Fréttablaðið - 24.09.2010, Síða 24
JAFNRÉTTISDÖGUM HÁSKÓLA
ÍSLANDS, SEM HAFA STAÐIÐ FRÁ ÞVÍ
Á MÁNUDAG, LÝKUR Í DAG OG Í TIL-
EFNI ÞESS EFNIR STARFSHÓPUR UM
JAFNRÉTTISDAGA TIL UPPISTANDS Á
SKEMMTISTAÐNUM FAKTORÝ.
Háskóli Íslands hefur sett sér það
markmið að vera ávallt í farar-
broddi í jafnréttismálum og er
þetta annað árið sem jafnréttis-
dagar eru haldnir hátíðlegir.
Á lokahófinu ætla nokkrir meðlim-
ir Uppistöðufélagsins að standa
upp og fara með gamanmál,
eða þær Þórdís Nadia Semi-
chat, Saga Garðarsdóttir, Íris
Ellenberger og Elsa María.
Kynnir er Eldar Ástþórsson, akt-
ívísti og framkvæmdastjóri
Kraums – Tónlistarsjóðs. Fakt-
orý, sem stendur við Smiðju-
stíg þar sem Grand Rokk var
áður til húsa, opnar klukkan 21
og aðgangseyrir er enginn.
- jbá
Gamanmál
á Faktorý
Tilbo
ðin e
ru
einn
ig í v
efve
rslun
www
.lind
esign
.is
Dúkaðu upp borðið
25-50% afsláttur af öllum
borðdúkum fram á laugardag
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sími 534 0073
Erum með opið á lau. kl. 11—16
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUR
–25%
af öllum buxum
um helgina
Vorum að taka upp nýjar SOYA-vörur
og nýja skokka.
Súpa dagsins og fjórir réttir:
Borðað á staðnum 1.590 kr. á mann
Heimsending 1.590 kr. á mann
Tekið með heim 1.450 kr. á mann
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst í dag.
„Lítill borðaði ég ekki nammi. Mig
langaði hreinlega ekkert í það og
vildi bara ávexti, en svo breyttist
það og nú finnst mér sælgæti gott,“
segir Sigmar Snær Sigurðsson, tíu
ára Hafnfirðingur, sem tekur sæti
dómara þegar sjónvarpskokkarn-
ir landsfrægu keppa innbyrðis á
Matardögum í Smáralind í dag.
Með Sigmari að dómarastörfum
verða Anita Jacobsen tíu ára og
matreiðslumeistarinn Siggi Hall,
en keppendur eru Jói Fel frá
Stöð 2, Hrefna Sætran af Skjá
einum, Jóhanna Vigdís frá RÚV
og Magnús Ingi af ÍNN.
„Krökkum þykir alveg jafn
gaman að koma í hollustuafmæli,
en auðvitað verður að vera fullt
af nammi líka. Ég er oftast
með pitsur, kökur og ekk-
ert hollt í mínu afmæli,
en prófaði einu sinni
að vera með græn-
metisbakka og það
var alveg smá vin-
sælt,“ segir Anita og
undir orð hennar
tekur Sigmar heils
hugar. „Það er jafn
spennandi að koma í
heilsuafmæli því gul-
rætur og gúrkur eru
allt í lagi. Við erum
stundum með ávaxtapinna í mínu
afmæli og það er dálítið vinsælt
því eftir mikið súkkulaðiát fer
mann að langa í eitthvað safaríkt
og ferskt,“ segir Sigmar.
Bæði börnin hlakka mjög til
dómarastarfans í dag. „Ég varð
hoppandi glaður þegar mamma
sagði mér frá þessu og hélt hún
væri að djóka. Ég hlakka til að
smakka allt góðgætið og sjá hvern-
ig Jói Fel leysir þetta því hann
þekki ég best af þeim úr sjón-
varpinu,“ segir Sigmar brosmild-
ur. Anita tekur í sama streng:
„Það gæti kannski orðið erfitt
að velja sigurvegara ef þetta
verður allt mjög gott,“
segir hún íhugul.
Þau Anita og Sigmar
eru sammála um að
afmælisdagurinn sé
besti dagur ársins, að
meðtöldum jólunum.
„Mér þykir allt-
af jafn gaman að eiga
afmæli því þá koma
vinir manns til að hafa
það gaman. Barnaaf-
mæli verða samt að vera skipu-
lögð og skemmtileg, og mikilvægt
að opna gjafirnar þegar allir eru
komnir svo þeir sjái hvað maður
fær. Eftir það er best að fara í einn
leik áður en maður borðar kökurn-
ar og svo aftur í leiki á eftir,“ segir
Anita sem dreymir um að halda
afmæli sitt á Spáni þar sem gest-
um hennar hefur verið boðið með.
„Það er frábært að eiga afmæli
og alltaf best að halda það heima
því þá nær maður sambandi við
gesti sína. Það er ekkert gaman
að halda afmæli í til dæmis bíó,
horfa á eina mynd og svo bara bæ
og búið, en æðislegt að hafa fullt
af kökum og nammi heima og fara
í fataleik eða spennandi pakkaleik
þar sem allir rétta pakkann ógeðs-
lega hægt sín á milli til að halda
honum hjá sér,“ segir Sigmar
kátur, og stundum er pabbi hans
með töfrabrögð, þótt hann vinni
ekki við það. „En afmæli er alltaf
nammidagur og oftast má ég ekki
fá nammi þegar ég á líka afmæli
því þá er ég búinn að fá svo mikið
gotterí.“ thordis@frettabladid.is
Langbesta barnaafmælið
Það verður handagangur í öskjunni í Vetrargarðinum í dag þegar sjónvarpskokkar þjóðarinnar keppa sín
á milli um besta heilsusamlega 10 ára afmælið en dómnefndina skipa tíu ára börn og sjálfur Siggi Hall.
Hér eru þau Anita Jacobsen og Sigmar Snær Sigurðsson glaðhlakkaleg, enda í startholunum fyrir gómsæt og spennandi dómara-
störf í Sjónvarpskokkakeppninni sem hefst klukkan 16 í Vetrargarðinum í Smáralind í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Ég prófaði einu sinni að vera með grænmetisbakka og
það var alveg smá vinsælt.“
Sýnir nunnunnar Hildigerðar er dans- og tónverk sem verður frumflutt á Skriðu-
klaustri á laugardag klukkan 15. Verkið er unnið af listamönnunum Megan Harrold og
Charlie Rauh en þau hafa unnið að því í gestaíbúðinni á Skriðuklaustri síðustu vikur.
Bíó Paradís sýnir nýjar kvikmyndir frá öllum heimshorn-
um auk eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsir kvik-
myndahátíðir og stendur fyrir fjölbreyttum kvikmynda-
tengdum viðburðum. Hátíðin RIFF stendur þar yfir.
www.bioparadis.is