Fréttablaðið - 28.05.2010, Qupperneq 66
34 28. maí 2010 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 20 í kvöld
Breski gamanleikurinn 39 þrep
verður sýndur í Íslensku óperunni
í kvöld og gefst því Faxaflóabúum
tækifæri til að sjá þennan sprett-
harða gamanleik sem hefur fengið
einróma lof gagnrýnenda og vakið
óskiptan fögnuð þúsunda leikhús-
gesta norðan heiða. Sýningar verða
fáar sunnan heiða á þessu vori.
> Ekki missa af …
Árlegum vortónleikum kvenna-
kórsins Emblu í Glerárkirkju á
Akureyri og Laugarneskirkju í
Reykjavík um helgina. Tónleik-
arnir í Glerárkirkju verða í kvöld
kl. 20 og í Laugarneskirkju á
sunnudaginn kl. 16. Einsöngv-
ari með kórnum er Elín Ósk
Óskarsdóttir sópran. Hljóðfæra-
leikarar eru Helga Kvam, harm-
onium, Richard Simm, píanó
og Sophie Marie Schoonjans,
harpa.
Sýningin Lýðveldið á eyrinni verður
opnuð á morgun kl. 14 í húsnæði Gamla
kaupfélagsins á Þingeyri, en það er eitt
af elstu verslunarhúsum landsins, byggt
árið 1874. Sýningin er hluti af stórum
sýningargjörningi hóps átta myndlistar-
manna. Listamennirnir sem sýna eru:
Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg
Lind Jónsdóttir, Hildur Margrétardóttir,
Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir,
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá og Ólöf
Oddgeirsdóttir.
Umfjöllunarefni sýningarinnar er sótt í ólíka
afkima hins íslenska lýðveldis, tengsl okkar við
menningu, náttúru og ólíkt rými sýningarstaðanna,
sem gjarnan tengjast atvinnusögu þjóðarinnar.
Hópurinn hefur gert víðreist og sýnt í óhefðbundnu
sýningarhúsnæði svo sem í hlöðu við Mývatn, í
yfirgefnum verbúðum í Ingólfsfirði á
Ströndum og í húsnæði gömlu ullarverk-
smiðjunnar að Álafossi.
Sýningarnar standa í flestum tilfellum
aðeins yfir eina helgi og hafa því yfir sér
blæ gjörnings og því má líkja listamönn-
unum við farandverkamenn sem stoppa
stutt á hverjum stað í stöðugri leit að
nýjum verkefnum. Upphaf samstarfs
listamannanna má rekja til sýningarinnar
Lýðveldið Ísland sem haldin var í Þrúð-
vangi, Álafosskvosinni árið 2004 og tileinkuð var 60
ára afmæli íslenska lýðveldisins.
Á laugardaginn verður boðið upp á léttar veiting-
ar og harmonikkuleik og á sunnudag verður hægt
að fylgjast með listamönnunum við vinnu sína. Allir
eru boðnir velkomnir. Þess má geta að sýningar-
verkefnið hlaut styrk frá Menningarráði Vestfjarða.
