Fréttablaðið - 05.08.2010, Síða 60
46 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1316
Breiðablik Valur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–10 (10–6)
Varin skot Ingvar 5 – Kjartan 4
Horn 5–4
Aukaspyrnur fengnar 8–6
Rangstöður 3–3
VALUR 4–5–1
Kjartan Sturluson 4
Stefán Eggertsson 5
Atli Sveinn Þórarinss. 4
Martin Pedersen 5
Greg Ross 3
Rúnar Már Sigurjóns. 4
Sigurbjörn Hreiðarss. 5
Jón Vilhelm Ákason 4
Arnar Sveinn Geirss. 6
(79., Þórir Guðjónss. -)
Baldur Aðalsteinsson 4
Guðmundur Steinn 4
(69., Diar. O´Carrol 3)
*Maður leiksins
BREIÐAB. 4–3–3
Ingvar Þór Kale 8
Arnór Sveinn Aðalst. 6
Elfar Freyr Helgason 8
Kári Ársælsson 7
Kristinn Jónsson 7
*Jökull Elísarbet. 9
Finnur Orri Margeirs. 8
(79., Rannver Sigurj. -)
Guðmundur Kristjáns. 7
Haukur Baldvinsson 7
(87., Elvar Páll -)
Kristinn Steindórsson 6
Alfreð Finnbogason 9
1-0 Jökull Elísabetarson (42.)
2-0 Kristinn Steindórsson (59.)
3-0 Alfreð Finnbogason (70.)
4-0 Guðmundur Kristjánsson (73.)
5-0 Alfreð Finnbogason (76.)
5-0
Erlendur Eiríksson (8)
HANDBOLTI Landslið Íslands komst
ekki í undanúrslit á EM U-20 í
Slóvakíu eftir afar sárt tap fyrir
Dönum í lokaumferð milliriðla-
keppninnar í gær, 33-32. Danir
skoruðu sigurmark leiksins á loka-
sekúndunni eftir að Ísland hafði
verið með boltann þegar átta sek-
úndur voru eftir. Jafntefli hefði
dugað Íslandi.
Guðmundur Árni Ólafsson var
þá með boltann en fékk dæmdan á
sig ruðning. Danir brunuðu í sókn
og skoruðu sigurmarkið.
„Þetta var grátlegt,“ sagði Einar
Guðmundsson landsliðsþjálfari
eftir leikinn. „Þetta gerðist mjög
hratt í æsingnum. Guðmundur hélt
að höndin væri komin upp hjá dóm-
urunum og menn vissu ekki hvað
það var mikið eftir. Leikklukkan
sneri baki í okkur sem var ansi
óheppilegt. Það var svo fiskaður
ruðningur á hann og þeir náðu að
skora. Svona er þetta bara.“
Einar sagði strákana hafa lagt
sig mikið fram. „Þeir börðust eins
og hundar og lögðu sig alla fram.
Það er ekki hægt að skamma neinn
þegar svo er enda var þetta engum
að kenna.“
Ísland tapaði óvænt fyrir Portú-
gal í riðlakeppninni en síðarnefnda
liðið gerði sér lítið fyrir og vann
einnig Dani. Leikurinn í gær var
því úrslitaleikur um hvort liðið
fylgdi því portúgalska í undanúr-
slitin.
„Við vorum óheppnir gegn Portú-
gal og svo aftur í þessum leik. Í
svona móti má ekki við slíku og
því er þetta bara búið. Við hefðum
aldrei tapað fyrir Portúgal aftur og
vorum því bara einni sekúndu frá
medalínunni,“ bætti Einar við.
Þessi sami hópur komst í úrslit
á HM U-19 ára í Túnis í fyrra en
tapaði þá fyrir Króatíu sem þarf
að sætta sig við að spila um 9.-12.
sætið á þessu móti.
