Fréttablaðið - 24.09.2010, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 24. september 2010
KAFFI ER EKKI ÞAÐ SAMA OG KAFFI OG
GENGUR UNDIR ÝMSUM NÖFNUM.
Þykir þér kaffi gott en ert ekki viss um
hvað öll ítölsku kaffinöfnin þýða? Hér
færðu örlitla hjálp:
ESPRESSO: Svart, rótsterkt kaffi.
CAFFÉ AMERICANO: Útþynntur
espresso, en þó sterkari og bragð-
meiri en venjuleg uppáhelling.
CAFFÉ CORRETTO: Espresso með
skvettu af líkjör. Corretto vísar í enska
orðið correct, og er í gamni sagt til að
rétta sig af.
CAFFÉ MACCHIATO: Espresso með
smáslettu af flóaðri mjólk.
CAFFÉ RISTRETTO: Espresso með
eilítið minna vatni og því sterkari en
hefðbundinn espresso.
CAFFÉ LATTE: Espresso með flóaðri
en froðulausri mjólk til helminga.
CAPPUCCINO: Kaffi með flóaðri
mjólk, meira en í macchiato, og oftast
drukkið einvörðungu við morgunverð.
- þlg
Úr vöndu að ráða?
Kaffi er ekki bara kaffi þótt úr baun sé.
Kaffihúsin Frú Berglaug og Café
Haití í Geirsgötu eru ólík en
notaleg kaffihús í afar fallegu
umhverfi, það fyrrnefnda í
hringiðunni við Laugaveginn og
það síðarnefnda á hinu skemmti-
lega hafnarsvæði við Geirsgötu
sem er í stöðugri uppbyggingu.
Fréttablaðið fékk Agöthu Ýri
Gunnarsdóttur á Frú Berglaugu
og Eldu Thorisson-Faurelien á
Café Haití til að gefa lesendum
uppskriftir að girnilegum kaffi-
drykkjum. - jma
Engifer
& ískaffi
Gaman er að prófa sig áfram
með klassíska kaffidrykki og
bæta einhverju spennandi út í
bollann. Starfsfólk á kaffihúsinu
Frú Berglaugu og Café Haití gaf
uppskriftir að girnilegum kaffi-
drykkjum.
Elda Thorisson-Faurelien á Café Haití með kaffidrykk með engifer. Café
Haití hefur getið sér gott orð meðal kaffiaðdáenda en staðurinn er nú
fluttur á nýjan stað, í Geirsgötu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN
Agatha Ýr Gunnarsdóttir á kaffihúsinu Frú Berglaugu með ískaffið. Frú
Berglaug býður, auk góðra kaffidrykkja, upp á mikið úrval af kökum, einar
tíu tegundir, ekki alltaf þær sömu, auk þess sem humarsamlokur og -salöt
eru á matseðlinum og klassískur heimilismatur, eins og plokkfiskur og
kjötsúpa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
7 grömm kaffiduft að eigin vali
vatn fyrir kaffið
½ stk. þurrkað og mulið engifer eða 1 tsk.
engiferduft
½ bolli mjólk
Blandið saman kaffinu og engifer í
espressókönnu og hellið upp á fyrir einn
bolla. Flóið mjólkina þannig að smá
froða myndist og blandið í bolla uppá-
helltu kaffinu og mjólk í jöfnum hlutföll-
um, setjið froðuna ofan á með matskeið.
KAFFI MEÐ ENGIFER
Engiferið gefur kaffinu kraftmikinn keim.
6 klakar
tvöfaldur espressó
1 bolli mjólk
2 slettur karamellusíróp
2 msk. þeyttur rjómi
smá súkkulaðispænir
Setjið ísmola í stórt glas. Hellið
kaffinu og mjólkinni út í og hrærið
sírópinu vel saman við. Skreytið með
þeyttum rjóma og stráið súkkulaðis-
pæni yfir. Bragðast einkar vel með
gulrótar- og ostaköku.
ÍSKAFFFI FRÚ BERGLAUGAR
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins
og taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Ítölsk kaffibrennsla er
talsvert ólík mörgum
öðrum, svo sem þeirri
frönsku, að því leyti að
þær ítölsku eru brúnni
og innihalda mun
minni olíu en þær
frönsku.
www.lifeinitaly.com/
food/coffee.asp