Lýðveldið á eyrinni
ANNA JÓA
BÓKSÖLULISTINN
Bóksölulistinn er birtur á tveggja vikna fresti og mælir sölu
íslenskra bóka. Listinn er byggður á upplýsingum frá flestum
bóksölum landsins, dagvöruverslunum og öðrum verslunum sem
selja bækur. Rannsóknarsetur verslunarinnnar annast söfnun
upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda. Eftirfarandi
verslanir taka þátt í gerð listans: Bókabúð Máls og menningar,
Bókabúðin Eskja, Bókabúðin Hamraborg, Bókabúðin Iða, Bókabúð-
in við höfnina (Stykkishólmi), Bóksala stúdenta, Bónus, Hagkaup,
Kaupás, N1, Office 1, Penninn - Eymundsson, Samkaup
Metsölulisti 10.05.10 - 23.05.10
nr. Titill Höfundur Forlag/útgefandi
1. Hrunadans og horfið fé Styrmir Gunnarsson Veröld
2. Rannsóknarskýrsla Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis Alþingi
3. Góða nótt, yndið mitt Dorothy Koomson JPV útgáfa
4. Fyrirsætumorðin James Patterson JPV útgáfa
5. Hafmeyjan Camilla Läckberg Undirheimar
6. Sítrónur og saffran Kajsa Ingemarsson Mál og menning
7. Hálendishandbókin 2010 Páll Ásgeir Ásgeirsson
Útgáfufélagið Heimur
8. Missir Guðbergur Bergsson JPV útgáfa
9. Nemesis Jo Nesbø Uppheimar
10. Friðlaus Lee Child JPV útgáfa
Á morgun verður nýtt
leik- og tónverk fyrir börn,
Herra Pottur og ungfrú
Lok, frumsýnt í Kúlunni,
barnaleiksviði Þjóðleik-
hússins. Sýningin er
bræðingur tónlistar eftir
Bohuslav Martinu frá 1927
og sögu Christhophe Garda
frá 2007 sem í fyrsta sinn
er sögð í sviðsuppfærslu á
Íslandi fyrir tilstilli Óper-
arctic félagsins.
Veröld herra Potts og ungfrú-
ar Loks er allt í senn spennandi,
undursamleg og heillandi fyrir
öll börn allt frá fjögurra ára til
hundrað og fjögurra. Með hjálp
sex hljóðfæraleikara, að minnsta
kosti jafnmargra brúða og einn-
ar sögukonu, Sólveigar Simha,
er áhorfendum fylgt hönd í hönd
í ævintýralegt ferðalag um hið
fagra draumaland Bohuslavs litla
Martinus, drengs sem sér áhöldin
í eldhúsinu lifna við. Ástir herra
Potts og ungfrúar Loks fara nán-
ast út um þúfur vegna afbrýði-
semi daðurdrósarinnar Kvarn-
ar. Pörupilturinn Klútur og hinn
reglufasti herra Sópur dragast
inn í atburðarás sem erfitt er að
sjá fyrir endann á. Tónlistin segir
einnig sögu, en það er saga djass,
tangó, charleston og foxtrott.
Leikstjóri að verkinu er Ágústa
Skúladóttir, en búninga, brúður og
sviðsmynd skóp Katrín Þorvalds-
dóttir. Sögumaður og leikari er
Sólveig Simha.
Sýningardagar eru á morgun,
30. maí, 5. og 6. júní kl. 13 og 15.
Ein sýning á frönsku 3. júní kl. 17.
Sýningin er á dagskrá Listahátíð-
ar í Reykjavík 2010 og er sam-
starfsverkefni Óperarctic félags-
ins og Þjóðleikhússins studd af
Alliance française, Reykjavíkur-
borg, Tónlistarsjóði, Barnamenn-
ingarsjóði og Barnavinafélaginu
Sumargjöf.
Herra Pottur og ungfrú Lok
er listrænt og fræðandi verk-
efni fyrir börn. Það miðar að því
að kynna fyrir þeim töfraheim
sígildrar tónlistar og leihússins
í senn. Óperarctic félagið, sem
hefur það að markmiði að setja
upp óhefðbundnar tónlistarsýn-
ingar, vill með þessari sýningu
vekja áhuga ungra hlustenda
á þessu einstaka listformi sem
reynir á allt í senn, rödd, líkama
og hljóðfæraleik. Herra Pottur
og ungfrú Lok er annað leikverk
félagsins en kammeróperan Hugs-
tolinn var sett upp á Listahátíð í
Reykjavík 2004 og fór í leikför um
Norður-Evrópu.
