Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Page 42

Morgunn - 01.12.1945, Page 42
120 MORGUNN son? Hann var Grímsnesingur, fæddur að Hömrum árið 1890. Lauk stúdentsprófi 1913, en kandidatsprófi í lækn- isfræði árið 1920. Nokkurum árum síðar varð hann héraðslæknir í Reykjarfjarðarhéraði á Ströndum og and- aðist í Hólmavík árið 1929. Endurininningar frá styrjaldarárunum. Eftir frú Leonard. Sagan endurtekur sig. Vorið 1940 flutti mér ýmiskonar óvenjulega reynslu, bæði í likamlegum og andlegum efnum, og það kom sér sannarlega vel fyrir mig, að hafa fengið styrk og undir- búning, áður en sú reynsla kom. Eg hafði stöðugt í huga áminningarorðin: „Gáðu að þér, vertu róleg, óttastu ekki og vertu ekki huglaus". Meira að segja, vegna þess, að ég hafði verið undirbúin, fundust mér atburðirnir, sem nú gerðust ákaflega merkilegir og upplýsandi, í stað þess, að annars hefðu mér getað þótt þeir hræðilegir. Það var mér mikið happ, að ég átti gamla vinkonu, sem bjó í næsta húsi. Við komum okkur fyllilega saman u.m alla hluti, sem nokkru rnáli skipti. Maðurinn hennar var einnig kominn yfirum og hún hafði náð sambandi við hann í gegnum marga miðla og þar á meðal í gegn um sjálfa mig. Hann sagði henni, að hann hefði hitt mann- inn minn, og að þeir ynnu oft saman. Húsið, sem frú Stonehouse, vinkona mín, bjó í, hafði nokkurum árum áður verið í eigu Sir Walter Gibbons, sem hafði haft mikla andlega hæfileika, meðan hann var á jörðunni, og

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.