„Það sýnir bara hversu jafnt
þetta mót er. Það þarf allt að ganga
upp til að ná árangri. Þetta er auð-
vitað svekkjandi fyrir okkur eftir
að hafa verið sex ár saman en við
eigum enn eitt mót eftir – á HM U-
21 í Grikklandi á næst ári.“
- esá
Ísland tapaði fyrir Danmörku með marki á lokasekúndu leiksins og komst ekki í undanúrslit:
Vorum einni sekúndu frá medalíunni
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON Var valinn besti leikmaður Íslands í gær. Hann skoraði
fimm mörk í leiknum, rétt eins og Aron Pálmarsson. Heimir Óli Heimisson var
markahæstur með sex mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STAÐAN
Breiðablik 14 9 2 3 34-16 29
ÍBV 13 9 2 2 22-10 29
FH 13 6 4 3 24-19 22
Fram 13 5 5 3 21-18 20
Keflavík 13 5 5 3 13-14 20
Valur 14 4 6 4 21-26 18
Stjarnan 13 4 5 4 23-21 17
KR 12 4 4 4 20-18 16
Fylkir 12 4 3 5 24-24 15
Grindavík 13 2 3 8 13-23 9
Selfoss 13 2 2 9 15-29 8
Haukar 13 0 7 6 16-28 7
NÆSTU LEIKIR
Alfreð Finnbogason, Breiðabliki 11
Kristinn Steindórsson, Breiðabliki 8
Albert Brynjar Ingason, Fylki 7
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV 7
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 7
Atli Viðar Björnsson, FH 7
PEPSI-DEILDIN
Íslandsmeistarar KR hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku í kvennakörf-
unni því besti leikmaður úrslitakeppninnar síðasta vor, Unnur
Tara Jónsdóttir, er á leiðinni í læknanám til Ungverjalands.
Unnur Tara hefur mikinn metnað í náminu og ákvað að
sækja um í ungverskum læknaskóla þegar ljóst var að hún
komst ekki að í Háskóla Íslands.
Unnur Tara fór á kostum í úrslitakeppninni þar sem hún
var með 19,9 stig að meðaltali í leik þar á meðal
skoraði hún 27 stig og hitti úr 8 af 9 skotum sínum
þegar KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á
Hamar í hreinum úrslitaleik um titilinn.
„Ég er að fara til Ungverjalands 20. ágúst en þetta var
mjög erfið ákvörðun. Ég var ekki alveg viss en ég hélt
að ég myndi sjá eftir því ef að ég myndi allavega
ekki prófa í það minnsta eitt ár,“ segir Unnur sem
ætlaði að spila með læknanáminu hér heima en er
ekki viss hvernig málin þróast núna. „Ég ætla að
sjá til hvað námið er erfitt áður en ég athuga hvort ég get eitthvað
verið að æfa þarna úti. Ég hef heyrt að fyrsta árið sé mjög erfitt
úti þannig að ég efast um að það verði einhver körfubolti hjá mér
fyrr en á öðru ári,“ segir Unnur Tara og bætir við: „Ég horfi bara á
Signýju og þá veit ég að ég á nóg eftir. Ég ætla ekkert að hætta og
hef stefnuna á að ná einhvern tímann inn í fimm manna úrsvalslið-
ið á lokahófinu. Ég hætti ekki fyrr en ég næ því,“ segir Unnur Tara
en játar því að það verði erfitt fyrir hana að yfirgefa KR-liðið.
Signý Hermannsdóttir hefur ekki gefið það út hvort hún
haldi áfram að spila með KR en Unnur Tara hefur trú á
því að Signý haldi áfram. „Mig langaði rosalega mikið að
reyna að verja titilinn með KR og taka þennan bikarmeist-
aratitil líka. Það er svolítið fúlt að sleppa því. Það skiptir
samt engu máli fyrir KR þótt ég fari því þær eru með svo
öflugt lið. Það kemur alltaf maður í manns stað og þetta
verður í góðu lagi sérstalega ef Signý heldur áfram,“ segir
Unnur hógvær.
UNNUR TARA JÓNSDÓTTIR: BESTI LEIKMAÐUR ÚRSLITAKEPPNINNAR Á LEIÐ Í LÆKNANÁM TIL UNGVERJALANDS
Ég horfi bara á Signýju og veit að ég á nóg eftir
> Sölvi Geir og félagar slógu út FH-banana
Sölvi Geir Ottesen og félagar í danska liðinu
FC Kaupmannahöfn slógu í gær út FH-banana
í BATE Borisov í 3. umferð í forkeppni Meist-
aradeildarinnar. FCK vann seinni leikinn 3-2 á
Parken eftir að þau gerðu markalaust jafntefli
í Hvíta-Rússlandi í síðustu viku. BATE-liðið
fór létt með Íslandsmeistara FH í síðustu
umferð en lenti 2-0 undir í gær. Þeir náðu
hins vegar að jafna með tveimur mörkum á
lokamínútum fyrri hálfleiks og voru því á leið-
inni áfram þar til að Danir skoruðu sigurmarkið
sitt á 59. mínútu. Sölvi Geir Ottesen lék allan
leikinn í vörn FC Kaupmannahöfn.
