Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 84
52 4. september 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Runólfur Gunnlaugsson lögg. fast. - Kristín Pétursdóttir, lögg. fast. Ásmundur Skeggjason lögg. fast.
Við Elliðavatn í Norðlingaholti
Húsin verða afhent fullbúin að utan og fokheld að
innan með gróf jafnaðri lóð. Gert er ráð fyrir 4 svefnher-
bergjum. Möguleiki er að fá húsin lengra komin.
Verð 42 millj.
GLÆSILEG OG FRÁBÆRLEGA STAÐSETT 250
FM PARHÚS Á EINSTÖKUM ÚTSÝNISSTAÐ VIÐ
ELLIÐAVATN Í NORÐLINGAHOLTI.
Til sölu glæsilegt tvílyft
einbýlishús á einstökum
stað við Eyjafjörð.
Einungis 10 min.
Fjarlægð frá Akureyri.
Húsið er samtals 167 fm. að stærð og er einkar vandað í alla staði.
Lóð er eignar lóð og samtals 3,3 ha. að stærð og nær niður að sjó.
Útsýni er stórfenglegt.
Sjón er sögu ríkari.
Tilbð óskast
TIL SÖLU EINSTÖK
EIGN VIÐ EYJAFJÖRÐ.
Ég er búinn að vera að
horfa á þig í allt kvöld
og þú ert með þær
gulustu tennur sem ég
hef á ævi minni séð!
„Þú og ég, við erum
saman, siglum, það
er gaman,“ eða eigum
við að taka leigu-
bíl? Vel á
minnst,
welcome
to the
jungle,
baby!
Leyfðu mér að
beina þér í rétta
átt, sykurtík!
Stundum líður mér eins
og allir hafi stjórn á öllum
hlutum en ég sé bara
með allt niðrum mig.
Svona
líður okkur
öllum.
Þannig að það hefur enginn stjórn
á einu eða neinu og allir eru bara
með allt niðrum sig?
Ég veit ekki
hvort þetta
hughreystir
mig eitthvað.
En svona
er þetta
allavega.
Systur minni langar að
giftast manni sem hún
hitti á stefnu-
mótasíðu! HA!
Hún hitti einhvern karl á
netinu og þau eru byrjuð
að ræða barn-
eignir! Vá!
Hin líffræðilega þörf til
að eignast börn er svo
sterk.
Já.
Eða þau eru blinduð af
glamúrnum í kringum slíkt.
Þú hlýtur
að vera
sá franski!
PONDUS
KYNNIR
Röngu
„pickup“-
línurnar
NÆST
Alvarleg
nefbrot á
karlmönnum,
án skýringa,
fylgist með!
Í umfjöllun undanfarinna daga um trúnaðar skyldu presta hefur sá mis-
skilningur komið fram í ræðu og riti að
lútherskir menn skrifti ekki. Þetta bygg-
ir á því að Lúther leit ekki á skriftir sem
sakramenti. Það þýðir þó ekki að hann
hafi afnumið þær. Lúther var reyndar
ákaflega hlynntur skriftum. Í riti sínu um
Babýlónarherleiðingu kirkjunnar byrjar
hann á að flokka þær með sakramentum,
en talar sig síðan frá því þar sem hið ytra
tákn skorti. Lúther viðurkenndi því aðeins
tvö sakramenti, skírn og kvöldmáltíð. Þar
eru hin ytri tákn til staðar, annars vegar
vatnið og hins vegar vínið og brauðið.
LÚTHERSKAR kirkjur hafa aftur á
móti svipt tjaldi tortryggninnar frá
skriftunum, þær fara fram án leyndar í
trúnaðarsamtali skjólstæðings og sálu-
sorgara. Presturinn mætir skrifta-
barninu augliti til auglitis sem
jafningja, en er ekki settur í
þá stöðu að geta ekki horft
í augun á því og í kjöl-
farið að vita ekki einu
sinni við hvern hann talar
ef það játar á sig glæpi,
sem presti ber samkvæmt
landslögum að tilkynna,
því annað jafngildi yfir-
hylmingu eða jafnvel
meðsekt. Sömuleiðis sam-
þykkja lútherskir menn ekki bænamál og
kirkjurækni sem yfirbótaverk. Guðsþjón-
usta er ekki verk sem menn vinna sér og
öðrum til réttlætingar heldur lofgjörð og
þakkargjörð fyrir náð Guðs. Yfirbótaverk
felast í því að bæta fyrir brot sín, ekki því
að þylja einhverjar romsur í einrúmi.
Í ÞESSARI umræðu orðaði einhver það
svo að prestar væru „eins konar sálfræð-
ingar“. Að mínu mati væri nær að líkja
presti við sjóntækjafræðing. Fyrir nokkru
stóð styr um það hvort sjóntækjafræðing-
ar mættu stunda sjónmælingar á fólki.
Niðurstaðan var sú að það var leyft. Stað-
reyndin er nefnilega sú að sá sem þarf
gleraugu þarf ekki alltaf á augnlækni að
halda. Tímar hjá augnlæknum eru rán-
dýrir og löng bið eftir þeim. Aftur á móti
ríður á að sjóntækjafræðingurinn geri
sér grein fyrir takmörkum sínum og vísi
þeim, sem hann getur ekki hjálpað, á
viðeigandi sérfræðing.
EINS þurfa þeir, sem líður illa, ekki alltaf
á sálfræðingi að halda. Tímar hjá sálfræð-
ingum eru rándýrir og löng bið eftir þeim.
Aftur á móti er presturinn ókeypis og
ávallt til þjónustu reiðubúinn. En þá ríður
líka á að presturinn geri sér grein fyrir
takmörkum sínum og vísi þeim, sem hann
hefur ekki þekkingu til að veita viðeigandi
þjónustu, á sérfræðing.
Skriftir lútherskra