Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 34
2 FERÐALÖG É g skellti mér til Noregs og Spánar á dögun- um og átti þar yndislegt sumarfrí, skoðaði listasöfn, fór á Eurovision og borðaði yfir mig af alls kyns sælkeramat. Fyrir mér eru þjóðarréttir þeirra landa sem ég heimsæki órjúfan- legur hluti af ferðalögum og yfirleitt legg ég mig fram við að kynnast þeim en held mig í hæfilegri fjarlægð frá alþjóðlegum veitingahúsakeðjum. Í Noregi kom því ekki annað til greina en að gæða sér á köku sem er (eftir því sem ég kemst næst) kennd við hershöfðingjann nafntogaða, Napóleón, og nýtur mikilla vinsælda meðal heimamanna. Norðmenn, einkum af eldri kynslóðinni, standa oft í löngum biðröðum í bakaríum á morgnana til þess eins að verða sér úti um væna sneið, enda kakan góð til síns brúks þótt Íslendingum gæti þótt hún of sæt. Ekki hef ég skýringu á reiðum höndum vegna nafngiftar patatas bravas, eða brjálaðra kartafla eins og þær kallast í lauslegri þýðingu, aðra en þá að þær eru brjálæðislega góðar, spænskir kartöflu- bitar löðrandi í majónesi og sterkri sósu. Við mað- urinn minn þvældumst um á vespu milli veitinga- staða í Barcelona og gerðum lauslega úttekt á þessu lostæti. Þótt ekki fengist niðurstaða úr þeirri rann- sókn vorum við sammála um að kartöflurnar á Bar Tomas, sem Wall Street Journal hefur útnefnt þær bestu, væru suddalega góðar. Ég hef því aldrei skilið fólk sem ver heilu fríunum erlendis án þess að vilja smakka á réttum sem ein- kenna viðkomandi stað. Ég veit til dæmis um Íslend- inga sem hafa haft með sér smjör til Bretlands – enda fyrirfinnst víst ekki í heiminum annað sem stenst samanburð við það íslenska – og séð McDon- alds-stað fyllast á augabragði í Hong Kong meðan kínversk veitingahús í kring stóðu auð. Vissulega getur verið þægilegt að fara á Burger King og McDonalds, þar sem ganga má að öllu vísu og ég skal viðurkenna að einn daginn í Barcelona freistuðumst við betri helmingurinn til þess að henda okkur ofan í djúpsteikingarpottinn. Vissu- lega hafði það áhrif að búllan hafði verið uppgerð, en þrátt fyrir að hún liti út eins og fimm stjörnu hótel var maturinn jafn vondur fyrir það. Meðan ojbjakkið rann niður í magann gladdist ég þó við þá tilhugsun að við hefðum losnað við þennan við- bjóð heima á Íslandi. Roald Viðar Eyvindsson skrifar BRJÁLAÐAR KARTÖFLUR ferðalög kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Roald Viðar Eyvindsson roald@frettabladid.is Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd Nordic photos getty images Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir, Marta maría Friðriksdóttir og Vera Einarsdóttir Ljósmyndir Fréttablaðið BELGÍA KEMUR Á ÓVART Í slendingar þekkja Brussel flest- ir af Evrópustofnunum hennar en helstu stofnanir Evrópusambands- ins hafa aðalaðsetur sitt í borg- inni. Vitaskuld er forvitnilegt að koma í „Evrópuhverfi“ Brussel en sú hlið er aðeins lítill hluti andlits borgarinnar og villandi að dæma ásjónu hennar eftir fréttum af samningaviðræðum. Sú hlið Brussel sem snýr að menningu, arki- tektúr, sögulegum stöðum, æðislegum markaðstorgum og þröngum veitinga- húsagötum er sú hlið sem ferðalangar kynnast öðrum fremur í borginni. Og sú sem blaðamaður kynntist á dögun- um þegar rölt var um borgina á meðan hvítir súkkulaðimolar bráðnuðu í munn- inum. Borg lista og arkitektúrs Götur Brussel eru sem sagt ekki fullar af ráfandi jakkafataklæddum mönnum Brussel er nýr áfangastaður Ice- landair. Borgin, sem margir hafa fyrst og fremst litið á sem mekka stofnananna, kemur fl estum á óvart sem bóhem-staður með rómantísku og listrænu umhverfi . [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög JÚNÍ 2010 Giftir sig á Mamma mia eyju Aníta Briem gengur í það heilaga á Santorini í sumar. SÍÐA 2. HM á pöbbnum Víða um heim má finna skemmtilega sportbari. SÍÐA 6. FRAMHALD Á SÍÐU 4 Fyrsta hótelið sem byggt er úr rusli opnaði á dögunum í Róm, en því hefur reyndar verið lokað aftur. Hótelið mun þó standa áfram til sýnis. Þýski listamaðurinn Ha Schult hannaði hótelið og það stendur við ána Tíber í Róm á móti Vatík- aninu. Ruslið sem hótelið er gert úr er fengið af ýmsum strönd- um Evrópu. Í hótelið voru notuð meira en þrettán tonn af rusli þar á meðal gömul leikföng, hjólkopp- ar, rifnar buxur og beyglaðar gos- dósir. Fyrsti gestur hótelsins var danska ofurfyrirsætan Helena Christensen og hún velti fyrir sér ruslinu sem veggir herbergis hennar voru gerðir úr. „Hlutirn- ir vekja mig til umhugsunar um hvað varð til þess að menn hentu þessu frá sér á ströndinni,“ sagði Helena eftir nóttina. Hótelinu hefur verið lokað en í náinni framtíð verður hægt að skoða það að utan í Róm. Mögu- legt er að það verði flutt á annan stað einhvern tíma seinna. - mmf RÓMVERSKT RUSLHÓTEL Endurnýtt Hótelið er byggt úr rúmlega þrettán þúsund tonnum af rusli af evrópskum ströndum. NORDICPHOTOS/AFP A níta segir að Mamma mia! hafi þó ekki haft áhrif á val á brúð- kaupsstað. „Nei, en við ætlum að fylgja fallegum sið þar sem brúðguminn og gestirnir koma og sækja brúðina heim til hennar, eða í villuna sem hún er búin að leigja,“ segir Aníta glett- in og heldur áfram: „Við hendum þarna inn tveimur til þremur hljóðfæraleikur- um og göngum öll saman á staðinn þar sem athöfnin fer fram.“ Aníta segir athöfnina annars eiga að vera persónulega og hlýja. „Við ætlum að skiptast á loforðum fyrir framan það fólk sem skiptir okkur máli, nánustu fjölskyldu og dásamlega vini,“ útskýrir Aníta og bætir við að þau ætli að sameina tvo sterka og fallega menningarheima. „Svo ætlum við að flytja út íslenska stór- prestinn Pálma Matthíasson sem ætlar að gefa okkur saman á grískri eyju. Þetta er táknrænt fyrir hvernig við vilj- um vera saman, stolt af því hvaðan við komum og að það hafi gert okkur að því sem við erum í dag og svo fáum við líka að erfa allt það stórkostlega frá hinum,“ upplýsir Aníta sem segist með þessu vera að gera Dean að heiðurs-Íslendingi. „Og í staðinn fæ ég að tilheyra fólkinu sem bjó til vestræna siðmenningu.“ Aníta verður í brúðarkjól frá breska hönnuðinum Jenny Packham. En hún hefur komist í fjölmiðla á Íslandi fyrir að ganga í íslenskri hönnun. Ætlar hún að vera með einhverja íslenska hönnun í brúðkaupinu? „Ég er mikill aðdáandi íslenskrar hönnunar og við eigum mikið af hæfileikaríku fólki. Ég er að fara að skoða hönnuði fyrir brúðarmeyjakjólana, það er frábær hugmynd að sjá hvort þeir gætu ekki komið frá íslenskum hönnuði. Það væri fallegt.“ Aníta og Dean ásamt fjölskyldum og vinum ætla að dvelja á Santorini í nokk- urn tíma. „Við ætlum að halda tveggja vikna brúðkaup,“ segir Aníta innt eftir því hvort parið ætli í brúðkaupsferð. „Og kannski stinga af hér og þar.“ -mmf GIFTIR SIG Á SANTORINI Leikkonan Aníta Briem og unnusti hennar, leikstjórinn Dean Paraskevopoulos, ætla að gifta sig síðsumars á grísku eyjunni Santorini. Santorini var sögusvið kvikmyndarinnar Mamma mia! Tveggja vikna brúðkaup Aníta og Dean trúlofuðu sig í Mývatnssveit hjá móður Anítu í lok síðasta árs. NORDICPHOTOS/GETTY Sameina tvo menningarheima Santorini var sögusvið mynd- arinnar Mamma mia! sem var aðsóknarmesta myndin á Íslandi 2008. Það hafði þó ekki áhrif á Anítu. NORDICPHOTOS/GETTY flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.