Fyrir nokkrum árum samdi
franski leikhúslistamaðurinn
Christophe Garda sögu, ævin-
týri fyrir börn, út frá raddskrá
Bohuslavs Martinus og var verk-
ið frumflutt í tónleikauppfærslu
ásamt sögumanni við enduropn-
un Salle Pleyel-leikhússins í París
árið 2007. Sama ár tók Sólveig
Simha þátt í upptökum á vegum
franska útgefandans Intrada á
tónaævintýrinu. Hlöðver Ellerts-
son þýddi söguna á íslensku og í
framhaldi af því ákvað Óperarc-
tic félagið að setja verkið upp hér
á landi. Sviðsuppfærsla Óperarc-
tic félagsins í Þjóðleikhúsinu á
sögu Garda við tónlist Martinus
er sú fyrsta sinnar tegundar.
Með hjálp sex hljóðfæraleik-
ara, að minnsta kosti jafnmargra
brúða og einnar sögukonu, Sól-
veigar Simha, er áhorfandinn
leiddur hönd í hönd í ævintýralegt
ferðalag um hið fagra draumaland
Bohuslavs litla Martinus.
pbb@frettabladid.is
Passar sem lok á pott
LEIKLIST Brúður, saga og tónlist skapa draumaheim í Kúlunni þessa dagana.
MYND ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ/EDDI
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 28. maí 2010
➜ Tónleikar
19.00 og 22.00 Eivør
Pálsdóttir heldur tvenna
útgáfutónleika í Íslensku
óperunni við Ingólfsstræti.
Einnig koma fram á tón-
leikunum kvennakórinn
Graduale Nobili, auk
karlaradda úr kór Lang-
holtskirkju og nokkrir
meðlimir úr Caput-
hópnum.
22.00 Hvannadals-
bræður halda útgáfutón-
leika á Græna Hattinum
við Hafnarstræti á Akur-
eyri. Húsið verður opnað
kl. 21.
➜ Opnanir
20.00 Una Björk Sigurðardóttir,
Katrín I. Jónsd. Hjördísard. og Greg
Barret sýna málverk, skúlptúra og
leirmuni á sýningu sem opnar í gall-
ery Crymo að Laugavegi 41a. Opið
þri-sun kl. 13-18.
➜ Sýningar
Í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar í Duushús-
um við Duusgötu hefur
verið opnuð sýning á
verkum fimm mynd-
listarkvenna: Önnu
Líndal, Guðrúnar
Gunnarsdóttur,
Hildar Bjarna-
dóttur, Hrafn-
hildar Arnar-
dóttur og Rósu
Sigrúnar Jóns-
dóttur. Opið virka
daga kl. 11-17 og
um helgar kl. 13-17.
➜ Uppistand
20.00 Davíð Þór Jónsson og Steinn
Ármann Magnússon flytja uppistands-
sýninguna Villidýr og Pólitík eftir Ricky
Gervais hjá Leikfélagi Akureyrar við
Hafnarstræti á Akureyri.
➜ Leikrit
20.00 Leikhópurinn CommonNon-
sense sýnir verkið Af ástum manns og
hrærivélar í Kassanum, sýningarrými
Þjóðleikhússins við Lindagötu. Nánari
upplýsingar á www.leikhusid.is.
➜ Dans
20.00 Ragnheiður S. Bjarnarson sýnir
dansverkið Kyrrja í Norðurpólnum
við Norðurslóð á Seltjarnarnesi. Nánari
upplýsingar á www.midi.is.
20.00 Dansverkið Bræður eftir
Ástrósu Gunnarsdóttur og Láru Stef-
ánsdóttur verður sýnt í Þjóðleikhúsinu
við Hverfisgötu. Nánari upplýsingar á
www.listahatid.is.
DEILDARBUNGU-
BRÆÐUR
Á STÓRDANSLEIK Í IÐNÓ Í KVÖLD
Föstudagskvöldið 28. maí.
Hin goðsagnakennda hljómsveit
Staðaruppbótin hitar upp
ásamt háleynilegum gestum!
Húsið opnar kl. 21.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…