Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Side 63

Morgunn - 01.12.1945, Side 63
M 0 R G U N N 141 milli hljómlistarinnar og vísindastarfa, en hann kaus vís- indin sem starf en hljómlistina sem tómstundaiðju. Það er þar eins og hér, að til eru tæki fyrir þá, sem óska að vinna með höndum sínum, bókasöfn fyrir lærdómsiðkendur, rannsóknastofur fyrir þá, sem vísindin iðka, musteri, fyrirlestrasalir og miðstöðvar fyrir kennslu og nám í málaralist, hljómlist, leiklist o. s. frv.. Þeir segja oss, að borgarar þessarar veraldar séu lengra komnir en jarð- neskir menn í öllum þessum greinum, já, þeir segja oss, að öll viðleitni vor í þessum efnum sé ekki annað en eftir- myndir þess, sem gerist hjá þeim. Oss er sagt frá hinum dásamlegu leikvöllum f.vrir böirnin, einföldum, saklausum skemmtunum þeirra og upp- eldi við undursamleg skilyi'ði. Móðirin kann að harma likamlegan missi barnsins síns, en þegar hún veit allt það, sem vér getum sagt henni, munu tárin þorna og hjarta hennar hljóta huggun, þegar henni er ljóst, hvað barnið hennar hefir fengið og við hverju því hefir verið hlíft með því að taka það af jörðunni. Trúarkenndin vaknar og hún örfast af þeirri dýrð, sem er umhverfis hina nýkomnu sál. Tilbeiðslan eykst og kær- leikurinn i sálimni, þegar henni verður ljóst, hve ósegjan- lega góður skaparinn hefir verið og þegar henni lærist að einhverju leyti að leysa þá flækju af ranglæti og grirnmd, sem henni fannst jarðlífið vera vafið í. Og þó er þetta engan veginn líf, sem ekki geymir annað en eintóma tilbeiðslu. Þar eins og hér ættu menn að hafa Guð í hjartanu, er. lif þeirra er samfelld kveðja af friði heimilislífsins og nyt- sömum störfum, sem hver getur valið eftir hæfni sinni og ’óskum. Þessi er sú mynd, sem oss er gefin af lífinu hinu megin dauðans, í sínu geðþekkasta formi. Er nokkuð óeðlilegt við þessa mynd? Er hún ósennileg? Öll þróun er hægfara, •og vér ættum að geta skilið, að sálin tekur engum róttækum breytingum við það eitt að skiljast frá jarðneska líkam- anum. Hún flytur með sér hneigðir sínar og eftirlanganir, k

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.