Fréttablaðið - 28.05.2010, Page 74

Fréttablaðið - 28.05.2010, Page 74
42 28. maí 2010 FÖSTUDAGUR FÓTBOLTI Knattspyrnufélög á Íslandi geta sótt um undanþágu frá félagaskiptareglum til að fá til sín markmann utan félagaskipta- glugga lendi þau í markmanns- vandræðum. Keflvíkingar sóttu um slíka undanþágu í gær vegna meiðsla Ómars Jóhannssonar. Samkvæmt reglugerð 10.2 um um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga geta félög- in fengið undanþáguna frá fram- kvæmdastjóra KSÍ „ef rík ástæða er til“. En hvað þýðir það? „Það eru fordæmi fyrir þess- um málum. Þetta gildir yfirleitt ef báðir eða jafnvel fleiri mark- menn eru meiddir eða í banni,“ segir framkvæmdastjórinn Þórir Hákonarson. Samkvæmt reglugerðinni skal félagið „leggja fram rök- studda greinargerð ásamt fylgigögnum“ þegar það sækir um undanþág- una. En Þórir segir að það sé alls ekki allt- af sem félög fái und- anþáguna, og að það sé ekki sjálfgefið. „Félögin leggja af stað inn í mótið með sína leikmannahópa sem þjálf- arinn velur. Reglan er aðeins til undantekninga, menn geta ekki reiknað með henni nema ríkar ástæður séu til,“ segir Þórir. Árið 2006 kom upp umdeilt mál þegar ÍBV sótti um undanþágu. Hrafn Davíðsson fór utan í nám þegar fjór- ar umferðir voru eftir. Varamarkmaður var Guðjón Magnússon, þá 23 ára, en ÍBV fékk ekki undanþáguna. Viðar Elíasson, þáverandi formaður knattspyrnu- deildar ÍBV, sagði að KSÍ væri að reyna að koma ÍBV úr deildinni með því að hafna beiðni félagsins um undanþágu. Hann fékk 30 þús- und krónur í sekt fyrir ummælin. Birkir Kristinsson tók fram skóna og lék einn leik með ÍBV, meiddist svo á æfingu og lék ekk- ert meira það sumarið. ÍBV vann einn leik, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur leikj- um án Hrafns en féll úr deildinni, þremur stigum frá öruggu sæti. Guðjón lék einn leik, gegn FH í 1- 1 jafntefli en Elías Fannar Stefn- isson, þá sextán ára, tvo. Það var í 4-2 tapi gegn ÍA og 2-0 sigri á Fylki. Síðasta sumar fékk Stjarn- an svo Kjartan Ólafsson að láni frá Víkingi þegar Bjarni Þórður Halldórs- son fór í leikbann og Baldvin Guðmunds- son, hinn 45 ára gamli markmannsþjálfari, meiddist. „Við létum tvo af okkar læknum skoða Baldvin til að sannreyna meiðslin. Þá vantaði Stjörnuna tvo af sínum aðalmarkmönn- um og þá fengu þeir lán- aðan mann,“ sagði Þórir en Kjartan fékk reynd- ar rautt spjald í leiknum sem hann spilaði, strax á tíundu mínútu. Í markið í hans stað fór hinn 16 ára gamli Davíð Guðjónsson sem hélt hreinu í 80. mín- útur og var meðal annars valinn leikmaður umferð- arinnar af Fréttablað- inu. - hþh KSÍ sannreynir meiðsli með sínum eigin læknum: Ekki sjálfgefið að fá undanþágu MEIDDUR Ómar er meiddur og Keflvíkingar vilja fá annan markmann að láni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIX AUDDI OG SVEPPI SAFNA MILLJÓN FYRIR MÆÐRASTYRKSNEFND Í KVÖLD KL. 19:35 Í OPINNI DAGSKRÁ VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR: AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 HILMIR SNÆR Í FREYÐIBAÐI RIKKA Í BÍLAÞVOTTI INGÓ TEKINN Í GEGN GILLZENEGGER TUSKAÐUR TIL FÓTBOLTI Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi. Stórleikur kvöldsins fór fram þegar efstu liðin mætt- ust fyrir norðan en óvæntustu úrslit kvöldsins voru í Garðabæn- um þar sem nýliðar Hauka unnu 1-0 sigur á Stjörnunni og fögnuðu fyrstu stigum tímabilsins. Blikar nýttu sér líka tap Þórs/KA á móti Íslandsmeisturum Vals og komust upp í annað sætið með 1-0 sigri í Vesturbænum. Valskonur fengu á sig sitt fyrsta mark á tímabilinu og lentu 2-1 undir á móti Þór/KA fyrir norðan en náðu að tryggja sér 4-2 sigur og þriggja stiga forskot á toppnum í Pepsi-deild kvenna í fótbolta með því að skora tvö mörk á lokamínút- um leiksins. Strax dró til tíðinda á 6. mínútu leiksins þegar Dóra María Lárus- dóttir fékk boltann fyrir utan víta- teig eftir krafs í teig heimamanna. Hún renndi boltanum út til hægri á Rakel Logadóttur sem gerði sér lítið fyrir og hamraði boltann upp í hornið fjær, óverjandi fyrir Berg- lindi Magnúsdóttur í marki