Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 66
34 12. júní 2010 LAUGARDAGUR M argir sem bitu á jaxlinn og meðal annars tóku út séreign- arsparnað sinn eru komnir að fótum fram. En þetta er óvissa. Við vitum hvorki hvað margir eru komnir þangað né hvert vandamál- ið er og við hvað er verið að miða. Sem betur fer er unnið að gagna- öflun, meðal annars hjá Seðlabank- anum og frumvarp til meðferðar á Alþingi um rannsókn á fjárhags- stöðu skuldugra heimila,“ segir Ásta S. Helgadóttir, forstöðukona Ráðgjafarstofu um fjármál heim- ilanna. Líkt og fram kom í vikunni hefur fólki á vanskilaskrá fjölgað gríðar- lega síðustu misserin og eiga tæp- lega tuttugu þúsund einstaklingar í alvarlegum vanskilum. Þá stefni að óbreyttu í að átta þúsund einstakl- ingar bætist við hópinn á næstu mánuðum, samkvæmt upplýsingum Creditinfo. Fyrir og eftir hrun Ráðgjafarstofan var stofnuð sem tilraunaverkefni á vegum félags- málaráðuneytis árið 1996 fyrir fólk í skuldavanda og gat það feng- ið ókeypis ráðgjöf. Starfsmenn voru sex í fyrstu. Þeim hefur fjölgað í takt við þrengingar í efnahagslíf- inu. Í byrjun september 2008 voru þeir sex en tólf í lok sama árs. Ráðgjafarstofan er á þremur hæðum við Hverfisgötu 6 í Reykja- vík. Hún var áður með skrifstofur á annarri hæðinni þar sem Lána- sýsla ríkisins var áður. Eftir hrun- ið fékk hún aðstöðu í rými sem tvö fyrirtæki voru í áður en gáfu undan í hruninu, fataverslun og fasteigna- sala. Hluti húsgagnanna er fenginn að láni hjá bönkum og fjármála- fyrirtækjum, sem ýmist hafa farið á hliðina eða dregið saman seglin. Ásta segir mikla breytingu hafa orðið á umfangi Ráðgjafarstof- unnar eftir að erfiðleika tók að gæta árið 2008. Fyrir hrunið hafi einstæðar mæður verið þriðjung- ur þeirra sem leituðu til Ráðgjaf- arstofunnar. Í dag er stærsti hóp- urinn barnafólk á aldrinum 30 til 40 ára og eldra fólk sem lent hefur í skuldavanda vegna ábyrgða. „Þetta er eðlileg þróun, barnafólk er í skuldsettasta hópnum. Þetta er yfirleitt ungt fólk sem var í góðri vinnu og skuldsetti sig miðað við það,“ segir Ásta. Hún bendir á að eftir hrunið hafi álag á starfsfólk aukist verulega. Starfsmenn eru nú 31 og viðbúið að fleiri bætist í hópinn fljótlega. Aukning mála á borðum Ráð- gjafarstofunnar dregur upp góða mynd af breytingunni fyrir og eftir hrun. Á árunum 2000 til 2001 var hún með til meðferðar að meðal- tali fimm til sex hundruð mál. Jafn mörg mál eru nú á borðum henn- ar og bætast að meðaltali um þrjú hundruð ný mál við í mánuði. Ásta segir að komið hafi verið til móts við vandann og opnað fyrir betra aðgengi að ráðgjöfum Ráðgjafarstofu en áður. Síðan í maí í fyrra hefur fólk getað geng- ið beint inn af götunni og fundað með ráðgjöfum auk þess sem senda má rafræna umsókn um aðstoð á vefsíðunni www.rad.is. Nú koma að meðaltali hundrað manns í viku hverri beint inn af götunni til að ræða við ráðgjafa auk þess sem tíu til tuttugu mál berast með rafrænum hætti í hverri viku. Það segir sitt um breytinguna að áður bárust Ráðgjafarstofunni allt að áttatíu mál á mánuði með raf- rænum hætti. Það eru álíka mikið koma inn á borð hennar í viku hverri. Mikilvægt að sjá vandann Ásta segir mikilvægt að fólk leiti sér fyrr en seinna hjálpar við skuldavandanum. Í sumum tilvik- um kemur