Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Side 32

Morgunn - 01.12.1945, Side 32
110 M 0 R G U N N una né þetta starf, en þetta rættist nákvæmlega í ágúst 1914, þegar Osty gegndi slíku starfi sem yfirlæknir í þarfir hernaðarins. Miðillinn sá hann raunverulega að starfi, sem hann átti eftir að vinna, hann sá svipmynd úr ókomnu lífi hans. Hitt var honum gersamlega hulið, hvers vegna læknirinn ætti eftir að taka að sér þetta starf Og enn er annar leyndardómur í þesu sambandi, sem vér skilj- um ekkert í: í þessu tilfelli sá miðillinn lækninn í vinnu- stofu, sem hann átti raunverulega eftir að vinna í, og starfið, sem hann var að leysa þar af hendi, er var með óllu óvænt, þegar miðillinn sá þetta, en hann sá lækninn að þesari vinnu, ekki klæddan eins og hann var raunverulcga að herþjónustunni, í einkennisbúningi herforingja, heidur klæddan venjulegum fötum. Þetta er enn óráðin gáta. Þegar .miðillinn sér herbergið, sem læknirinn á eftir að vinna í tveim árum síðar, sýndist eðlilegt, að hann sæi hann þar búinn þeim klæðnaði, sem hann bar raunverulega á þessum stað, þá væri um fullkomna mynd hins ókomna að ræða. En myndin, sem miðillinn sér, er ekki fullkomin mynd hins ókomna, hann sér herbergið og vinnuna, tins og það raunverulega reyndist síðar að vera, en lækuinn sjálfan sér hann ekki eins og hann var við þá vinnu á sín- um tíma, heldur sér hann hann í venjuegum klæðnaði. Forspáin er staðreynd, sem ekki tjáir í mót að mæla, en með hverjum hætti gerist hún? Um það hafa komið fram margar tilgátur, en það er heldur ekkert meira en tilgfáltur, engin vissa er fengin um það. í bók sinni, sem ég hefi vitnað til hér áður, kemur dr. Osty fram með eina tilgátuna, og hann segir: „Þegar einhver getur sagt fyrir ókomin atvik úr lífi manns, sem er staddur í návist hans, þá fær hann þessa yfirvenjulegu vitneskju sína frá manninum sjálfum, sem hann spáir fyrir.“ Þessi tilgáta gerir ráð fyrir því, að sérhver mannleg vera viti í rauninni allt sitt ókomna líf, og að miðilhnn, sálræni maðurinn eða konan, sé móttakandi, sem geti aftur

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.