Morgunn - 01.12.1945, Qupperneq 36
114
M 0 R G U N N
sótt g-amla manninn til þess að tala við hann og ekki
síðui' til þess að sjá hann, og- hefir hann fúslega tekið
við þeim heimsóknum. Nú eru fimm mánuðir liðnir,
síðan lækningin gerðist, og gamli maðurinn við beztu
heilsu.
Margar sögur af merkilegum lækningum eru sagðar
manna á meðal, og er oss kunnugt um aðia stórfellda
lækning, sem gerðist sama daginn og lækningin gerðist
í Elliheimilinu, en vér höfum því miður ekki heimild
til þess að birta hana enn. Slíkir at'ourðir snerta oft
svo mjög viðkvæm atriði í einkalífi manna, að örðugt
er að fá þá birta.
Vegna lesenda MORGUNS utan Reykjavíkur birtum
vér Lér frásögn dagblaðsins Vísis 7. nóvember s.l., og
auk þess merkilega frásögn vestan af landi, sem Vísir
birti 5. janúar s.l., og segir frá því, hvei’nig maður einn
fékk vitrun um þessa furðulegu lækning áður en nokkrar
fréttir höfðu borizt þangað vestur af því, hvernig lækn-
ingin hefði gerzt.
Vísir 7. nóvember 194-5.
Fyrir nokkru varð farlama maður, vistmaður á Elli-
heimilinu, sem naumast gat hreift sig án hjáipar, skyndi-
lega heill heilsu á meðan hann hlustaði á útvarpsmessu.
Læknar hafa elcki getað skýrt þetta fyrirbrigði, en
sjúklingurinn sjálfur segir að þetta sé ráðstöfun æðri
máttarvalda til að bjarga við trúhneigð fólks.
Maður hér sem hér um ræðir heitir Gísli Gíslason,
og kennir sig við Hjalla í ölfusi, en þar bjó hann um
nokkurra ára skeið eftir síðustu aldamót.
TíÖindamaður Vísis heimsótti Gísla á Elliheimilið í
gær. Gísli var að hnýta net. Það hefir verið hans helzta
starf þær stundirnar, sem hann hefir verið rólfær. Hann
var eldfjörugur, lék við hvern sinn fingur og hoppaði
aftur og aftur upp í loftið — hann sagði að það væri
svo gaman að vera orðinn heilbrigður aftur.