það þegar uppboð eða frestur á nauðungarsölu fasteigna er að renna út. „Það er huglægt hvernig fólk upplifir greiðsluerfiðleika. Sumir eru í afneitun. Við getum verið með einstakling sem vill kíkja á málin því bankinn vill ekki leyfa honum að fá yfirdráttarheimild. Við nánari skoðun getur komið í ljós að hann er í verulegum greiðsluerfiðleikum með yfirdrátt í mörgum bönkum en skakka mynd af skuldastöðu sinni. Svo getum við verið með einstakl- ing sem sefur ekki af áhyggjum þar sem hann getur ekki greitt alla reikningana um ein mánaðamót og mætir ósofinn í viðtal hjá okkur.“ Ásta segir fólk sömuleiðis leita til Ráðgjafarstofunnar af mismun- andi hvötum. Sumir komi á eigin forsendum, aðrir vegna þrýst- ings frá viðskiptabankanum eða nákomnum. Þegar fólk leitar til Ráðgjafar- stofunnar veitir það henni heim- ild til að taka saman gögn um fjár- hagstöðu sína og skuldbindingar hjá bönkum og lánastofnunum. Að því loknu er farið yfir stöðuna með viðkomandi og honum ráðlagt um næstu skref. „Við aðstoðum fólk og hjálpum því að sjá hvað sé skyn- samlegt að gera og hvert skuli leita. Þegar upp er staðið er það í höndum hvers og eins hvað hann gerir. Við erum aðeins leiðsögu- menn í frumskóginum,“ segir Ásta. Í mörgum tilvikum sjá einstakling- arnir sjálfir um að ræða við lánar- drottna um greiðsluaðlögun eftir mat Ráðgjafarstofu. Í öðrum tilvik- um hjálpar hún fólki við að greiða úr vandanum. Börnin mega ekki þjást Ásta segir mikilvægt að félagsleg vandamál verði ekki til af völd- um efnahagshrunsins. Sérstaklega verði að huga að börnunum. Hún segir stjórnvöld geta gripið til svip- aðra ráða og Finnar í kreppunni fyrir tæpum tuttugu árum. „Finn- ar segja það hafa bjargað miklu að hafa fríar máltíðir í skólum. Fríar máltíðir í skólum myndu skipta miklu máli fyrir börn foreldra sem geta ekki borgað skólamáltíðir,“ segir hún og bætir við að tómstund- ir og allt í kringum þær sé sömu- leiðis mjög kostnaðarsamt. „Það er skelfilegt til þess að hugsa að fólk íhugi að láta börn hætta í tómstund- um vegna fjárskorts,“ segir hún. Neysluviðmið skortir Ásta bendir á að hið opinbera geti lagt lóð sitt á vogarskálar með birt- ingu opinbers neysluviðmiðs svo hægt verði að leggja áreiðanleg- an grunn að lágmarksframfærslu fólks. Viðmið sem þetta hefur verið til á hinum Norðurlöndunum um árabil. Hún segir að um það leyti sem Ráðgjafarstofan tók til starfa fyrir fjórtán árum hafi hagfræðingur Neytendasamtakanna gert könnun hjá fjörutíu fjölskyldum í greiðslu- erfiðleikum og lagt grunn að bráða- birgðaneysluviðmiðum. Ráðgjafarstofan byggir enn á niðurstöðum könnunarinnar. Ásta segir það ómarktækt í dag. „Við teljum að hægt sé að lifa eftir þess- um viðmiðum sem nú eru í gildi í mesta lagi þrjú ár. Þau miða við hungurmörk,“ segir Ásta og bend- ir á að bankar hafi bætt allt frá 20 til 50 prósentum á þau í sínum útreikningum. Ekkert bólar á opinberu neyslu- viðmiði. „Ef einhvern tíma hefur þurft neysluviðmið þá er það nú. Ef við hjá Ráðgjafarstofunni miðum ekki við raunhæfan fram- færslukostnað þá springur fólk Hjálpar fólki í frumskóginum Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir skuldavanda sínum. Breyting á lögum um skuldaaðlögun sem gæti tekið gildi í næstu viku skiptir miklu máli. Koma verður í veg fyrir að þröngar aðstæður í efnahagslífinu komi niður á börnunum, segir Ásta S. Helgadóttir, forstöðukona Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, í samtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson. ÁSTA S. HELGADÓTTIR Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir skuldavanda sínum áður en í óefni er komið, að sögn forstöðukonu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Um miðjan maí synjaði Hæstiréttur manni um heimild til að leita nauðasamninga við lánar- drottna. Fram kemur í synjun Hæstaréttar að beiðnin hafi verið reist á þeim rökum að skuldari sé um fyrirsjáanlega framtíð ófær um að standa í skilum með skuldbindingar sínar. Maðurinn er kvæntur og býr í eigin fasteign ásamt eiginkonu sinni og fjórum börnum. Hann er hagfræðingur með MBA-gráðu frá bandarískum háskóla og hefur starfað á vettvangi stjórnmála, við fjölmiðlun, við fjármálastjórn, stopulan rekstur, og við eignastýringu hjá fjármálafyrirtækjum. Nú er hann verktaki við ráðgjafar- og ritstörf. Eiginkona hans starfaði sem fjármálastjóri á árunum 1991 til 1992 en hefur verið að mestu heimavinnandi eða atvinnulaus síðan þá. Til skamms tíma starfaði hún hjá eiginmanni sínum. Fyrir það fékk hún ekki greidd laun. FJölskyldan flutti hingað frá Bandaríkjunum árið 2003 og keypti þá rúmlega tvö hundruð fermetra fasteign. Manninum gekk erfiðlega að finna vinnu við hæfi innan fjármálageirans en meiri eftirspurn var eftir yngri mönnum. Haustið 2004 fékk hann starf hjá banka. Um vorið fékk hann launahækkun og tók fjölskyldan þá jeppabifreið á rekstrarleigu. Fram kemur í synjun Hæstaréttar að afborganir hafi numið áttatíu þúsund krónum á mánuði. Maðurinn missti starfið um sumarið. Um áramótin þar á eftir þótti hjónunum snattið á jeppanum of kostnaðarsamt og tóku þá lítinn fólksbíl á rekstrarleigu. Hagræði þótti þeim að hafa tvo bíla á heimilinu. Mánaðarlegar afborganir af báðum bílum námu 120 þúsund krónum. Árið 2007 bættist enn við í skuldafenið þegar hjónin tóku 1,5 milljóna króna lán vegna kaupa á fellihýsi. Hjónin litu ekki á sig sem atvinnulaus heldur sem fólk í atvinnuleit og sóttu því ekki um atvinnu- leysisbætur. Maðurinn áleit sem svo að vinnan væri handan við hornið. Á þeim forsendum fram- fleyttu hjónin sér með lántökum enda töldu þau að tekjurnar myndu standa undir skuldbindingum. Maðurinn bauð lánardrottnum að greiða níu milljónir króna af skuldbindingum sínum á næstu fimm árum. Kröfur hjónanna nema í dag 139 milljónum króna og eru níu milljónir króna því sex prósent upp í kröfur. Ásta S. Helgadóttir segir málið að mörgu leyti dæmigert. Fólk hafi lifað langt um efni fram og keyrt á lánum, sem bankar og fjármálafyrirtæki hafi veitt fúslega, jafnvel án þess að horfa á greiðslu- mat viðkomandi. „Það gerir kreppuna enn erfiðari hvað margir voru skuldsettir, sumir að eyða langt um efni fram. Fólk hélt að þetta tæki aldrei enda,“ segir hún. Ekki allir fá lausn sinna mála Við teljum að hægt sé að lifa eftir þessum viðmiðum sem nú eru í gildi í mesta lagi þrjú ár. Þau miða við hungur- mörk. Ef einhvern tíma hefur þurft neysluviðmið þá er það nú. Ef við miðum ekki við raunhæfan framfærslu- kostnað þá springur fólk fljótlega á limminu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.