Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 76
44 4. september 2010 LAUGARDAGUR
1. LISTASÖFNIN
Verk meistaranna
Ókeypis aðgangur er á
stærstu listasöfnin í Reykja-
vík. Í Listasafni Íslands
er ætíð sýning á verkum
íslenskra meistara auk
sýninga sem standa yfir í
styttri tíma. Þau þrjú söfn
sem eru undir hatti Lista-
safns Reykjavíkur leggja öll
áherslu á einn merkan lista-
mann, Kjarval er til sýnis á
Kjarvalsstöðum, Erró í Hafn-
arhúsinu og Ásmundarsafn
er helgað verkum Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara.
Þar fyrir utan eru reglulega
nýjar sýningar í tveimur
fyrrnefndu söfnunum.
2. HÖGGMYNDIR
Garður Einars Jónssonar
Úti um allan bær eru högg-
myndir eftir okkar helstu
myndlistarmenn. Á venju-
legum degi tökum við hvorki
eftir útilegumanninum eftir
Einar Jónsson við Hring-
brautina né virðum fyrir
okkur Ingólf Arnarson á Arn-
arhóli eftir sama listamann.
Höggmyndir er að finna víða
um höfuðborgarsvæðið og að
sjálfsögðu alveg ókeypis að
virða þær fyrir sér. En vakni
áhugi á að skoða fleiri en
eina er óhætt að mæla
með ferð í Höggmynda-
garð Einars Jónssonar,
sem stendur við Freyju-
götu, bak við Listasafn Ein-
ars Jónsonar. Garðurinn er
alltaf opinn og aðgangurinn
ókeypis.
3. ÞJÓÐMENNING
OG ÞJÓÐMINJAR
Ókeypis á miðvikudögum
Miðvikudagar eru menning-
ardagar. Tvö söfn í Reykja-
vík, Þjóðminjasafnið og
Þjóðmenningarhúsið eiga
það sammerkt
að rukka ekki
aðgangseyri
á miðviku-
dögum. Þeir
sem áhuga hafa
á að kynnast
betur grunn-
stoðum íslenskr-
ar menningar
gætu gert margt
vitlausara en að
heimsækja þessi
tvö söfn, skoðað
handrit í Þjóðmenn-
ingarhúsinu og valda
muni með menningarsögu-
legt gildi í Þjóðminjasafn-
inu, auk annarra sýninga.
4. GERÐARSAFN OG
HAFNARBORG
Kópavogur og Hafnarfjörður
Tvö söfn í nágrannabæjum
Reykjavíkur státa af góðum
listasöfnum sem ekkert
kostar að skoða, Gerðar-
safn í Kópavogi og Hafnar-
borg í Hafnarfirði. Sýning-
ardagskrá er fjölbreytileg
á báðum stöðum en einmitt
núna stendur yfir í Gerðar-
safni samsýning níu ungra
listamanna. Í Hafnarborg
er hins vegar húmorinn í
hávegum hafður á sýning-
unni að elta fólk og drekka
mjólk sem er sýning á verk-
um listamanna sem notað
hafa húmor á einn eða annan
hátt.
5. KENNILEITI
REYKJAVÍKUR
Þrjár kirkjur í hjarta Reykja-
víkur
Kirkjur eru táknmyndir
margra borga og þó ekki sé
að finna ævagamla glæsi-
byggingar hér á landi er
göngutúr frá Kristskirkju
á Landakotshæð að Hall-
grímskirkju á Skólavörðu-
holti góð leið til að skoða
Reykjavík. Báðar kirkjurn-
ar eru teiknaðar af Guð-
jóni Samúelssyni, sý fyrri
í í nýgotneskum stíl en sú
síðari með þjóðlegri blæ,
vísunum í stuðlaberg, fjöll
og jökla. Til mótvægis við
steinsteypuklassíkina er
svo hægt að skoða hina dan-
skættuðu Dómkirkju við
Austurvöll.
6. BORGARSÖFNIN
Vörugeymsla í nýju hlutverki
Þó að vissulega kosti að fá
bækur lánaðar á Borgar-
bókasafninu kostar ekkert
að vera þar og glugga í hin
ýmsu blöð og bækur. Útibú-
in eru nokkur en aðalsafn-
ið í Tryggvagötu 15 þeirra
stærst. Nóg er af skotum til
að sitja og lesa og mikið við
að vera fyrir börn. Í sama
húsi, sem teiknað var af Guð-
jóni Samúelssyni og hýsti
upphaflega vörugeymsl-
ur, er svo einnig Borgar-
skjalasafn Reykjavíkur og
Ljósmyndasafn Reykjavík-
ur. Það fyrrnefnda er lík-
legt til að höfða aðallega til
grúskara og fræðimanna en
það síðarnefnda til allra sem
áhuga hafa á ljósmyndum.
7. HÁSKÓLI ÍSLANDS
Fróðleikur og fagrar listir
Á veggjum bygginga
Háskóla Íslands er víða að
finna merk listaverk sem
eru í eigu Listasafns Háskól-
ans. Þar fyrir utan er ýmis-
legt áhugavert og ókeypis
í boði fyrir áhugafólk um
menningu, fyrirlestrar um
margvísleg efni sem eru
öllum opnir.
8. LAUGARDALUR
Söguminjar og grös
Þvottalaugarnar í Laugar-
dalnum sem voru endurgerð-
ar fyrir nokkrum árum eru
meðal þess sem má skoða í
göngutúr um hinn fallega
Laugardal í miðri Reykjavík.
Grasagarðurinn er sömuleið-
is heimsóknarinnar virði en
þar er að finna 5.000 tegund-
ir plantna í níu safndeildum.
9. SKUGGAHVERFIÐ
Arkitektúr og upplifun
Áhugafólk um menningu
getur slegið margar flugur
í einu höggi í göngutúr frá
Hverfisgötu niður á Skúla-
götu. Við Hverfisgötu standa
mörg áhugaverð hús frá
sjónarhóli reykvískrar bygg-
ingarlistar, Þjóðleikhús-
ið og Þjóðmenningarhúsið
svo tvö dæmi séu tekin. Við
sömu götu má skoða mynd-
list í gallerí Kling og Bang.
Síðan er tilvalið að ganga
um Skuggahverfið
neðan Hverfisgötu,
skoða nýuppgerð
hús við Lindargötu
og nýbyggða og
turna og hálfköruð
háhýsi. Enda
svo túrinn á Nýlistasafninu
við Skúlagötu.
10. HÖNNUN
Alveg ókeypis að skoða
Mikil gróska hefur verið í
íslenskri hönnun undanfarin
ár. Gott úrval nytjahluta er
að finna í verslunum Kraum
til að mynda í Aðalstræti
og þar má rétt eins gera
sér ferð til að skoða eins
og að kaupa. Epal í Skeif-
unni býður sömuleiðis upp
á fjölbreytt úrval íslenskr-
ar hönnunar. Áhugafólk
um tísku getur svo skoð-
að íslenska fatahönnun
í mörgum búðum við
Bankastræti, Lauga-
veg og Skólavörðustíg.
Andinn auðgaður alveg ókeypis
Það er hægt að njóta lista og menningar af ýmsu tagi víða á höfuðborgarsvæðinu án þess að draga upp veskið. Fréttablaðið bend-
ir hér á nokkur dæmi um menningu sem kostar engan pening að upplifa.
1
8
4
1
4
10
7
9
10
2 35
2
3 52
5
1
16
9
10
➜ Að virða mannlífið fyrir sér
➜ Að sitja í skrúðgörðum
➜ Að fara í sjósund
➜ Að fara í fjöruferð, til dæmis í Gróttu
➜ Að fara í Kolaportið
■ ÞETTA ER LÍKA ÓKEYPIS