Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 50
4. september 2010 LAUGARDAGUR2
565768
Strætó bs. óskar eftir að ráða til sín starfsmann í eftirlit.
Í starfinu felst að ferðast með vögnum Strætó bs. og sinna því eftirliti sem til fellur, s.s. að athuga gildistíma korta hjá
farþegum, ástand og þrif vagna ásamt skráningarvinnu, samskipti við fulltrúa frá akstursaðilum Strætó bs. og annað sem tilheyrir starfinu.
Leitað er að þjónustulunduðum einstaklingi með góða samskiptahæfni, góða tungumála- og tölvukunnáttu og reynslu af gagnavinnslu.
Stúdentspróf er skilyrði og einungis reyklausir einstaklingar eldri en 30 ára koma til greina.
Viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september nk.
S: 511 1144
SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR EINGÖNGU Á WWW.VINNA.IS
AVON er nafnið sem allir þekkja um allan heim. AVON er fyrirtækið
sem hefur starfað í 125 ár og ávallt haft þarfir kvenna í fyrirrúmi.
Að auki er AVON tryggur stuðningsaðili rannsókna á brjósta krabba-
meini hér á landi og um víða veröld og höfum verið í góðu samstarfi
til margra ára við Göngum saman og Ljósið. Avon er með beina sölu
víðs vegar um heiminn á snyrtivörum, húðvörum, ilmum og skarti til
miljóna ánægðra viðskiptavina um víða veröld.
Við viljum fá þig til liðs við okkur, við hjá AVON viljum
bæta við okkur skemmtilegum sölufulltrúum til að selja
snyrtivörurnar okkar á heimakynningum um allt land.
Ef þú hefur áhuga á snyrtivörum og vilt vinna þér inn
aukapening á auðveldan máta þá skaltu hafa samband
við okkur.
Kynntu þér það sem við höfum uppá að bjóða.
Minnum á glæsilega heimasíðu okkar www.avon.is
Með kveðju starfsfólk AVON
emilia@avon.is, katrin@avon.is
avon@avon.is
Sími 577 2150
•
Leikskólakennari
Laus er staða leikskólakennara í Heilsuleikskólanum
Urðarhóli skólaárið 2010 – 2011. Við leitum eftir umsækj-
anda sem hefur áhuga á næringu, hreyfingu og listum.
Viðkomandi þarf að vera fær í mannlegum samskiptum,
hraustur og stundvís. Á Urðarhóli leggjum við upp með að
starfa af fagmennsku og í góðu andrúmslofti. Áhugasamir
skoði heimasíðu skólans www.urdarholl.kopavogur.is
Nánari upplýsingar veita stjórnendur skólans:
Sigrún H Jónsdóttir, leikskólastjóri sími 840 2686
Kópavogsbær