Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Page 70

Morgunn - 01.12.1945, Page 70
148 MORGUNN „Hugsunin er skattffrjáls, segir gamalt orðtæki, —• en þetta er ekki satt, við berum ábyrgð á hugsunum okkar, því að þær verka lengi eftir að við höfum hugsað þær. Otvarpið hefir opnað oss sýn inn í alheiminn. Fyrst svo er, að rúmið umhverfis oss er fullt af öldum og við verkum á þessar öldur með orðum og hljóðum, megum við ekki gleyma því, að hugsun okkar gerir það einnig, því að hugsunin er efni. Mér hefir alltaf verið ljóst, að á sunnudögum gengur mér bezt að semja skáldverk. Ég veit, að ástæðan er sú, að þá hvílast flestir hinir störfum hlöðnu heilar mannanna, öldurnar í rúminu eru ekki eins hlaðnar af hugsunum þeirra og endranær og manni gengur betur að fá innblástur í gegn um ljósvakann. Þá getur næm- leikinn orðið svo mikill, að maður snúi ósjálfrátt höfð- inu til ákveðinnar áttar í herberginu, þar sem maður situr einn, og spyrji ósjálfrátt: Er nokkur hér? Þegar rithöfundurinn situr og skrifar, sokkinn niður í líf löngu liðinna kynslóða, getur hann aldrei ábyrgzt, hvað mikið af því, sem hann skrifar, er ávöxtur af hans eigin hugsun, og hvað mikið hann fékk með því að hlusta, — því að hugsanir fjarlægra kynslóða eru til enn. Hvað er hugmyndaflugið annað en þjálfaður hæfileiki til þess að hlusta, — veita viðtöku hugsunum frá hinu óranngakaða rúmi. Ég sendi nú bók mína „Drotten" til lesendanna, og ég vona að þeir muni skilja þetta: margra ára erfiði mitt til þess, að setja mig inn í líf kynslóðanna, sem lifðu á jörðinni fyrir 600 árum, hefir komið mér á bylgjulengd með fólki, sem ég trúi, að lifi ennþá, og hafi andað inn í skáldrit mín tilfinningum sínum, vonum sínum og sorgum, gleði sinni og ósigrum, því lífi, sem það lifði. Vélrænir hlutir breytast, hjarta mannsins er eilíflega hið sama“.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.