Fréttablaðið - 12.06.2010, Síða 70
38 12. júní 2010 LAUGARDAGUR
Rockwood Premier 2317G 12 fet.
Verð: 2.998.000kr Verð: 2.798.000kr
Rockwood 191XR OFF ROAD 10 fet.
Verð: 2.698.000kr
Rockwood Premier 1904 10 fet.
Ríkulegur staðalbúnaður í Rockwood fellihýsum
Opnunartími:
Mán - Föst. kl: 10-18
Laug - Sun. kl: 12-16
• Galvaníseruð grind
• Evrópskar þrýstibremsur
• Upphitaðar 12 cm springdýnur
• Tjakkar með sandskeifum á öllum
hornum
• Góð fjöðrun, fjaðrir sem henta vel á
íslenskum vegum
• Útdraganleg trappa við inngang
• Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk)
• Handbremsa og varadekk m/hlíf
• 50 mm kúlutengi
• 220v tengill (blár skv. reglugerð)
• Útvarp með geislaspilara,
hátalarar inni og úti
• Radial dekk / 13” álfelgur
• Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými
• Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic
• SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti
• 2 gaskútar
• Gasviðvörunarkerfi
• Öflug Truma combi 4 miðstöð
m/heitu vatni
• Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu
• Skyggni (markísa)
• Skyggðir gluggar
• Flugnanet f. gluggum og hurð
• Gardínur f. gluggum og svefnrými
• 2ja feta geymsluhólf
• Stórt farangurshólf
• Voldugir öryggisarmar fyrir þak
og tjald
• 3 x 12 volta loftljós og 1 x útiljós
• 1 x færanlegt lesljós með viftu
• 110 amp rafgeymir
• Heitt og kalt vatn, tengt
• Rafmagnsvatnsdæla
• 86 lítra vatnstankur
• Klósett með hengi
Fossháls 5-7
110 Reykjavík
Sími 551 5600
Fax 551 5601
utilegumadurinn.is
Rockwood fellihýsi fyrir Íslenskar aðstæður
Torfæru útgáfan frá Rockwood fyrir þá sem
vilja komast lengra.
m/ útdraganlegri hlið.
• upphækkað á 15” dekkjum
• sér styrkt grind og sterkari hjólabúnaður.
Þórdís Nadia Semichat er ekki aðeins Íslandsmeistari í magadansi og ein af stofnendum
uppistandsfélagsins Uppistöðufélagið. Hún er líka barþjónn, framkvæmdastjóri, kvik-
myndafræðinemi og verðandi leikkona. Flesta daga hefur hún því miklu meira en nóg af
gleðilegum hlutum á sinni könnu. Fimmtudagurinn sem leið var engin undantekning á
þeirri reglu eins og myndirnar úr myndavélinni hennar sýna.
Uppistand og pöndugjörningur
1 Þetta er ég fyrir utan RÚV húsið, en nýverið keypti ég mér þetta glæsilega hjól og hjóla á því alltaf í vinnuna. Mæli með því. Það er ansi hressandi!
2 Hérna er uppistandshópurinn Upp mín Sál! að vinna hörðum höndum við útvarpsþátt sem við vorum að taka upp fyrir Rás 1. Þátturinn er í sketsaformi og fáránlega fyndinn. Allavega
pissaði ég tvisvar í buxurnar meðan við tókum hann
upp. Í alvöru.
3 Við vorum búin að vera svo ótrúlega dugleg að við ákváðum að verðlauna okkur og elda dýrindis hádegisverð heima hjá Sögu, maturinn var himneskur sem og félagsskapurinn.
4 Hópurinn skellti sér svo beint til verks og fór að undirbúa pöndu-gjörning sem við vorum með á föstudaginn, þar sem pandan við hornið mun spá fyrir vegfarendum hvað muni gerast handan við hornið.
5 Ég reyni alltaf að lifa mig inn í hvern karakter sem ég leik, hér er ég í hlutverki þernu pönd-unnar. En stuttu síðar kom pandan og lamdi greyið þernuna fyrir að spila tónlist. Pandan
beitir heraga á starfsfólk sitt.
6 Sumir slaka vel á í lok vinnudags, fá sér jafn-vel súkkulaði. En ekki vinnufélagarnir mínir! Þau ákváðu að æfa grínsvipi meðan þau gerðu armbeygjur. Góð leið til að enda frábæran
vinnudag.
MYNDBROT ÚR DEGI | Fimmtudaginn 10. júní