Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Side 12

Morgunn - 01.12.1945, Side 12
90 MORGUNN ir menn töldust um síðastu aldamót nálægt Vs hluti mann- kynsins, en hin dásamlega iörð vor er eign alls mannskyns- ins, allar þjóðir jafnábyrgar fyrir notkun hennar og jafn- áríðandi að þær öðlist allar þekking og sannanir fyrir því — jafnvel hvað sem trúarbrögðum líður — að maðurinn er ekki líkami, sem er gæddur sál, heldur fyrst og fremst andi, sem hefur þennan jarðneska líkama fyrir verkfæri til að fullkomnast og búa sig undir fullkomnara líf. Þessar sannanir hafa sálarrannsóknirnar og spiritisminn verið að flytja mannkyninu nú í hartnær 100 ár, og frumherjar þeirra, eða sem kalla mætti postular, telja þær því vera ■eins og nýja opinberun frá Guði, senda mannkyninu til bjargar og hjálpræðis, þær séu það hjálpræði, sem allt mannkynið hrópar á. Niðurstöður sálarrannsóknanna, sem eru kallaðar spiritismi (andahyggja, af því að hann leggur áherzlu á, að maðurinn er andi), eru ekki í andstöðu eða óvináttu við kristindóminn, heldur þvert á móti sterkasta stoð fyrir höfuðatriði hans, að maðurinn lifir þótt hann devi. Það var fyrsta atriðið, sem postularnir prédikuðu, að þeir væru vottar að því, að Kristur væri upprisinn og hefði birzt þeim eftir dauða sinn. Þó hefur kirkjan í heild og þjónar hennar allmjög lagt fæð á spiritismann, þó að nú fari þeim mjög fjölgandi og þar á meðal margir hinna fremstu, sem viðurkenna gildi hans. Það hafa verið settar nefndir af kirkjumönnum og vitsmunamönnum til að rannsaka. Má þar merkastar telja hjá kirkjumönnum nefnd biskupaþingsins í London (Lambeth þing) 1920 og nefnd erkibiskupsins í Kantaraborg 1937. Báðar héldu þær málið hafa sannleik að flytja, og ekki mætti hugsa sér nein takmörk fyrir því, með hverjum ráðum Guð getur látið manninn í’aunsanna hið andlega líf. Líkt er því varið með vísindin og vísindamennina. Lað er í fullu samræmi við allt eðli efnishyggjuvísindanna að vefengja bæði upprisu Krists og annað líf. Þó er það nú orðin mikil og fríð fylking frægustu og færustu vísinda- manna, sem hafa rannsakað og fundið, að málið væri

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.