölmiðlaumfjöll- unina í kjölfarið. Sjáum fyrir okkur leiðara stærstu fréttablaðanna. Við vitum það öll að slíkar upplýsing- ar myndu ekki mæta þögninni einni saman, heldur yrðu þær ræddar í þaula – ekki síst af þeim sem stýra fjölmiðla- og almannaumræðunni. Misræmi í gögnum ákæruvaldsins Fimmtudaginn 20. maí, birti Kast- ljós fréttaskýringu um dómsmálið gegn nímenningunum svokölluðu, sem ákærðir eru fyrir meinta árás á Alþingi í desember 2008. Kast- ljósið birti m.a. myndband úr eftir- litsmyndavél sem staðsett er í bak- anddyri Alþingishússins, sem sýnir þegar nímenningarnir fóru ásamt tuttugu öðrum inn í þinghúsið. Þingverðir brugðust við með því að reyna að hindra inngöngu fólks, til stympinga kom og einn þingvörð- ur féll á ofn með þeim afleiðingum að hún meiddist á baki. Hún hefur nú krafist tæplega milljón króna skaðabóta frá einum nímenning- anna. Í málsgögnunum öllum er mikið misræmi, til að mynda þegar kemur að þessu umrædda atviki. Í atvikalýsingu þeirri sem á að rök- styðja ákærurnar er fullyrt að hinn ákærði hafi ýtt með hægri hendi sinni í þingvörðinn og þannig hafi hún dottið. Í skaðabótakröfunni er því hins vegar haldið fram að hinn ákærði hafi snúið sér við og ýtt af öllu afli, með báðum hönd- um í þingvörðinn. Sú lýsing kemur frá þingverðinum sjálfum, eftir að lögreglumenn þeir sem stóðu að rannsókn málsins yfirheyrðu hana um miðjan janúar 2009. Myndbandið sem sýnt var í Kastljósi sýnir hins vegar að hinn ákærði notar hvorki hægri né báðar hendur, snýr sér ekki við og ýtir engum af öllu afli, heldur er hann dreginn til af öðrum þingverði svo hann lendir á fyrrnefnda þingverð- inum, þeirri sem krefst skaðabóta. Fram kemur í gögnum frá lögregl- unni að síðarnefndi þingvörðurinn hafi, eftir að hafa lýst atburðun- um og svo séð myndbandsupptök- una, lýst yfir að hún hafi upplifað atburðinn öðruvísi en sést á mynd- bandinu. Lögreglumennirnir virð- ast þó enga ástæðu sjá til að spyrja hana nánar út í það sem var „öðru- vísi“ í minningunni, né heldur hvetja þeir hana til að draga mál- flutning sinn til baka. Þvert á móti standa orð hennar og eru notuð í skaðabótakröfunni – þó þau stang- ist ekki einungis á við myndbandið, heldur einnig fyrrnefnda atvikalýs- ingu ákærunnar. Þetta er sérstaklega athugavert í því ljósi að í upphafi yfirheyrsl- unnar tilkynna lögreglumennirn- ir þingverðinum að hún hafi stöðu vitnis í málinu og að henni beri að segja satt og rétt frá atburðum – annað geti varðað við lög. Hver eru viðbrögðin? Þetta er eitt dæmi af mörgum um upplýsingar í ákærugögnunum frá settum ríkissaksóknara í mál- inu, sem einfaldlega grafa undan stoðum ákærunnar sjálfrar og þeim röksemdum sem hún byggir á. Tæpt var á einhverjum af þeim upplýsingum í Kastljósþættinum þann 20. maí. Og hver eru viðbrögð annarra fjölmiðla? Hver eru viðbrögð rit- stjóra Fréttablaðsins og Morgun- blaðsins, sem hafa ekki hikað við að kalla okkur nímenningana ofbeldis- menn og fullyrt bæði og alhæft um atvikið sem við erum kærð fyrir – á sama tíma og þeir hafa hamrað á nauðsyn þess að vel sé komið fram við fyrrnefnda handtekna banka- menn og verið tíðrætt um að það sé grunnur réttarríkisins að sakborn- ingar séu saklausir þar til sekt er sönnuð? Viðbrögð þeirra er þögnin ein. Rétt eins og viðbrögð Láru V. Júlí- usdóttur, setts saksóknara í máli okkar, og Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis, við beiðni Helga