Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 98
66 4. september 2010 LAUGARDAGUR
DENNIS HOPPER
Leikarinn umdeildi lést á
heimili sínu í Los Ang-
eles í maí síðastliðnum
af völdum krabbameins
í blöðruhálskirtli, 74 ára
gamall. Hann var þekkt-
astur fyrir leik sinn í Easy
Rider, Apocalypse Now,
Blue Velvet og Speed.
Krabbamein er skaðvaldur sem mannfólkið ótt-
ast meira en flest annað. Stjörnurnar í Hollywood
fá jafnmikið að finna fyrir sjúkdómnum og aðrir,
rétt eins og leikarinn Michael Douglas komst að
á dögunum. Þrátt fyrir að búa við mikinn lúxus
og lifa sannkölluðu draumalífi eru stjörnurnar í
Hollywood fjarri því að sleppa við þá sjúkdóma
sem herja á venjulegt fólk. Af og til fellur fólk í
valinn af völdum krabbameins í kvikmyndaborg-
inni, rétt eins og annars staðar, á meðan aðrir
hafa verið svo heppnir að losna við meinið eftir
að hafa gengist undir vel heppnaða lyfjameðferð.
Fréttablaðið tók saman lista yfir þær Hollywood-
stjörnur sem hafa glímt við krabbamein undan-
farin ár. Eins og gefur að skilja hefur glíman
gengið misvel og sumar stjörnurnar eru þegar
farnar yfir móðuna miklu á meðan aðrar prísa sig
sælar og líta björtum augum á framtíðina.
Veikindi Hollywood-stjarna
Fimmtán myndir keppa í flokknum
Fyrir opnu hafi á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem
hefst 23. september. Ein mynd-
anna er spænsk og nefnist Fake
Orgasm og fjallar öðrum þræði
um gervifullnægingar kvenna en
í raun fjallar hún um kynjafræði
og þróun sjálfsmyndar okkar.
Í tengslum við sýningu myndar-
innar verður efnt til keppni í gervi-
fullnægingum á Næsta bar þar
sem strákar og stúlkur munu etja
kappi í þessari sérstöku íþrótta-
grein. „Það er búið að tala við eitt-
hvert fólk. Þetta verða bæði karlar
og konur,“ segir Hrönn Marinós-
dóttir hjá RIFF. Hún segir að
myndin Fake Orgasm hafi fallið
misvel í kramið hjá fólki. „Marg-
ir hreinlega ganga út en aðrir
fíla hana í botn.“ Aðrar myndir í
flokknum Fyrir opnu hafa fjalla
um kynskiptinga, samfélags-
legt hrun, undarlega finnska fjöl-
skyldu, lífið í harðsvíruðu dönsku
fangelsi og ýmislegt fleira.
Íslendingar keppa í fullnægingu
DRIFTING Spænska myndin Drifting er
ein þeirra sem keppa í flokknum Fyrir
opnu hafi.
Um sjötíu erlendir gestir hafa
verið staðfestir á tónlistarráðstefn-
una You Are in Control sem verður
haldin í fjórða sinn dagana 1. og
2. október. Blaðamenn eru vænt-
anlegir frá Bretlandi, Danmörku
og Bandaríkjunum. 250 manns
komu á ráðstefnuna í fyrra en í ár
er búist við um 300 til 350 manns,
enda hefur aðsóknin aukist tölu-
vert á milli ára.
Ráðstefnan fer fram á Hilton
Nordica-hótelinu. Forsala miða
hefur gengið vel en frá og með 5.
september hækkar miðaverðið og
mun það haldast óbreytt á meðan
miðar eru til. Skráning fer fram
á heimasíðu ráðstefnunnar www.
youareincontrol.is.
350 þátttakendur
ÓLÖF ARNALDS Ólöf Arnalds spilaði á
ráðstefnunni You Are in Control í fyrra.
MICHAEL C.
HALL
Í janúar síðastliðnum
var tilkynnt að Dexter-
leikarinn væri að gang-
ast undir meðferð við
Hodgkins-krabbameini
sem ræðst á ónæmis-
kerfi fólks. Í febrúar bárust
síðan fregnir um að Hall
hefði jafnað sig að
fullu og væri
reiðubú-
inn til að
takast
á við
Dexter
á nýjan
leik.
MICHAEL
DOUGLAS
Stutt er síðan leikarinn
greindist með krabbamein
í hálsi. Hann gengst nú
undir geisla- og lyfjameð-
ferð og segir líkurnar 80%
á að hann nái fullri heilsu
á nýjan leik. Douglas,
sem verður 66 ára síðar
í mánuðinum, fékk Ósk-
arinn fyrir hlutverk sitt í
Wall Street árið 1987.
CHRISTINA APPLEGATE
Greindist með brjóstakrabbamein
2008 og sem betur fer greindist það
fljótt þannig að hægt var að stöðva
útbreiðsluna. Til að hafa vaðið fyrir
neðan sig lét hún fjarlægja bæði
brjóst sín og núna er hún laus við
meinið. Hún er þekktust fyrir
hlutverk sitt í sjónvarpsþáttun-
um Married … with Children.
PATRICK SWAYZE
Leikarinn, dansarinn og
tónlistarmaðurinn, sem sló
í gegn í Dirty Dancing, lést
fyrir rúmu ári eftir baráttu
við krabbamein í brisi.
Hann greindist með meinið
í janúar 2008
og þurfti á
endan-
um að
játa sig
sigraðan,
57 ára
gamall.