Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 70
6 FERÐALÖG
Lance -
dansnámskeið
hefjast fimmtudaginn 9. september
kl. 21.00 - 4 skipti
Opið hús
miðvikudaginn 8. september kl. 20.30
gömludansarnir dansaðir.
Upplýsingar í síma 587 1616 - www.isdans.is
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14a
lengi verið heillaður af Tyrklandi
og sérstaklega Istanbul en það er
engin borg í Evrópu sem jafnast á
við hana hvað söguna varðar enda
búin að vera höfuðborg tveggja
heimsvelda, aust-
rómverska rík-
isins og soldána-
veldis.“
En hver nig
verður ferðalag-
inu háttað? „Við
fljúgum til Istan-
bul þar sem við
stoppum í fjóra
daga og reynum
að líta á það allra
markverðasta,“
segir Jón og nefnir Hagia Sophia
kirkjuna, Bláu Moskuna og Baza-
arinn. „Þaðan förum við með rútu
suður til höfuðborgarinnar Ank-
ara. Þar munum við annars vegar
skoða Anatólíska safnið sem gefur
innsýn inn í heimsmannkynssög-
una og varpar ljósi á hvernig land-
búnaðurinn og fjölmargt annað
barst til Evrópu um Tyrkland.
Hins vegar munum við skoða Graf-
hýsi Ataturks sem Tyrkirnir halda
mikið upp á enda á hann að hafa
leitt þá inn í nútíðina.“ Frá Ank-
ara verður haldið til Cappadocia-
héraðsins þar sem er að finna afar
merkilegar minjar. „Jarðvegur-
inn er þannig að menn gátu mótað
hann í alls kyns bústaði og hafa
þeir holað sig inn í kletta, byggt
kirkjur og neðanjarðarborgir svo
dæmi séu nefnd.“ Síðan verður
haldið á fornleifasvæðið Catalhoy-
uk þar sem eina af elstu borgum
heims er að finna. Hún var í byggð
sjö til átta þúsund árum fyrir
Krist og er á meðal fyrstu merkja
um þéttbýli manna. „Að síðustu
verður farið til Konya til að skoða
minjar frá tímum Tyrkjanna sem
komu til landsins árið 1.000. Þeir
lögðu að velli austrómverska keis-
aradæmið sem hafði sitt höfuðað-
setur í Konstantínópel. Borgin féll
árið 1453 og þá varð Istanbul að
höfuðborg heimsveldis sem náði
umlukti miðjarðarhafið að miklu
leiti Miðjarðarhafs, öll Austurlönd
nær og langt inn í Evrópu, en féll
í seinni heimsstyrjöldinni.“ Frá
Konya verður haldið til Istanbul
og þaðan heim. Jón á von á því að
þessi tíu daga ferð, sem hefst hinn
15. október, verði krefjandi en að
ferðalangarnir séu drifnir áfram
af áhuga. Hann segir örfá sæti
laus en nánari upplýsingar veitir
starfsfólk ÍT-ferða. -v e
Tilkomumikil sjón Farið verður að bláu moskunni í Istanbul.
Ótrúlegar minjar Í
Cappadocia-hérað-
inu er jarðvegurinn
þannig að menn
gátu mótað í hann
alls kyns bústaði.
Í höfuðborginni Í Ankara er grafhýsi Atatürks sem Tyrkir halda mikið upp á.Óvenjuleg byggingarlist Ferðalangarnir
munu skoða klettaborgir í Zelve dal.
HVAÐ KOM ÞÉR MEST Á ÓVART
VIÐ BORGINA ÞÍNA? Það sem
kom okkur skemmtilega á óvart
var útivistarsvæðið í kringum
borgina, Odenwald garðurinn.
Skógurinn bíður upp á fjöldann
allan af stuttum gönguleiðum sem
liggja nánast beint úr miðbæn-
um og upp úr dalnum með gott
útsýni yfir borgina, ána Neckar,
og umhverfið í kring.
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐ-
URINN? Ef við erum með gesti
og viljum kynna þá fyrir þýskri
matarmenningu, þá verður Kultur-
brauerei í gamla bænum oftast
fyrir valinu. Bjórinn þeirra er einn
sá besti í borginni og maturinn er
sýnishorn af því besta í svabískri
matarlist. Þeir eru líka með stóran
og huggulegan bakgarð sem er
opinn fyrir gesti á sumrin.
FLOTTASTA FATAVERSLUNIN?
Uppáhalds fataverslunin mín heit-
ir Glueck og er á göngugötunni.
Þetta er pínulítil verslun, en hún
er t.d. með gott úrval af dönskum
merkjum, svo ég finn nánast alltaf
eitthvað sem ég verð að eignast.
UPPSKRIFT AÐ GÓÐU KVÖLDI?
Kvöldmatur á litlum, huggulegum
veitingastað í gamla bænum, ís í
eftirmat hjá GelaTo Go á göngu-
götunni og að lokum eins og
einn kokkteill hjá Schultzes, sem
er pínulítill kokkteilbar í hverfinu
okkar.
HVERJU MÁ MAÐUR ALLS EKKI
MISSA AF? Kastalinn er stolt
borgarinnar og því eitthvað sem
maður ætti að sjá. Mér finnst
skemmtilegast að ganga beint
upp að kastalanum úr gamla
bænum við sólsetur og sjá sólina
setjast við hinn enda borgarinnar.
HEIMAMAÐURINN
Heidelberg
ÞÓRDÍS LINDA ÞÓRARINSDÓTTIR
TÖLFRÆÐINGUR OG KENNARI VIÐ
HÁSKÓLANN Í HEIDELBERG
NECKAR fljót Kastalinn í Heidelberg gnæfir yfir borginni og er stolt íbúa hennar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ráðhústorgið Kaffihús á markaðstorginu við
ráðhúsið í Heidelberg.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Heillaður Jón
segir enga borg í
Evrópu jafnast á við
Istanbul.