Morgunn - 01.12.1945, Page 25
M O R G U N N
103
Tardieu læknir gefur ítarlega skýring á því, hvernig
þessi stórmerki spádómur rættist síðar, lið fyrir lið. Styrj •
öldin milli Frakka og Þjóðverja brauzt út þegar á næsta
ári, 1870. 20. ágúst fékk Tardieu skipun um að ganga í
þjónustu Rauða krossins á vígvöllunum og starfa í liði
Mac Mahons hershöfðingja. Þegar hann lagði af stað hafði
hann enga hugmynd um, hvar Mac Mahon væri með herlið
sitt, en þegar hann var kominn í járnbrautarlestina og
hinir læknarnir spurðu, hvert hann skyldi, svaraði hann:
„Við förum fram hjá Alnoy, Hirson og Méziéres til Sedan.
Eftir tíu til fimmtán daga snúum við aftur til Parísar,
eftir hræðilegan ósigur. Mér hefir verið sagt þetta fyiir.“
Dag eftir dag rakti hann viðbui'ðarás hernaðarins, eftir
spádómi Sonrels, og mönnum til stórrar furðu rættist hvert
einstakt atriði.
Sonrel og hann hittust í Arcueil og þá fóru læknarnir og
aðrir í hjúkrunarliðinu að hvísla sín á milli: „Bíðum nú
og sjáum, hvort það rætist, að hann (Sonrel) verði skip-
aður yfirforingi og deyji síðan innan þriggja daga.“ (Það
hafði Sonrel sagt fyrir í spádómi sínum.)
Sonrel var skipaður yfirforingi. Fimmtán eða tuttugu
dögum síðar fékk hann bóluveikina og andaðist innan
þriggja daga. Kona hans var þá með barni.
Það væri of langt mál, að rekja lið fyrir lið, hvernig
allur hinn mikli spádómur Sonrels rætist út í æsar. 1 spá-
dóminum hafði hann talað um bömin sín, þótt hann ætti
þá aðeins eitt barn, en síðara barnið fæddist eftir að hann
andaðist.
Einnig það kom fram, að Tardieu tók við starfi úti á
landinu. Hann kvæntist árið 1874, en kona hans andaðist
sex árum síðar. Svo var það árið 1912, að spádómurinn um
vísindastarfið, sem hefði svo mikla þýðingu fyrir Tardieu
og sem Sonrel hafði þá sagt fyrir 43 árum áður, rættist.
Þá fór Tardieu að vara vini sína við því, að nú væru hræði-
legir atburðir í nánd, og í apríl árið 1914 fór hann til líf-
eðlisfræðingsins og sálarrannsóknamannsins fræga, pró-