Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 55
M 0 R G U N N
Trú framtíðarinnar.
Eftir Sir A. Conan Doyle.
Fyrir nokkurum ánun kom út í Englandi sér-
kennileg bók. Fyrir f jórtán af þekktustu mönnum
Breta liaf'Si veriS lögð þessi spuming: Hvað
myiidufi þér segja, ef yður væri gefið eitt tæki-
færi á ævinni tii þess að predika. Enginn þessara
manna var úr prestastéttinni, þeir voru þekktir
vísindamenn. rithöfundar, o. s. frv. Þeir svöraðu
með því að semja liver sínn predikun, og- voru þær
síðan gefnar út í bók, f jórtán talsins. Meðal þeirra,
sem áttu predikun í þessu óvenjulega safni, var
liinn alkunni skáldsagn.'ihöfundur og spíritisti,
Sir Arthur Conan Doyle. MORGUNN gerir ráð
fyrir ])ví, að lesendum bans ]>yki fróðlegt, að
lesa predikun þessa mikla baráttumanns spíri-
tismans og birtir liana liér.)
1 ti'úarbrögðum á ekki að vera kyrrstaða. Það er ekki
hægt að halda endalaust áfram á þeirri braut, að vitna í
þúsunda ára gömul rit, sem sum eru langt fyrir neðan nú-
tíma mælikvarða á vitsmuni og siðgæðisvitund. Guð vakir
enn yfir heiminum, sem hann skóp, og með hjálp milliliða,
sem geta veitt innblæstri að ofan viðtöku, er hann enn öðru
hvoru að koma til mannanna nýrri þekkingu, til þess, að
fræða þá um markmið þeirra. Ég trúi því, að síðustu átta-
tíu árin hafi flóði slíkrar fræðslu verið veitt til vor mann-
anna, þótt vér höfum verið ótrúlega blindir á gildi hennar
og geysilega þýðingu. Svo sannfærður er ég um mikilvægi
hinnar sálrænu þekkingar, að smám saman er ég kominn
að þeirri niðurstöðu, að hér sé um mikilvægustu atburðina
á jörðinni að ræða, síðan hinir miklu siðalærdómar voru
opinberaðir oss, sem tengdir eru við ’nið háleita nafn Jesú
frá Nazaret. Og jafn sannfærður er ég um það, að ef sleppt
er siðalærdómum Jesú, er hér u,m að ræða hina þýðingar-