Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 4. september 2010
Ekki öllum slátrað í ráðuneytinu
Þeir sem hafa gegnt embætti heil-
brigðisráðherra undanfarinn áratug
eða tvo eiga það flestir sammerkt að
hafa eftir það ekki átt vísa sérstak-
lega glæsta framtíð í stjórnmálum,
hvernig sem á því stendur. Er verið
að rétta þér eitraðan kaleik með því
að setja þig á þennan stað?
„Þetta var nú einu sinni sagt um
ágætan félaga minn og vinkonu á
Akranesi, Ingibjörgu Pálmadóttur,
en hún náði því að verða mjög lengi
ráðherra eftir mjög erfiða byrjun,
þannig að ég held að við getum
ekki sagt að fólki sé öllu slátrað
sem fer í þetta ráðuneyti. Ég hef
ekkert verið að hugsa þetta svona.
Ég er í pólitík í dag og eins lengi og
tíminn endist. Ég hef engin fram-
tíðaráform um annað en að gera
gagn og vanda mig í þessari vinnu.
Ef það gefur mér vond eftirmæli
þá verður það auðvitað mjög sorg-
legt, en ég hef engar væntingar um
að þetta leiði eitthvert annað. Ég
hef engar ambisjónir um að vera
eitthvað annað en ég er og það er
ekki þannig að ég sé búinn að vera
að láta mig dreyma um að verða
ráðherra.“
Það er byrjað að orða þig við
stærri embætti innan þíns flokks.
Eru slíkar hugleiðingar farnar að
sækja á þig?
„Nei nei, við erum með besta for-
mann af öllum stjórnmálaflokkum
á Íslandi þannig að ég held að aðrir
flokkar ættu frekar að huga að
formannsskiptum en við.“
Guðbjartur Hannesson fæddist á Akranesi 3. júní 1950 og er því sextugur.
Kona hans er Sigrún Ásmundsdóttir iðjuþjálfi og eiga þau tvær dætur, 32 og
22 ára.
Guðbjartur lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1971, og
hefur síðan aflað sér tómstundakennaraprófs í Danmörku, framhaldsgráðu
í skólastjórn frá Kennaraháskóla Íslands og meistaragráðu frá kennaraskóla
Lundúnaháskóla.
Hann starfaði nánast óslitið sem kennari á Akranesi og í Kaupmannahöfn
frá 1971 til 1981 og tók þá við skólastjórastöðu Grundaskóla í bænum. Því
starfi gegndi hann til 2007. Hann sat í bæjarstjórn á Akranesi frá 1986 til
1998 fyrir Alþýðubandalagið og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hann
hélt áfram í bæjarmálunum fram til ársins 2002 með Akraneslistanum án
þess að eiga sæti í bæjarstjórn. Hann átti sæti í bankaráði Landsbankans frá
1998 til 2003.
Guðbjartur var kjörinn á þing árið 2007 fyrir Samfylkinguna eftir að hafa
sigrað prófkjör flokksins á Vesturlandi. Hann var forseti þingsins í þrjá mán-
uði í fyrra og hefur verið formaður fjárlaganefndar síðan í fyrravor.
Kennari og skólastjóri nær alla tíð
Miklu hraðara Internet
Nú býður Síminn viðskiptavinum sínum upp á enn meiri hraða en áður á Internetinu.
Hraðinn í Grunnáskrift, Leið 1 og Leið 2 fer upp í allt að 12 Mb/s.
Núverandi viðskiptavinir fá sjálfvirka uppfærslu á næstu mánuðum.
Það erFáðu þér Internet Símans í síma 800 7000 eða á siminn.is.