Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Side 16

Morgunn - 01.12.1945, Side 16
94 M 0 R G U N N því með orðum. Um það leyti. sem kistan vav borin inn í kirkjuna virtist mér umhverfið breytast frá því er ég kom fyrst inn. Ösegjanleg ljóss- og geisladýrð breiddist yfir allt og á móti manni streymdu ilhlýir geislar frá þeim, sem þarna voru staddir að handan. Það var eins og hvert tilverusviðið birtist við hliðina á hinu, umhverfis og bak við hvert annað, en jafnframt hvert öðru tengd og samofin. Það ber stundum við að skyggnir menn og konur vh*ð- ast sjá framliðna ganga haltrandi á eftir kistu sinni inn kirkjugólfið, en í þetta sinn var ekki svo. Frú Kvaran gekk ekki á eftir kistu sinni, hún var komin inn í kirkj- una áður. Henni hafði verið búin nokkurskonar hvíla eða hægindi vinstra megin við altarið og þar sá ég hana sitja eða hallast upp að baki sætisins. Hún var ekki sofandi, heldur vakandi og vissi vel hvað fram fór. Tár glitruðu á hvörmum hennar, en sorgartár voru það ekki. Það voru gleði- og þakkartár. Gleði 'nennar var fólgin í því, að hún var búin að finna þá og hitta, sem biðu hennar, en þakkar- tárin voru helguð þeim, sem eftir voru. Þannig kom hún mér fyrir sjónir við upphaf kveðjuathafnarinnar. En hún var ekki ein þarna. Hún var umvafin kærleika og hjalp- fýsi þeirra, er bak við hana stóðu. Ég þarf ekki að lýsa þeim hér. Ég get nefnt nöfn þeirra, eiginmanns hennar, Einars H. Kvarans og sona hennar, Sigurðar og Ragnars. Óteljandi hópur vina hennar og vandamanna var og þarna, fagnaði henni og bauð hana velkomna, um leið og þið voruð að kveðja hana, en ég skynjaði eigi að síður að sum- ir viðstaddra voru ekki að flytja henni hinnstu kveðju, held- ur sendu þeir henni árnaðaróskir og samfagnaðarkveðjur. U.m það leyti, sem séra -Jón Auðuns hóf ræðu sína, virt- ist mér eitthvað sérstakt væri gert til þess að hún gæti fylgzt með því er hann segði, en samtímis virtist mér séra Haraldur, sem þarna var staddur, vera að segja eitthvað við hana. Þannig virtist mér þessu vera hagað meðan athöfnin stóð yfir í kirkjunni. En samtímis sá ég við hlið-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.