Þórs/ KA. Valskonur voru mun sterkari í fyrri hálfleik og réðu lögum og lofum á vellinum. Heimamenn komust þó betur inn í leikinn síðustu tíu mínútur hálfleiksins og á síðustu tveim mínútum snéru þær leiknum. Rakel Hönnudóttir var fyrst að átta sig og fylgdi eftir stangar- skoti og jafnaði metin á 43 mín- útu. Danka Padovac átti svo ekki í erfiðleikum með að rúlla boltan- um í netið eftir sendingu Rakelar Hönnudóttur. Seinni hálfleikurinn hófst eins og sá fyrri og á 51. mínútu náðu Vals- konur að jafna metin þegar Kristín Ýr Bjarnadóttir reyndist sterkust í loftinu eftir hornspyrnu. Síðustu 25 mínúturnar voru síðan að mestu háðar á vallarhelm- ingi Þórs/KA þar sem Valskonur óðu í færum. Sóknarþungi Vals- kvenna bar árangur á 88. mínútu þegar Dagný Brynjarsdóttir skor- aði eftir eina af fjölmörgum horn- spyrnum þeirra í leiknum. Hall- bera Guðný innsiglaði sigurinn svo í uppbótartíma. Lokastaðan 4-2. Dragan Stojanovic, þjálfari Þórs var að vonum súr eftir leik- inn: „Lokastaðan gefur ekki rétta mynd af leiknum. Í stöðunni 2- 2 hefðum við getað skorað og þá hefðum við kannski unnið leikinn. Svona er fótboltinn, fáum dauða- færi og klúðrum og fáum svo mark í bakið.“ Freyr Alexandersson, þjálfari Vals var hins vegar á öðru máli: „Leikurinn spilaðist nákvæmlega eftir leikskipulaginu. Mörkin sem Þór/KA skorar má skrifa á ein- beitingarleysi og óheppni. Þær eru stórhættulegar og refsa grimmi- lega,“ sagði Freyr sem lét marka- hæsta leikmann deildarinna, Björk Gunnarsdóttur, byrja á bekknum þrátt fyrir að hún hefði skoraði í öllum leikjum liðsins og tryggt lið- inu 1-0 sigur á Fylki í leiknum á undan. Jóna Kristín Hauksdóttir tryggði Blikum 1-0 útisigur á KR en systir hennar hafði tryggt Blikum þrjú stig í leiknum á undan. Þessir tveir sigrar hafa komið Breiðabliki upp í annað sæti deildarinnar. Afturelding vann 1-0 sigur á Grindavík þar sem Telma Þrast- ardóttir skoraði sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok. Þetta var annar sigur Aftureldingar í röð en Telma skoraði tvö mörk í 4-1 sigri á FH í síðustu umferð. Ashley Myers tryggði Haukum óvæntan 1-0 útisigur á Stjörnunni en þetta voru fyrstu stig nýliða Hauka á þessu tímabili eftir að þær höfðu tapað þremur fyrstu leikjum sínum með markatölunni 1-11. Anna Björg Björnsdóttir skoraði tvö mörk og þær Laufey Björns- dóttir og Rúna Sif Stefánsdóttir voru með eitt mark hvor í 4-2 sigri Fylkis á FH í Kaplakrika. Sigríður Guðmundsdóttir og Guðrún Björg Eggertsdóttir minnkuðu muninn fyrir FH. ooj@frettabladid.is, - sa Valskonur skoruðu tvö mörk í lokin Íslandsmeistarar Vals héldu sigurgöngu sinni áfram með 4-2 sigri á Þór/KA fyrir norðan í gær. Jóna Kristín Hauksdóttir tryggði Blikum 1-0 sigur á KR og þar með annað sætið en þrír leikir í umferðinni unnust 1-0. BLIKAR Í ANNAÐ SÆTIÐ Blikinn Sandra Sif Magnúsdóttir sést hér í baráttunni við KR- inginn Rebekku Sverrisdóttur á KR-vellinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Pepsi-deild kvenna Þór/KA-Valur 2-4 0-1 Rakel Logadóttir (6.), 1-1 Rakel Hönnudóttir (43.), 2-1 Danka Podovac (45.), 2-2 Kristín Ýr Bjarnadóttir (50.), 2-3 Dagný Brynjarsdóttir (88.), 2-4 Hallbera Guðný Gísladóttir (91.). FH-Fylkir 2-4 0-1 Anna Björg Björnsdóttir (12.), 0-2 Laufey Björnsdóttir (36.), 1-2 Sigríður Guðmundsdóttir, víti (40.), 1-3 Rúna Sif Stefánsdóttir (64.), 2-3 Guðrún Björg Eggertsdóttir (80.), 2-4 Anna Björg Björnsdóttir (83.) Afturelding-Grindavík 1-0 1-0 Telma Þrastardóttir (84.) KR-Breiðablik 0-1 0-1 Jóna Kristín Hauksdóttir (81.) Stjarnan-Haukar 0-1 0-1 Ashley Myers. STAÐAN Í DEILDINNI: Valur 4 4 0 0 19-2 12 Breiðablik 4 3 0 1 7-5 9 Þór/KA 4 2 1 1 10-7 7 KR 4 2 0 2 6-3 6 Stjarnan 4 2 0 2 6-3 6 Fylkir 4 2 0 2 8-7 6 Afturelding 4 2 0 2 6-9 6 Grindavík 4 1 1 2 3-4 4 Haukar 4 1 0 3 2-11 3 FH 4 0 0 4 3-19 0 Upplýsingar um marka- skorun eru fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net. ÚRSLITIN Í GÆR HALLBERA GÍSLA- DÓTTIR Innsiglaði sigur Valsliðsins í gær og lagði upp jöfnunarmarkið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.