Fimmtudagurinn 5. ágúst
ÍBV – FH kl. 19:15
Hásteinsvöllur
Grindavík – Fram kl. 19:15
Grindavíkurvöllur
Haukar – Selfoss kl. 19:15
Vodafonevöllurinn
Fylkir - Kefl avík kl. 19:15
Fylkisvöllur
KR - Stjarnan kl. 19:15
KR-völlur
FÓTBOLTI Breiðablik sendi ÍBV skýr
skilaboð á Kópavogsvellinum í
gær þar sem liðið gerði sér lítið
fyrir og rúllaði yfir varnarlausa
Valsmenn 5-0. Ólafur Kristjáns-
son, þjálfari Breiðabliks, gat svo
sannarlega ekki kvartað eftir leik-
inn.
„Nei, ég kvarta ekki og er ekki
vanur að kvarta. Ekki einu sinni
eftir leikinn gegn Fram, þá vorum
við bara lélegir. Það er gamla
sagan að úrslitin sjá um sig sjálf
ef leikmenn leggja eitthvað í púkk-
ið. Það gerðu þeir svo sannarlega
í kvöld, sérstaklega í seinni hálf-
leik,“ sagði Ólafur eftir leik.
Varnarleikur Blika var ekki
mjög sannfærandi í fyrri hálf-
leiknum og Valsmenn fengu í raun
betri færi í honum. En Ingvar Kale
var í ham í rammanum og átti
nokkrar mjög mikilvægar vörsl-
ur sem skiptu sköpum. En í seinni
hálfleik luku Valsmenn keppni á
meðan Blikum héldu engin bönd.
„Við rifjuðum upp í hálfleik
hvernig við viljum spila varnar-
leik, við færðum línuna framar og
þéttum okkur. Það skóp í raun og
veru sigurinn,“ sagði Ólafur
Jökull Elísabetarson kom Blik-
um á bragðið með glæsilegu marki
en Jökull átti hreinlega stórleik í
gær þar sem hann vann mikil-
væga vinnu á miðjunni. „Jök-
ull er búinn að vera frábær í allt
sumar og hefur ekki alveg fengið
það hrós sem mér finnst hann hafa
átt skilið.
Alfreð Finnbogason sýndi spari-
hliðarnar, skoraði tvö og lagði
önnur tvö upp. „Maður getur ekki
verið annað en sáttur við vinnu-
daginn. Valsmenn fengu tvö mjög
góð færi í fyrri hálfleiknum og
voru satt best að segja óheppnir
að vera ekki yfir í hálfleik,“ sagði
Alfreð.
„Það er gott að vera aðeins búinn
að snúa blaðinu við. ÍBV hefur yfir-
leitt verið að spila á undan okkar
og pressan verið okkar megin. Nú
er þeirra að taka við.“
Blikarnir voru frábærir í gær
og Valsliðið eins og leir í höndum
þeirra. Hlíðarendaliðið hefur ekki
unnið deildarleik síðan 14. júní og
vandamálið sem Gunnlaugur Jóns-
son er að glíma við kannski stærra
en hann nokkurn tíma óraði fyrir.
Spilamennska liðsins hrundi
í seinni hálfleik og andleysið og
áhugaleysið var algjört hjá þeim
rauðklæddu. „Við vorum ekki
með síðustu 40 mínúturnar. Þeir
að sama skapi bættu sinn leik og
við vorum ekki í takti. Við vorum
okkur til skammar,“ sagði Sigur-
björn Hreiðarsson, miðjumaður
Vals.
„Mér fannst fyrri hálfleikur-
inn fínn en við vorum ekki með
grimmd eða neitt gegn þeim í
seinni hálfleik. Við vorum bara úti
að skíta. Þeir bara rúlluðu okkur
upp.“
Valsmenn eiga mikið verk óunn-
ið fram að næsta leik sem er gegn
Grindavík á sunnudag. Á sama
tíma eru Blikar að fara að mæta
Íslandsmeisturum FH. „Hjá okkur
hefur maður í allt sumar bara
hugsað um næsta leik. Það er leið-
inlegt, en það er bara þannig. Krik-
inn er verðugt verkefni,“ sagði
Ólafur Kristjánsson.
elvargeir@frettabladid.is
Blikar settu í fimmta gír gegn Val
Valsmenn mættu í Kópavoginn í gær til þess eins að vera niðurlægðir. Leikurinn var opinn í báða enda í
fyrri hálfleik en Blikar höfðu öll völd í þeim seinni og komust aftur upp í toppsæti deildarinnar.
ÞAÐ FYRSTA AF FIMM Jökull Elísarbetarson átti stórleik með Blikum í gær og fagnar hér markinu sínu sem kom Breiðabliki í 1-0.
Með honum eru Haukur Baldvinsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI