Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 59
M 0 E G U N N
13T
sem birt hefir verið í hundruðum bóka. Þessi fyrirbrigðí
ei-u óhrekjanlegar staðreyndir og eru í fullu samræmi
við þau fyrirbrigði, sem eru kölluð stórmerki andans í
fornum, helgum fræðum.
Þetta er ein af þeim ástæðum, sem vér teljum oss hafa
til þess, að staðhæfa, að heimspeki vor er af ójarðneskum
uppruna. Önnur ástæðan er, að þessi nýja túlkun á alheim-
inum hefir borizt til vor í gegn um marga milliliði, sem
störfuðu óháðir hver öðrum og vissu ekkert hverir um
aðra, en þrátt fyrir það, gengur sami þráðurinn í gegr. um
allar þessar orðsendingar, úr svo mörgum áttum komnar,
þótt ekki séu þær samhljóða í öllum aukaatriðum. Þessar
orðsendingar hafa borizt oss frá börnum, frá ómenntuðu
fólki, og meira að segja er mér persónulega kunnugt um,
að einn farvegurinn var maður, sem var ákveðinn afneit-
ari, en var blátt áfram tekinn í þjónustuna gegn vilja sín-
um og látinn skrifa sannleikann. Ef þrjú eða fjögur vitni,
sem samhljóða eru í venjulegum réttarsal, nægja til þess,
að hæ.gt sé að fella fullnaðardómsúrskurð, hvernig stendur-
þá á því, að þúsundir samhljóða votta í sálrænum efnum
nægja ekki til þess að vek.ja tiltrú í réttarsal veraldarinnar ?
Þetta er svo sjálfsagður hlutur, að ekkert annað en andleg
deyfð eða fullkomið þekkingarleysi getur haldið áfram að
afneita.
En höfuðtryggingin fyrir sannleiksgildi hinnar sálrænu
fræðslu er í því fólgin, að þessi fræðsla gefur oss skyn-
samlegustu, eðlilegustu og huggunarríkustu skýringuna,
sem enn hefir komið fram, á staðreyndum mannlegs lífs
og mannlegum örlögum. Sú skýring, sem vér fáum þarna
á lífi voru, er svo stórkostleg, að hún nær til allra erfið-
leika vorra og varpar ljósi yfir þá.
Hvaðan er þessi fræðsla komin? Er það skynsamiegt
að ætla, að sá litli hópur af algerlega óupplýstu fólki, sem
fyrst veitti þessum oi’ðsendingum viðtöku, hafi fundið
þær upp, fundið upp skýringar, sem varpa ljósi yfir vanda-
mál alheimsins? Getum vér hugsað oss, að maður eins og-