Seljan um að ræða við þau við vinnslu á Kastljósþættinum. Eins og viðbrögð Egils Helgasonar, sem hingað til hefur ekki hikað við að fjalla um okkur níu sem ofbeldis- menn. Eins og viðbrögð hægri vef- miðlanna AMX og T24, sem reynd- ar hafa lýst yfir andúð á umfjöllun Kastljóssins en ekki gefið neinar skýringar á því. Nú þegar óþægilegar upplýsing- ar um ákærurnar hafa komið fram – upplýsingar sem draga í efa rétt- mæti dómsmálsins og sýna fram á léleg og hlutdræg vinnubrögð lög- reglunnar – virðist þögnin ein vera eftir. Þegar þögnin ein er eftir Dómsmál Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson listamaður og einn níu ákærðra fyrir árás á Alþingi Tími til athafna Nú eru tæplega 1.600 einstakl-ingar atvinnulausir í Kópa- vogi. Hálfbyggð hús í nýrri hverf- um bæjarins eru glöggt merki þeirrar lægðar sem íslenskt efna- hagslíf er nú í. Nú er tími til athafna, það þýðir ekki að bíða eftir að ástand- ið batni af sjálfu sér. Það þýðir ekki að bíða eftir því að aftur verði hægt að úthluta lóðum. Það þarf að koma verkefnum í gang nú þegar. Við þessar aðstæður er mikilvægt að snúa sér fyrst að því sem tekur skamman tíma að koma af stað. Slíkt verkefni er t.d. að bærinn hafi milligöngu um að ljúka byggingu hálfkláraðs hús- næðis í bænum og koma í leigu. Slá tvær flugur í einu höggi, skapa störf um leið og grunnur er lagður að traustum leigumarkaði líkt og þekkist á hinum Norður- löndunum. Bjóða upp á raunveru- legan valkost við eignarformið og tryggja að þeir sem ekki hafa bol- magn eða áhuga á að leggja háar upphæðir í fasteignakaup hafi annan möguleika. Stór hópur ungs fólks bíður nú í foreldra- húsum eftir því að geta stofnað heimili. Ef ekkert er að gert mun skapast hér skortur á fasteigna- markaði innan fárra ára. Þegar uppgangur var sem mestur í íslensku samfélagi stóð hið opinbera í stórfelldum fram- kvæmdum. Kópavogur safnaði skuldum á tímum þegar skyn- samlegra hefði verið að greiða niður skuldir. Það er kunn hag- fræði að á tímum þenslu eigi ríki og sveitarfélög að halda að sér höndum og greiða niður skuldir. Þegar harðnar á dalnum á aftur á móti að ráðast í framkvæmd- ir sem skapa störf þótt það feli í sér skuldaaukningu. Við megum ekki stöðva allar framkvæmd- ir á tímum samdráttar og niður- sveiflu. Í stað þess að sitja með hendur í skauti og bíða eftir að ástand- ið lagist þarf að taka til höndum. Verkefnin eru mörg, það þarf að sá í opin sár þar sem tómar lóðir standa á milli nýbyggðar húsa. Það þarf að ganga frá slysa- gildrum og fegra umhverfið, það þarf að fegra bæinn okkar með skjólbeltum, fegra grámygluleg- ar stéttir og torg með runnum og blómum. Við eigum að grípa allar góðar hugmyndir og gera að veruleika, styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og byggja upp nýjar atvinnugreinar. Tæki- færin eru víða. Atvinnumál eru forgangsmál Samfylkingarinnar í Kópavogi. Við ætlum að sækja fram í stað þess að bíða þess sem verða vill. Sveitastjórnarkosningar Guðríður Arnardóttir oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Stór hópur ungs fólks bíður nú í for- eldrahúsum eftir því að geta stofnað heimili. Dalshrauni 13 og Grensásvegi 48, sími 578-9700 Hamborgarar með sérbökuðum hamborgarabrauðum Grísalundir með sælkerafyllingu Helgardesertinn: Sælkeradraumur TILBOÐ HELGARINNAR Höfum opnað nýja glæsilega verslun á Grensásvegi 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.