Fréttablaðið - 04.09.2010, Blaðsíða 94
62 4. september 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Íslensk hönnun hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu ár og hafa stórstjörnur meðal
annars heillast af íslenskri framleiðslu.
Stjörnurnar velja íslenskt
E-LABEL
Hin heimsfræga
söngkona Beyoncé
festi kaup á Heavy-
metal leggings frá
tískumerkinu E-label í
fyrrahaust. Hún sótti svo
innblástur til E-label þegar
hún hannaði leggings fyrir
eigin fatalínu sem kom út í lok
sumars.
ANDERSEN &
LAUTH
Tískudrottningin og
söngkonan Gwen
Stefani sást klæðast
flík sem Ander-
sen & Lauth
hannaði fyrir
hið vinsæla
tískumerki
Urban
Outfitt-
ers.
GYÐJA COLLECTION
Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir er stofnandi
Gyðju Collection.
Hótelerfinginn Paris
Hilton og söngkonan
Kylie Minogue hafa
báðar klæðst
skóm frá
fyrirtækinu.
EMAMI
Brúðarmeyjar Anitu Briem klæddust
allar sérsaumuðum silkikjólum frá
Emami. Leikkonan Jennifer Morrison var
á meðal brúðarmeyja Anitu og heillaðist
hún mikið af kjólnum og lýsti yfir áhuga
sínum á að eignast einn slíkan.
VERA
ÞÓRÐARDÓTTIR
Íslenski fatahönnuðurinn
eignaðist óvæntan aðdáanda
þegar bandaríska söngkonan
Lady Gaga pantaði föt frá
henni. Vera hefur
verið starfandi í
Bretlandi en
Gaga er eitt
helsta tísku-
tákn 21. ald-
arinnar auk
þess að vera
ein stærsta
poppstjarna
heims um
þessar
mundir.
Einstök lofgrein um Ásdísi Rán birtist
í gær á vefsíðunni sofiaecho.com en
það er ensk vefsíða með fréttum og
fróðleik frá Búlgaríu. En Ásdís kveður
senn landið og heldur til Bæjaralands í
Þýskalandi þar sem eiginmaður henn-
ar, knattspyrnukappinn Garðar Gunn-
laugsson, mun leika með þýska 3. deild-
ar liðinu SpVgg Unterhaching næstu
tvö árin. Blaðamaður vefsíðunnar segir
það nánast hafa verið óhjákvæmilegt
að taka eftir Ásdísi undanfarin ár, hún
hafi verið áberandi í búlgörskum fjöl-
miðlum, andlit hennar hafi verið stans-
laust á forsíðum blaðanna, nú síðast í
búlgörsku útgáfunni af Playboy.
Ásdís er kölluð hin aríska ísdrottning
og sagt að Búlgaría tapi mikið á því
að missa hana yfir til Þýskalands sem
að sama skapi græði mikið með nær-
veru hennar. Í stuttu spjalli við Ásdísi
kemur jafnframt fram að hún og börn-
in séu enn ekki flutt yfir til Bæjara-
lands, þau séu enn að bíða eftir réttu
íbúðinni og leikskólaplássi. „Mér finnst
leiðinlegt að þurfa að kveðja Búlgaríu,
mér hafði tekist að koma undir mig
fótunum. Það er pínulítið ógnandi að
flytja til nýs land þar sem maður þekk-
ir ekki neinn og verður að byrja allt
upp á nýtt, það er eiginlega ömurlegt.
En vonandi mun Þýskaland bjóða upp á
einhver spennandi tækifæri sem ég get
nýtt mér.“ - fgg
Ásdísi þykir fúlt að flytja frá Búlgaríu
Á EFTIR AÐ SAKNA BÚLGARÍU Ásdís segir í
viðtali við Sofia Echo að henni hafi liðið vel í
Búlgaríu og finnist ömurlegt að þurfa að byrja
upp á nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
> LOKSINS SKILIN
Það eru ekki bara Tiger Woods
og Elin Nordegren sem eru
formlega skilin því dómstóll
í Bretlandi hefur ógilt hjóna-
band Ashley Cole og Cheryl
Cole. Upp úr slitnaði hjá þeim
eftir að breskir fjölmiðlar
greindu frá framhjáhaldi
knattspyrnukappans.
Góðgerðastjarnan Angelina Jolie
heldur áfram að biðla til heims-
byggðarinnar og vill að hún bregð-
ist skjótt við vegna hamfaranna í
Pakistan. Jolie hefur birt tilkynn-
ingu á heimasvæði sínu þar sem
hún hvetur aðdáendur sína til að
láta fé af hendi rakna svo hægt
verði að koma íbúum hamfara-
svæðanna til hjálpar.
Talið er að yfir fimmtán hundruð
manns hafi látist í þessum miklu
flóðum en yfir 20 milljónir manna
eru án heimilis. Jolie hefur þegar
gefið yfir 100 þúsund dollara til
hjálparstarfa í Pakistan. „Því fleiri
sem leggjast á eitt þeim mun fleiri
tjöldum, mat og lyfjum getum við
komið til fórnarlambanna,“ segir
Jolie í tilkynningunni.
Vill aðstoða Pakistan
BIÐLAR TIL HEIMSBYGGÐARINNAR Ang-
elina Jolie vill meiri aðstoð til Pakistans.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Kynntu þér rótsterkt
og ilmandi leikár
Skoðaðu nýja Borgarleikhúsblaði
ð á
borgarleikhús.is
eða pantaðu eintak á
dreifing@posthusid.is.
Skelltu þér á áskriftarkort!
www.heilsuhusid.is
Fimmtudaginn. 09. september
Fimmtudaginn. 16. september
HREINSUN Á MATARÆÐI
Skráning og nánari upplýsingar á www.30.is og í síma 864 9155.
Námskeiðsgjald kr. 6.900 kr.
með Davíð Kristinssyni næringar- og lífsstílsþjálfara.
Innifalið í námskeiði er uppfærð handbók með öllum
upplýsingum sem þú þarft og 30 daga framhaldsmatseðli.
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.19:30 - 21:30
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
Davíð tekur einnig að
sér einstaklingsráðgjöf,
mælingar og aðhald
á fimmtudögum.
Nýtt byrjendanámskeið
á morgnana
Nýtt byrjendanámskeið hefst
mánudaginn 6. september.
kennt verður mánudags og miðvikudagsmorgna
kl. 7.30 - 8.30
Nánari upplýsingar og skráning í símum
772 1025 og 695 8464
og á heimasíðunni jogastudio.is