Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 12. júní 2010 5
Viltu vera
í okkar liði?
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir, risaksdottir@actavis.com
Actavis Group Dalshrauni 1 220 Hafnarfirði s 535 2300 f 535 2301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 20. júní nk.
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu
hágæðasamheitalyfja. Fyrirtækið er með starfsemi í 40 löndum.
Actavis hf. og Medis eru dótturfyrirtæki samstæðunnar á Íslandi og eru staðsett
í Hafnarfirði. Hjá Actavis á Íslandi starfa um 600 starfsmenn á ýmsum sviðum.
Verkefnastjóri í Project Management
Project Management sér um að stýra þróunarverkefnum og kemur einnig
að flutningi þeirra til dótturfyrirtækja Actavis erlendis.
Helstu verkefni:
Utanumhald um alla verkþætti þróunar
Uppsetning á þróunaráætlunum
Fylgja eftir tímalínum
Stýra fundum verkefnahópa og miðla upplýsingum
Samráð við dótturfyrirtæki Actavis erlendis
Við leitum að einstaklingi
með háskólamenntun á sviði raunvísinda
með þekkingu og/eða reynslu af verkefnastjórnun
með góða enskukunnáttu
með góða samskiptahæfni
sem er fljótur að tileinka sér ný vinnubrögð og þekkingu
Sérfræðingar í þróunardeild mæliaðferða
Þróunardeild mæliaðferða sér um þróun og gildingu á mæliaðferðum
sem notaðar eru við þróun á nýjum lyfjaformum og við losun á
framleiðsluvörum á markað.
Sérfræðingur í þróun mæliaðferða
Starfið er sambland af hópavinnu, verklegri vinnu á rannsóknarstofu,
úrvinnslu á gögnum og skýrslugerð.
Helstu verkefni:
Þátttaka í verkefnahópum sem vinna að þróun nýrra lyfjaforma
Þróun og gilding á mæliaðferðum
Umsjón með tækjabúnaði og innleiðing á nýrri tækni og verklagi
Við leitum að einstaklingi
með háskólapróf á sviði raunvísinda, leitað er að starfsmanni með
mjög góðan grunn í efnafræði og efnagreiningum
með reynslu af rannsóknarstörfum þar sem krafist er nákvæmni
og staðlaðra vinnubragða við öflun og úrvinnslu gagna
með reynslu af verkefnastjórnun
með góða samskiptahæfni
með góða ensku- og tölvukunnáttu
Sérfræðingur í mælingum
Helstu verkefni:
Mælingar á hráefnum og fullbúnum vörum
Gildingar á mæliaðferðum
Eftirlit og kvörðun á tækjabúnaði
Við leitum að einstaklingi
með háskólapróf á sviði raunvísinda
með reynslu af rannsóknarstörfum þar sem krafist er nákvæmni
og staðlaðra vinnubragða við öflun og úrvinnslu gagna
með góða samskiptahæfni
með góða ensku- og tölvukunnáttu
Sérfræðingur í skráningardeild
Skráningardeild sér um að veita ráðgjöf við þróun á lyfjum með hliðsjón af
gildandi reglugerðum og taka saman gögn fyrir ný lyf til markaðssetningar
erlendis.
Helstu verkefni:
Ráðgjöf og þátttaka í þróunarverkefnum
Samantekt skráningargagna fyrir ný lyf þróuð á Íslandi til markaðs-
setningar á markaði Evrópusambandsins og víðsvegar um heim
Uppfærslur á skráningargögnum
Svara athugasemdum og annmarkabréfum yfirvalda
Samskipti við viðskiptavini og skráningaryfirvöld um tæknileg atriði
er snerta skráningarmál
Upplýsingagjöf um skráningargögn til annarra deilda fyrirtækisins
Við leitum að einstaklingi
með háskólapróf á sviði raunvísinda, s.s. lyfjafræði, matvælafræði
eða sambærilega menntun
með góða enskukunnáttu
sem er fljótur að tileinka sér ný vinnubrögð og þekkingu
Þróunarsvið Actavis Group auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar: