Fréttablaðið - 12.06.2010, Blaðsíða 72
40 12. júní 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
ÁSTA ERLINGSDÓTTIR GRASA-
LÆKNIR (1920-2005) VAR FÆDD
ÞENNAN DAG.
„Mesta ríkidæmi í mínum
huga er kærleikurinn sem
býr með fókli, löngunin til að
láta gott af sér leiða og gleðja
aðra.“
Ásta var kunn fyrir grasa-
lækningar sínar og áhuga á
íslenskum jurtum.
MERKISATBURÐIR
1838 Jarðskjálfti olli bjarghruni
í Grímsey og í Málmey og
einn maður beið bana.
1898 Filippseyjar lýstu yfir sjálf-
stæði frá Spáni.
1911 Melavöllurinn í Reykjavík
var vígður.
1926 Kristján X. kom í heim-
sókn ásamt Alexandrínu
drottningu og fylgdarliði.
1964 Nelson Mandela var
dæmdur í lífstíðarfangelsi
í Suður-Afríku.
1971 Viðreisnarstjórnin féll eftir
12 ára setu.
1974 Jarðskjálfti upp á 6,3 stig
varð í Borgarfirði.
1991 Rússar kusu Boris Jeltsín
forseta.
Gyðingastúlkan Anna Frank fékk dagbók í
afmælisgjöf þennan dag árið 1942 þegar hún
varð þrettán ára. Hún tók hana umsvifalaust í
notkun og trúði henni fyrir upplifunum sínum
meðan hún var í felum í Amsterdam, ásamt
fjölskyldu sinni í seinni heimsstyrjöldinni.
Sumarið 1944 var fjölskyldan svikin og flutt í
útrýmingarbúðir en sjö mánuðum síðar lést
Anna úr flekkusótt, nokkrum dögum á undan
systur sinni, Margot Frank. Otto Frank faðir
þeirra var sá eini úr fjölskyldunni sem sneri
aftur til Amsterdam eftir að stríðinu lauk. Þar
komst hann að því að dagbók Önnu hafði
verið varðveitt og árið 1947 gaf hann hana
út, ritskoðaða. Bókin varð ein sú mest lesna
í heiminum. Hún kom síðar út óritskoðuð,
meðal annars á íslensku.
ÞETTA GERÐIST: 12. JÚNÍ 1942
Anna Frank hóf að halda dagbók
„Ég trúi á drauma mína og gefst ekki
upp fyrr en í fulla hnefana, því ef
maður hefur ekki trú á sjálfum sér
hefur það enginn annar. Ég er fram-
kvæmdasöm ef ég fæ góða hugmynd,
en veit að enginn kemur með silfur-
bakkann færandi hendi og hef þurft
að berjast fyrir hugsjónum mínum og
draumum með blóði, svita og tárum,“
segir Hendrikka Waage, skartgripa-
hönnuður, rithöfundur og stofnandi
alþjóðlegu góðgerðasamtakanna Kids
Parliament, eða Alþingi barna.
Nýverið kom út fyrsta barnabók
Hendrikku, Rikka og töfrahringur-
inn á Íslandi, sem setið hefur í fyrsta
sæti metsölulista Eymundsson og var
á fimmtudag valin af Sameinuðu þjóð-
unum til að vekja athygli á mennta- og
umhverfismálum.
„Rikka er íslensk stelpa sem fer
með álfum sínum vítt og breitt um
Ísland í fyrstu bók, en í þeirri næstu
fer hún til Indlands. Ég man hvað mér
fannst gaman að bíða eftir nýrri bók
með mínum uppáhalds sögupersónum
þegar ég var lítil og ætla því að gera
sex bóka seríu um Rikku sem er að
stórum hluta ég sjálf sem barn en með
reynslu mína sem fullorðin manneskja
sem hefur búið víða í veröldinni. Með
það veganesti vildi ég kynna heim-
inn fyrir smáfólkinu,“ segir Hendr-
ikka sem gefur öll sín höfundarlaun af
Rikku-bókunum til styrktar börnum
hvers lands sem Rikka heimsækir.
„Ef vel tekst til get ég vonandi styrkt
íslensk börn til menntunar, hvort sem
það verður í formi leikskólagjalds fyrir
einstætt foreldri eða skólabækur handa
barni sem á ekki fyrir þeim, en ef mér
tekst að hjálpa aðeins einum verð ég
óskaplega glöð,“ segir Hendrikka sem
þvertekur fyrir að vera svo sterkefn-
uð að geta setið ólaunuð við skriftir.
„Ég er ekki rík af peningum en ég er
mjög rík af hugmyndum. Ég held að
hringrásin yrði önnur ef ég dveldi of
mikið við peningadrauma, en ég hef til
hnífs og skeiðar og næ endum saman
með erfiði og mikilli vinnu.“
Hendrikka segir meðfædda skipu-
lagshæfileika hjálpa sér að halda vel
utan um annasamt líf sitt, en hún býr
með sautján ára syni sínum í grænni
sveit utan við Lundúnir.
„Mig langar að efla nýsköpun, frum-
kvöðlastarfsemi og listsköpun hjá börn-
um, því þau koma til með að taka við
plánetunni okkar, og vera þátttakandi
í að hjálpa þeim,“ segir Hendrikka
sem stofnaði Alþingi barna fyrir
tveimur árum en samtökin eru með
höfuðstöðvar í Vínarborg.
„Aðaltilgangur samtakanna er að
skapa heim sem börn vilja búa í og þar
sem allir hafa sömu tækifæri burtséð
frá kynþætti eða trúarbrögðum. Sam-
tökin styðja börn til mennta og við bak
fjölfatlaðra barna og unglinga, ásamt
því að vinna með Sameinuðu þjóðun-
um að jafnrétti kvenna og barna í þró-
unarlöndunum,“ segir Hendrikka um
göfugt góðgerðarstarfið, en í heiðurs-
ætum ráðgjafa eru Betty Williams
Nóbelshafi, Dalai Lama, Bibi Russel,
Rabbi David Rosen, Gunter Pauli og
Kerry Kennedy, sem öll hafa helg-
að líf sitt mannréttindum, en saman
munu þau kynna samtökin í New York
í haust. Fyrst fer þó Hendrikka til að
halda fyrirlestur um Rikku og töfra-
hringinn í útgáfuboði í höfuðstöðvum
SÞ í New York.
„Velgengnin hefur komið mjög á
óvart og ég bjóst ekki við neinu, en
bókin er gleðibók með góðri orku.
Vonandi á boðskapurinn eftir að ná
sem lengst sem og menning og náttúra
okkar fagra lands.“ thordis@frettabladid.is
HENDRIKKA WAAGE: SÞ VELUR BARNABÓK HENNAR TIL VITUNDARVAKNINGAR
Velgengnin kemur mér á óvart
TRÚ OG TRYGG SÍNUM DRAUMUM Hendrikka Waage er öðrum konum góð fyrirmynd því hún lætur ekkert stoppa sig þegar kemur að því að láta
eigin hugsjónir og drauma rætast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
erf idr yk kjur
G R A N D
Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
Næg bílastæði
og gott aðgengi.
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38, 105 Rvk.
Sími: 514 8000
www. grand.is
erfidrykkjur@grand.is
Verið velkomin
á Grand hótel
AFMÆLISBÖRN
GEORGE
BUSH,
fyrrverandi
Bandaríkjafor-
seti, er 86 ára.
BIRGIR
ÁRMANNS-
SON stjórn-
málamaður er
42 ára.
ADRIANA
LIMA
fyrirsæta er
29 ára.
Íslensk list verður áber-
andi í Strassborg í Frakk-
landi í júlímánuði. Cath-
erine Ulrich, Íslandsvinur
sem stofnaði félagið Alsace-
Islande árið 2004 í þeim til-
gangi að stuðla að aukn-
um samskiptum Frakka
og Íslendinga, hefur skipu-
lagt sýningu í borginni
sem stendur yfir allan
júlímánuð.
Sýningin fer aðallega
fram á tveimur stöðum í
borginni, stóra sýningar-
salnum Aubette í miðborg-
inni og á Hotel Sofitel. Meðal
þeirra listamanna sem verða
með verk til sýnis má nefna
málarana Freyju Önundar-
dóttur, Sigrúnu Eldjárn og
Katrínu Helgu Ágústsdótt-
ur, glerlistamennina Jónas
Braga Jónasson og Hjördísi
Hafnfjörð og leirlistamenn-
ina Koggu, Kolbrúnu S. Kjar-
val og Margréti Jónsdóttur.
- kg
Íslensk list
í Strassborg
ÍSLANDSVINUR Catherine Ulrich skipuleggur sýningar á íslenskri list í
Strassborg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON