Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 48
Íslendingurinn Ragnhildur Guð-
mundsdóttir kynntist Sayoko fyrir
einskæra tilviljun á ferðalagi um
Egyptaland fyrir fimmtán árum.
„Þá fannst Sayoko hún hafa
himin höndum gripið að rekast loks
á Íslending því frá barnæsku hafði
hún haft brennandi áhuga á Íslandi
og ávallt dreymt um að skoða norð-
urljós á íslenskum himni, eins og
flestir Japanar sem eru heillaðir
af norðurljósunum og koma hing-
að um langan veg til að sjá þau yfir
vetrartímann,“ segir Ragnhildur í
kærkomnum félagsskap Sayoko.
Sayoko er menntaður tannfræð-
ingur en hefur nú unnið við Ike-
bana blómaskreytilist í 33 ár. Með
sýningunni vill hún kynna Íslend-
ingum undraheim Ikebana þar
sem blómum er raðað eftir fast-
mótuðum hefðum og hver skreyt-
ing hefur sína merkingu sem túlka
má eins og hvert annað listaverk.
Nám í Ikebana blómaskreyting-
um tekur fimm ár en í raun er ekki
hægt að verða fullnuma í listinni.
Því fer Sayoko fjórum sinnum á ári
í námsferðir til Kyoto, hinnar fornu
höfuðborgar Japans og vöggu Ike-
bana-menningarinnar. Þess á milli
sýnir hún list sína í Japan og kenn-
ir hana á ýmsum skólastigum.
„Ég var ekki viss hvort við
mundum nokkurn tímann sjást
aftur eftir Egyptaland því svo
langt var á milli Japans og Íslands,
en tveimur árum síðar kom Sayoko
til mín og fór með okkur hringinn í
kringum landið. Hún er vitaskuld
spæld að sjá engin norðurljós yfir
sumartímann, en er ekki síður
hrifin af íslenskum fossum og fisk-
inum. Því fórum við að sjá Hraun-
fossa og Barnafoss í Borgarfirði í
vikunni og á óskalistanum var að
sjá friðarsúlu Yoko Ono í Viðey,
sem hefur verið mikið umfjöllun-
arefni í Japan,“ segir Ragnhildur
sem sjálf fór til Japans að heim-
sækja Sayoko 1999.
„Við erum afskaplega góðar
vinkonur og eigum sameiginleg-
an mikinn ferðaáhuga. Sayoko er
einstaklega góð og notaleg kona
og Japanar auðvitað annálaðir
fyrir kurteisi. Hún er evrópsk sál
í asískum líkama því hún elskar
fornar evrópskar borgir og kom
hingað himinlifandi beint frá
Prag. Ég er því ævinlega þakklát
forsjóninni fyrir að leggja götur
okkar saman því í hennar sam-
fylgd hef ég kynnst svo mörgu
nýju og ógleymanlegt ævintýri
að heimsækja hana í litla bæinn
hennar utan við stórborgina Nii-
gata á vesturströnd Japans og
kynnast menningu Japana eins
og maður gerir aðeins ef maður
þekkir heimamann og býr inni á
japönsku heimili.“
Sayoko sýnir í Garðheimum í
dag og á morgun og verður með
sýnikennslu milli klukkan 14 og
17. thordis@frettabladid.is
Vinkonurnar Sayoko og Ragnhildur Guðmundsdóttir kynntust óvænt þegar báðar
héldu á vit Egyptalands fyrir hálfum öðrum áratug.
Framhald af forsíðu
Opið hús verður í Heilsudrekanum í Skeifunni í dag, þar sem börnum og fullorðnum gefst
meðal annars færi á að kynna sér kung fu, hugræna teygjuleikfimi, tai chi og heilsumeðferð.
Heilsusetur Þórgunnu
552 1850 / 896 9653 · www.heilsusetur.is
Viðurkenndur sérmenntaður
kennari með 20 ára reynslu
UNGBARNANUDD
Námskeið 9. september nk.
BAKNUDDNÁMSKEIÐ
Námskeið 18.-19. september nk.
ANDLITS- OG HÖFUÐNUDD
Námskeið 11. september nk.
Upplýsingar í síma 896-9653
og á www.heilsusetur.is.
5 ÁRA
AFMÆLI
5 ÁRA GÖMUL VERÐ
DAGANA 1. - 8.SEPT
bailine vaxtarmótun
bailine · Hlíðarsmári 11, 201 Kópavogur · Sími 568 0510 · www.bailine.is
Tímapantanir í síma 568 0510
www.bailine.is
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
fridaskart.is
S K A R T G R I P A H Ö N N U Ð U R
& G U L L S M I Ð U R
„Slétt og
brugðið“
Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466
Opið 8-22
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myn-
dum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal
að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
• Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
• Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
• Mannleg samskipti.
• Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhald-
snám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“. Martha Jensdóttir
kennari.
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 90 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing