Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 5
MORGUNN
83
austurs, svo að okkur sýnist sólin mynda sólarhringinn
með því að ganga frá austri til vesturs á þessari tíma'-
lengd. Og í öðru lagi gengur eða þeytist jörðin á rúmum
365 dögum kringum sólina og myndar með því árið eða
ársins hring, sem hefur á öðrum boganum miðjum kol-
svart skammdegið, en á hinum, það sem skáldið hefur
kallað „nóttlausa voraldar veröld“.
En þér getið nú nærri, lesendur mínir, að það
var ekki tilgangur minn, að fara að kenna yður svona
barnalærdóm. Því að nú er þetta aðeins það, sem hvert
barn veit. En það var sú tíð, að þetta vissu ekki alíir.
Það eru 400 ár síðan — takið eftir — aðeins 400 ár,
síðan uppi var maður, sem hét Kopernikus, og það var
hann, sem fann þetta út, en þá trúði enginn því, ekki einu
sinni annar frægur stjörnufræðingur, sem fæddist nærri
því hálfri öld seinna. T. Brahe, svo það er í rauninni
ekki nema svo sem 800 ár síðan þetta, um gang jarðar-
innar, um sólar- og árshringinn varð almenn þekking mann-
kynsins. Nú er það sem sagt barnalærdómur og ekkert
barn svo heimskt eða illa að sér, að það viti þetta ekki
í aðalatriðum.
Eins er nú með spiritismann eða sálarrannsóknirnar
og samband við annan heim. Margir ámóta rnenn og
Kopernicus hafa sannað það alveg eins tryggilega og hann
sannaði gang jarðar og annara reikistjarna. Ég gjöri
ráð fyrir, að það hafi farið svo sem 100 ár í það, að
allir tryðu og könnuðust við kenning Kopernikusar, og
nú eru nærri 100 ár síðan talið er að sálarrannsóknim-
ar byrjuðu. Það ætti því að láta nærri, að kenning Crookes
og Russel Wallace og margra samherja þeirra um sann-
anir fyrir framhaldslífi sé orðin eins mikill barnalær-
dómur eins og kenning Kopernikusar, og álíka baima-
skapur og fáfræði að kannast ekki við það, eins og það
var eftir árið 1500 að kannast ekki við kenning Kopernic-
usar og Galileis. Nú er þekkingin á þeirri kenning og
sanngildi hennar orðin órjúfanleg eign mannkynsins; og
6