Morgunn - 01.12.1945, Qupperneq 50
128
MORGUNN
Stúlka í Ohio, sem legið hefir rúmföst
sextán ár, fær heilsu. Hún þakkar það
kraftaverki.
BRAD WILSON segir frá
Upper Sandusky, Ohio.
Ninabelle Cross veiktist af heilahimnubólgu 1939, varð
lömuð og kreppt og hefir legið rúmföst síðan. Hún er
þekkt hér sem „stúlkan sem vildi ekki deyja“. Hún er
þrjátíu og átta ára að aldri, var. kennari við unglinga-
skóla í Upper Sandusky.
f dag virðist hún hafa orðið heil heilsu.
Sjálf er hún sannfærð um, að orsökin til þess að hún
getur nú „gengið, heyrt, séð og talað“, sé sú að guðleg
vera birtist við rúmið hennar og sagði: „Þú liefir trúað
og þú munt verða læknuð“.
í svefnherberginu, að heimili sínu 509 S. Eighth St.,
sagði ungfrú Cross sögu sína í dag með lágum rómi,
rólega og blátt áfram. Það var saga um sigur yfir sjúk-
dómi, sem byrjaði 1929 með influensu, en snérist upp
í heila- og mænuhimnubólgu með lömun, svefnsýki og
svefnleysi. Af hinu síðast talda þjáðist hún í 8V2 ár.
Móðir ungfrú Cross, sem stundaði dóttur sína í veik-
indunum, sat hjá meðan viðtalið fór fram, en skaut inn
í stuttum athugasemdum við og við til uppfyllingar og
staðfestingar á frásögn kennslukonunnar fyrrverandi.
Frú Cross sagðist hafa verið að laga um dóttur sína
í rúminu fimmtudaginn 27. september 1945. „Ninabelle
gat alls ekki hreyft sig og við heyrðum varla þegar húr>
hvíslaði, góða nótt“.--------